Fréttatíminn - 17.10.2014, Page 26
É
g taldi mig vera
hraustustu 55 ára
konu landsins. Fasta-
gestur í líkamsrækt
og sundi, hjólaði og
gekk mikið. Ég hélt
að ég yrði allra kerlinga elst og það
var gríðarlega erfitt þegar fótunum
var kippt undan mér,“ segir Hildur
Baldursdóttir, bókasafns- og upp-
lýsingafræðingur, sem greindist
með brjóstakrabbamein í árs-
byrjun í fyrra. Hildur hafði stuttu
áður tekið þátt í hóprannsókn hjá
Hjartavernd og kom hún sérlega
vel út úr henni. „Ég var sterk, liðug,
verkjalaus og lyfjalaus. Mér leið
virkilega vel. Mánuði seinna var ég
greind með brjóstakrabbamein og
við tók slagur sem stóð í tæpt ár,“
segir hún.
Krabbameinsæxlið var á stærð
við sítrónu en Hildur hafði ekk-
ert fundið fyrir því, ekki frekar en
orkuleysi eða verkjum. „Ég hafði
ekki farið reglulega í krabbameins-
skoðun en þetta er mikilvæg áminn-
ing um mikilvægi þess.“
Eiginmaður Hildar er Einar Kára-
son rithöfundur og við sitjum þrjú
saman á heimili þeirra við Barma-
hlíð í Reykjavík og förum yfir bar-
áttuna sem þau hjónin háðu saman.
„Það hafði mikið að segja hvað hún
var hraust. Í lyfjameðferðinni eru
þetta í raun stórir eiturskammtar
sem eru gefnir til að drepa krabba-
meinið og fólk þolir þá misvel, en
því meira sem fólk þolir því meiri
líkur á að þetta beri árangur.
Hildur stóð þetta allt af sér. Þegar
þetta ferðalag var að byrja reikn-
uðum við út að þetta yrði eins og að
ganga á Suðurpólinn. Síðan væri
það spurning hvort við myndum
ná á Suðurpólinn og til baka aftur.
Það var ekki að undra að það hefði
verið lítið eftir af henni þegar þessu
lauk,“ segir Einar.
Hélt sér í formi fyrir næsta
eiturskammt
Það er ekki ofsögum sagt að líðan
fólks hafi meiri áhrif á hvernig það
upplifir umhverfi sitt heldur en um-
hverfið sjálft. Veðrið er þar engin
undantekning en flestir íbúar suð-
vesturhorns landsins eru sammála
um að nýliðið sumar hafi verið eitt
það versta í langan tíma. Því var
hins vegar ekki að heilsa hjá þeim
Hildi og Einari sem á þeim tíma
upplifðu gleðina yfir því að hafa yf-
irbugað krabbameinið. „Það töluðu
allir um hvað það var vont veður
í sumar. Okkur fannst hins vegar
alltaf svo gott veður, bjart og fínt.
Við fórum í ófáa göngutúra og grill-
uðum,“ segir Hildur og Einar bætur
við: „Það var sumarið þar á undan
sem við upplifðum ekkert sumar
og hjá okkur skein þá engin sól.“
Hildur tekur undir með honum:
„Nei, þá skein engin sól en í ár hef
ég ekki séð annað en birtu og gleði.
Ég held að allir sem veikjast svona
alvarlega fari ósjálfrátt að njóta
hversdagsins meira og gefa smáu
hlutunum gaum. Við höfum notið
þess að vera enn meira með fólkinu
okkar þennan tíma. Við eigum
fjórar dætur og sjö barnabörn. Vinir
okkar voru duglegir við að eiga með
okkur samverustundir og það er
bara afskaplega dýrmætt. Það sem
stendur upp úr er þessi vinátta og
elska sem maður upplifir. Þó árið
2013 hafi verið sólarlítið þá hló ég
ekkert minna það árið,“ segir hún.
Fyrstu skrefin sem voru tekin af
læknum í baráttunni við krabba-
meinið var háskammta lyfjameð-
ferð. „Ég hafði ekki áttað mig á
því að krabbameinslyf lækna ekki
krabbamein heldur ráðast þau á
Við lentum í stórsjó
Hildur Baldursdóttir taldi sig vera hraustustu 55 ára konu landsins þegar hún greindist með brjósta-
krabbamein í ársbyrjun í fyrra. Hildur og eiginmaður hennar, Einar Kárason, þreyttu þessa raun
saman sem þau líkja ýmist við stórsjó eða dimma göngu. Hún fékk hárkollu á meðan meðferðin stóð
yfir og þótti barnabörnunum ævintýralegt að amma gæti tekið af sér hárið. Þegar litið var á Hildi sem
læknaða fékk Einar mikið orkuskot og byrjaði að skrifa bókina Skálmöld sem er forleikur að bókunum
þremur sem hann hefur skrifað um Sturlungaöld.
Hildur Baldursdóttir og
Einar Kárason voru í
hlutverkum sjúklings og
aðstandenda á síðasta
ári en eru nú aftur orðin
kærustupar. Mynd/Hari
26 viðtal Helgin 17.-19. október 2014