Fréttatíminn - 17.10.2014, Side 28
grúskað mik-
ið í efni frá
Sturlungaöld.
„Ég graut-
aði mikið í
heimildum
á síðasta ári
þegar ég var
bókstaflega
verklaus og
við vorum
að sinna
veikindum
á heim-
ilinu. Síðan,
þegar þessi mikla meðferð hjá Hildi
kláraðist í janúar, var það svo mikill
léttir að ég byrjaði aftur á fullu. Ég
gat farið aftur að vinna um leið og
við vorum búin að bíta af okkur það
versta,“ segir hann.
Orðin kærustupar aftur
Hildur er farin aftur að vinna í
hlutastarfi en hún starfar sem
bókasafnsfræðingur á Kringlusafni
og hefur það gefið þeim hjónum
tækifæri á undanförnum árum að
sameinast Sturlungu. „Ég hef borið
í hann bækur um þetta tímabil og
fundið alls konar skrýtnar bækur
á bókasafninu,“ segir hún. Henni
finnst gott að vera farin aftur að
vinna og að Einar sé aftur að skrifa
eftir þetta erfiða tímabil. „Í fyrra
vorum við sjúklingur og aðstand-
andi. Það er gott að vera orðin kær-
ustupar aftur. Það er gott að vera
komin aftur í hversdaginn og hann
verður sterkari með degi hverjum,“
segir Hildur.
Hildur þekkir Landspítalann
eins og stofuna hjá sér eftir þetta ár
veikinda og bæði eru þau afar gagn-
Rekstrarvörur til fjáröflunar
– safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV
FÓ
TB
O
LT
I
BA
DM
IN
TO
N
SU
N
D
HA
N
DB
O
LT
I
KÖ
RF
UB
O
LT
I
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
1113
Er æfingaferð,
keppnisferð,
útskriftarferð eða
önnur kostnaðarsöm
verkefni framundan?
Síðustu 30 árin hafa félagar í
íþróttafélögum, kórum og öðrum
félagasamtökum aflað sér fjár
á einfaldan hátt með sölu á WC
pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og
öðrum fjáröflunarvörum frá RV.
„Í kosning-
unum fannst
mér á stjórn-
málamönnum
að þeir bæru
hag sjúklinga
fyrir brjósti en
ég veit ekki
alveg hvar það
brjóst er,“
rýnin á íslenskt velferðarkerfi, þrátt
fyrir að allir læknar og annað heil-
brigðisstarfsfólk hafi reynst þeim
einstaklega vel. Einar bendir fyrst á
þann gríðarlega kostnað sem dæm-
ist á fólk þegar það veikist alvarlega
en þau telja að beinn kostnaður
vegna veikinda Hildar hafi verið um
milljón króna. „Þetta á að heita vel-
ferðarkerfi og við líkjum okkur við
heilbrigðiskerfi á Norðurlöndunum.
Flestir stjórnmálamenn gera mikið
úr því að þeir ætli að lækka skatta
á almenning en ég hef ekki heyrt
neinn af þeim tala um að lækka
skatta á sjúklinga. Mér finnst sjálf-
sagt að borga meira til samfélags-
ins á meðan maður er hraustur og
í vinnu, og eiga það svo inni þegar
maður veikist. Mér finnst þetta
blettur á íslensku velferðarkerfi og
íslensku samfélagi,“ segir Einar.
„Kostnaðarþátttaka ríkisins hefur
versnað til muna á þeim tíma sem
ég hef verið að glíma við mín veik-
indi,“ segir Hildur. „Í kosningunum
fannst mér á stjórnmálamönnum
að þeir bæru hag sjúklinga fyrir
brjósti en ég veit ekki alveg hvar
það brjóst er,“ segir hún hvöss. Þau
leggja líka áherslu á hversu mikill
missir það er fyrir íslenskt samfélag
að hæfasta heilbrigðisstarfsfólkið
flýi land því launin hér séu ekki
samanburðarhæf. „Það er hræðilegt
slys að missa þetta fólk úr landi því
hér eru léleg laun og slæm aðstaða,“
segir Einar.
Bannað að trassa
krabbameinstékk
En þó Hildur sé laus við krabba-
meinið er þeim kafla ekki lokið. „Ég
hef stundum sagt að líkami minn
hafi áður verið eins og traust og vel
byggð evrópsk stórborg, þar sem
allt gengur sem skyldi. En eftir
eiturhernað, skurð og bruna er ég
meira eins og Berlín eftir seinni
heimsstyrjöldina. Víða rjúkandi
rústir, en viðgerðarflokkar eru á
fullu að laga það sem hægt er að
laga. Sú vinna gengur bara vel,
en mun taka langan tíma. Ég fer
reglulega í skoðun til að fylgjast
með hvort krabbameinið hafi tekið
sig upp og er bara bjartsýn á fram-
tíðina. Auðvitað breytir þetta lífs-
sýninni. Ég er ekki að segja að það
sé verra líf heldur er það öðruvísi
líf,“ segir hún.
Einar grípur til líkingamáls til
að skýra reynslu þeirra. „Þetta
var eins og að lenda í sjávarháska,
við lentum í stórsjó og það dugar
ekkert annað en að vinna saman og
komast út úr þessu saman,“ segir
hann. Hildur tekur við: „Við upp-
lifðum þetta bæði myndrænt en á
ólíkan hátt. Mér fannst þetta vera
eins og okkur hefði verið hent ofan
í dimman, illfæran skurð og við
vissum að við gætum ekki komið
okkur undan að ganga hann. Vinir
okkar og dætur komu þá og lýstu
upp skurðinn þannig að gangan var
bærilegri,“ segir hún.
Hildur segir að Einar hafi hvatt
sig til að mæta í krabbameinsskoð-
un en hún hafi ekki hlustað nógu
vel. „Hún var uppteknari við að reka
mig í tékk sem við karlar þurfum
að fara í ,“ segir hann. „Við ætlum
að vera dugleg að ýta á hvort annað
að fara reglulega í skoðun. Héðan í
frá er harðbannað að trassa slíkt,“
segir Einar og bætir við: „Við eigum
fjórar dætur og þær komast ekki
upp með annað en að fara í tékk.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Eftir að Hildur var úrskurðuð heilbrigð fékk Einar gríðarlega orku og skrifaði for-
leikinn að bókunum þremur sem hann hefur gefið út um Sturlungaöld. Mynd/Hari
28 viðtal Helgin 17.-19. október 2014