Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Page 82

Fréttatíminn - 17.10.2014, Page 82
18 rauðar rósir eru 8 ára Ýmis tilboð á gjafavöru og íslenskum rósum út október Verið velkomin Hamraborg 3 • Sími: 554 4818 • 18raudarrosir@18raudarrosir.is • www.facebook.com/18raudarrosir L ilja Birgisdóttir opnar sýninguna 40-42 gráður/40-42 degrees í Gallerí Listamenn um helgina. Þetta er fyrsta einkasýning Lilju en hún lærði myndlist og ljósmyndun í Listaháskóla Íslands og Royal Academy of Arts í Den Haag. Lilja hefur tek- ið þátt í fjölda samsýninga á undanförnum árum og vakti hljóðgjörningur hennar, „The Vessel Orchestra“, mikla athygli sem opn- unaratriði Listahátíðar í Reykjavík árið 2013. Á sýningunni í Gallerí Listamönnum veltir Lilja fyrir sér minnimáttarkennd mannsins gagnvart náttúrunni og þörf hans til að vera jafn góður eða jafnvel betri en hún. „Við hreykjum okkur af náttúrunni út á við en það er eins og það sé snefill af einhverri afbrýðisemi í okkur líka því við erum svo léleg í eðli okkar og löt að við munum aldrei ná þessari fullkomnun. Við tökum styttri leiðina og reynum að herma eftir henni,“ segir Lilja sem gerir einmitt tilraun til þess á sýningunni, sem hún segir auðvitað dæmda til að mistakast. „Þegar ég vann þessa sýningu má segja að hún hafi orðið til í sunnudagsbíltúr við Þingvelli þegar það birtist mér fallegasti tvöfaldi regnbogi sem ég hef séð og ég snarstoppaði bílinn. Ég reyndi að grípa fegurðina og tók upp myndavélina til þess að eigna mér litadýrðina. Kaldhæðni örlag- anna var sú að ég var bara með svarthvíta filmu á mér. Framhaldið er svo hægt að sjá á sýningunni.“ Sýningin 40-42 gráður/40-42 degrees verður opnuð í Gallerí Listamenn, Skúla- götu 32-34, í dag, föstudaginn 17. október, klukkan 17. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  myndList Fyrsta einkasýning LiLju Birgisdóttur Minnimáttarkend gagnvart náttúrunni Lilja Birgisdóttir reynir að herma eftir stórfengleika náttúrunnar í sinni fyrstu einkasýningu, þó svo að tilraunin sé dæmd til að mistakast. Kveikjan að sýningunni er tvöfaldur regnbogi sem listakonan sá í sunnudagsbíltúr við Þingvelli. Lilja Birgisdóttir, sem vinnur jafnt í myndlist og hljóðlist, hefur tekið þátt í fjölda samsýninga en opnar nú sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Listamönnum. Fjörefni úr frystinum Fæst í verslunum Bónus 498 KRÓNUR Frumsýning! Lau. 18. okt kl . 14.00 Sun. 19. okt . kl . 14.00 Sun. 26. okt . kl . 13.00 Sun. 2. nóv kl . 13.00 Lau. 8. nóv. kl . 14.00 Sun. 9. nóv kl . 13.00 Fyrir börn frá 4ra ti l 12 ára VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu ofbeldi á þeim tíma sem það á sér stað eða fljótlega á eftir. 82 menning Helgin 17.-19. október 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.