Fréttatíminn - 17.10.2014, Side 82
18 rauðar rósir eru 8 ára
Ýmis tilboð á gjafavöru og íslenskum rósum út október
Verið velkomin
Hamraborg 3 • Sími: 554 4818 • 18raudarrosir@18raudarrosir.is • www.facebook.com/18raudarrosir
L ilja Birgisdóttir opnar sýninguna 40-42 gráður/40-42 degrees í Gallerí Listamenn um helgina. Þetta er fyrsta
einkasýning Lilju en hún lærði myndlist og
ljósmyndun í Listaháskóla Íslands og Royal
Academy of Arts í Den Haag. Lilja hefur tek-
ið þátt í fjölda samsýninga á undanförnum
árum og vakti hljóðgjörningur hennar, „The
Vessel Orchestra“, mikla athygli sem opn-
unaratriði Listahátíðar í Reykjavík árið 2013.
Á sýningunni í Gallerí Listamönnum
veltir Lilja fyrir sér minnimáttarkennd
mannsins gagnvart náttúrunni og þörf
hans til að vera jafn góður eða jafnvel betri
en hún. „Við hreykjum okkur af náttúrunni
út á við en það er eins og það sé snefill af
einhverri afbrýðisemi í okkur líka því við
erum svo léleg í eðli okkar og löt að við
munum aldrei ná þessari fullkomnun. Við
tökum styttri leiðina og reynum að herma
eftir henni,“ segir Lilja sem gerir einmitt
tilraun til þess á sýningunni, sem hún
segir auðvitað dæmda til að mistakast.
„Þegar ég vann þessa sýningu má segja
að hún hafi orðið til í sunnudagsbíltúr við
Þingvelli þegar það birtist mér fallegasti
tvöfaldi regnbogi sem ég hef séð og ég
snarstoppaði bílinn. Ég reyndi að grípa
fegurðina og tók upp myndavélina til þess
að eigna mér litadýrðina. Kaldhæðni örlag-
anna var sú að ég var bara með svarthvíta
filmu á mér. Framhaldið er svo hægt að sjá
á sýningunni.“
Sýningin 40-42 gráður/40-42 degrees
verður opnuð í Gallerí Listamenn, Skúla-
götu 32-34, í dag, föstudaginn 17. október,
klukkan 17.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
myndList Fyrsta einkasýning LiLju Birgisdóttur
Minnimáttarkend
gagnvart náttúrunni
Lilja Birgisdóttir reynir að herma eftir stórfengleika náttúrunnar í sinni fyrstu einkasýningu, þó
svo að tilraunin sé dæmd til að mistakast. Kveikjan að sýningunni er tvöfaldur regnbogi sem
listakonan sá í sunnudagsbíltúr við Þingvelli.
Lilja Birgisdóttir, sem
vinnur jafnt í myndlist
og hljóðlist, hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga
en opnar nú sína fyrstu
einkasýningu í Gallerí
Listamönnum.
Fjörefni úr frystinum
Fæst í verslunum Bónus
498
KRÓNUR
Frumsýning!
Lau. 18. okt kl . 14.00
Sun. 19. okt . kl . 14.00
Sun. 26. okt . kl . 13.00
Sun. 2. nóv kl . 13.00
Lau. 8. nóv. kl . 14.00
Sun. 9. nóv kl . 13.00
Fyrir börn
frá 4ra
ti l 12 ára
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu
ofbeldi á þeim tíma sem það á sér
stað eða fljótlega á eftir.
82 menning Helgin 17.-19. október 2014