Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 14
V ið búum okkur undir að fá aldrei að vita af hverju hún dó. Það er líklegra en hitt,“ segir Inga Vala Jónsdóttir, móðir Tinnu Ingólfsdóttur sem varð bráðkvödd á heimili foreldra sinna á Akureyri þann 21. maí síðastliðinn. Síðasta skiptið sem Tinna hitti foreldra sína var þegar fjölskyldan á Akureyri kom til Reykjavíkur, meðal annars til að fara með Tinnu og eldri bróðir hennar, Steinar, á leikritið „Furðulegt háttalag hunds um nótt“ sem fjallar um dreng á einhverfuróf- inu og er byggt á samnefndri bók. „Þau skildu þetta verk mjög vel,“ segir Inga Vala og brosir. Steinar er greindur á einhverfurófinu og móðir þeirra telur víst að Tinna hafi verið það líka. Unnusti Tinnu, Kristján Helgi Hjartarson, lét eintak af „Furðulegu háttalagi hunds um nótt“ í kistu hennar áður en hún var jörðuð. Til stóð að foreldrar Tinnu myndu aftur hitta hana mánudaginn áður en hún dó, þegar þeir millilentu í Reykjavík á leið í hjónaferð til Spán- ar. Ferðina höfðu þau skipulagt með nokkrum fyrirvara til að styrkja enn tengslin eftir erfða baráttu Ingu Völu við krabbamein. Tinna og foreldrar hennar fóru á mis en þeim fannst það ekki stórmál, ekki þá, enda ætluðu þau bara að vera í viku á Spáni. En lengi skal manninn reyna, og því hefur þessi fjölskylda sannarlega fengið að kynnast. Inga Vala var þá nefnilega nýkomin frá Svíþjóð. „Ég var nýkomin frá systur minni,“ segir hún alvarleg. „Systursonur minn fyrirfór sér. Hann henti sér fyrir lest. Hann var að klára fyrsta árið í menntaskóla, fæddur 1997. Eftir að Tinna dó komu strax upp sögusagnir um að hún hafi fyrirfarið sér. Ég er ekki viðkvæm fyrir því. Ég held að það séu eðlileg viðbrögð þegar svona ungt fólk fer. Það er algengasta dánarorsökin þegar fólk lendir ekki augljóslega í slysi.“ Enn eru engar skýringar á því að Tinna lést. Hún hafði fallið nokkrum sinnum í yfirlið síðustu misserin en engar skýringar höfðu heldur fengist á því af hverju það leið yfir hana. Í eitt skiptið fékk hún einnig krampa. „Ég varð aldrei vitni að því þegar það leið yfir hana. Það er óútskýrt. Síðan varð hún bara bráðkvödd. Kannski er þetta eins og vöggudauði, að við fáum enga skýr- ingu. Við búum okkur undir það,“ segir Inga Vala. Tinna kom til Akureyrar með flugi daginn eftir að foreldrar hennar fóru til Spánar. Föðurafi hennar sótti hana út á flugvöll og hún sá síðan um yngri systkini sín; Steinar 15 ára, Loga 7 ára og Ragnhildi 5 ára. Tinna eldaði fyrir þau kvöldmat og kom þeim í svefninn. „Það var Steinar sem kom að henni látinni,“ segir mamma þeirra. „Hann vaknaði upp úr sjö eins og hann er vanur. Steinar er með herbergi í kjallaranum en Tinna svaf í okkar herbergi. Þegar hann ætlar að fara inn á bað kemst hann ekki inn og gerir þá ráð fyrir að Tinna sé þar. Þegar aðeins líður á finnst honum tími til kominn að vekja krakkana og gefa þeim að borða. Það er ábyrgð sem við höfum aldrei lagt á hans herðar. Enn leið tíminn og ekkert bólaði á Tinnu. Logi litli þurfti að fá gleraugun sín sem eru alltaf geymd á baðherberg- inu. Steinari fannst skrýtið hvað hún var lengi þarna inni, fór að banka og uppgötvar síðan að hurðin er ekki læst heldur er einhver fyrirstaða. Hann náði loks að opna nógu vel til að sjá hana liggja á gólfinu með opin augun. Hann hringdi þá strax í 112 og sagðist halda að systir sín væri dáin.“ Þau hjónin dást að viðbrögð- um sonar síns þennan morguninn því hann gerði allt rétt. „Hann er að mörgu leyti vel tengdur en maður reiknar samt ekki endilega með því að hann bregðist við eins og annað fólk,“ segir Ingólfur Samúelsson, pabbi þeirra. Mötley Crüe í jarðarförinni Þeir eru ófáir blómvendirnir sem prýða stofuna að Rauðumýri 10 á Akureyri þegar blaðamann ber að garði, aðeins viku eftir að hjónin á heimilinu fylgdu dóttur sinni, Tinnu Ingólfsdóttur, til grafar þann 6. júní. Börnin á heimilinu kvöddu elstu systur sína hinstu kveðju og reyna nú að átta sig á því hvernig lífið á að halda áfram. Nokkur eintök af sálmaskránni eru enn á stofuborð- inu. Þau lög, ljóð og sálmar sem fluttir voru við jarðarförina voru mörg hver heldur óvenjulegt fyrir jarðarför; í sálmaskránni er textinn við lagið The Dark End of the Street úr kvikmyndinni The Commit- ments, ljóðið Krummi eftir Davíð Stefánsson, textinn við Home Sweet Home með glysrokksveitinni Mötley Crüe auk texta úr söngleikjunum Hárinu og Jesus Christ Superstar. Textavalið er samt einmitt dæmi- gert fyrir Tinnu því hún var engin venjuleg stelpa. Tinna var fædd 6. júlí 1992 og því 21 árs þegar hún varð bráð- kvödd. Hún vakti þjóðarathygli í kjölfar þess að hún skrifaði opinskáan pistil á vefinn Freyjurnar sem bar yfirskriftina „Ert þú ekki þessi stelpa?“ þar sem hún sagði frá því að drengir og menn sem hún treysti fyrir nektar- myndum af sér hefðu áframsent þær þannig að myndirnar fóru í almenna dreifingu á netinu. Með skrifum sínum sýndi Tinna fádæma hugrekki og tók mikilvægt skref í baráttunni gegn netníðing- um. Foreldrar Tinnu, þau Inga Vala og Ingólfur, ákváðu að koma í viðtal svo skömmu eftir andlát Tinnu til að halda baráttu hennar áfram. Pistill Tinnu hófst á orðunum „„Þú varst fyrir mis- notkun Tinna.“ Þetta sagði mamma mín við mig fyrir rétt rúmlega ári síðan. Mér hafði aldrei nokk- urn tímann dottið í hug að ég hefði orðið fyrir ein- hvers konar mis- notk- un. Ég Hún var þessi stelpa Tinna Ingólfsdóttir varð bráðkvödd á heimili foreldra sinna þann 21. maí. Tinna varð þjóðþekkt baráttukona eftir að hún skrifaði opinskáan pistil sem bar heitið „Ert þú ekki þessi stelpa?” þar sem hún sagði frá afleiðingum þess að nektarmyndum af henni var dreift í hennar óþökk. Tinna var lögð í einelti sem barn, átti í erfiðleikum með félagsleg samskipti og þráði þá viðurkenningu sem hún fékk fyrir að senda myndirnar. Foreldrar Tinnu eru afar stoltir af dóttur sinni og vonast til að hug- rekki hennar skipti sköpum þegar kemur að vitundarvakningu vegna ofbeldis á netinu. Hún skilaði skömminni á þann stað sem hún á heima. Síðasta myndin sem tekin var af Tinnu, sjálfsmynd sem hún tók tveimur dögum áður en hún lést, þar sem hún var að prófa nýju les- gleraugun sín. Framhald á næstu opnu 14 viðtal Helgin 20.-22. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.