Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 21
Orkuríkur áfangastaður
Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn.
Á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu er vatni til miðlunar safnað í uppistöðulón og
minni miðlunarmannvirki. Hvert lónið tekur við af öðru og á milli lónanna eru
sex aflstöðvar sem virkja orkuna sem býr í fallþunga vatnsins.
Búrfellsstöð er hluti af umfangsmiklu veitukerfi á svæðinu.
Þar er boðið upp á gagnvirka orkusýningu og skammt norður
af stöðinni eru fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar.
Myndin sýnir þversnið af Kaplan
hverfli í Búðarhálsstöð, nýjustu
aflstöð Íslendinga. Í stöðinni
vinna tveir slíkir hverflar rafmagn
úr miklu vatnsmagni við fremur
lága fallhæð.
Gagnvirk orkusýning í Búrfellsstöð er opin alla daga kl. 10-17.
Einnig tekur starfsfólk á móti gestum við vindmyllurnar norðan Búrfells
alla laugardaga í júlí kl. 13-17.
Jarðvarmasýning í gestastofu Kröflu er skemmtilegur áfangastaður fyrir
norðan. Þar er opið alla daga kl. 10-17.
Við Kárahnjúkastíflu tekur leiðsögumaður á móti gestum alla miðvikudaga
og laugardaga kl. 14-17.
Velkomin í heimsókn í sumar!
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
sorgmæddir í kringum hana og það er
eins og hún sé að reyna að peppa okkur
upp. Eitt það fyrsta sem hún sagði við
okkur var: „Ég er ekkert leið yfir því
að Tinna er dáin.“ Hún sagði það með
bros á vör eins og hún væri að fullvissa
okkur um að við þyrftum aldeilis ekki
að hafa áhyggjur af henni. Logi er við-
kvæmari og hann veltir mikið fyrir sér
hvað gerðist. Hann spyr hvort það hafi
liðið yfir hana, líkt og hann voni að hún
komi til með að vakna aftur, og hann
spyr líka hvort hún hafi fengið krabba-
mein,“ segir Inga Vala. Ingólfur segir
Loga enn spyrja mikið og bara fyrr um
daginn hafi hann spurt hvort Tinna hafi
lent í slysi. Inga Vala tekur fram að hún
hafi upphaflega sagt að frændi þeirra í
Svíþjóð hefði lent í lestarslysi því hún
vissi ekki hvað systir sín ætlaði að segja
sínum börnum.
„Ég treysti mér ekki strax til að út-
skýra fyrir 5 og 7 ára börnum sem
vita ekki hvað dauðinn er að einhvern
langi til að deyja. Frænka þeirra, jafn-
aldra Loga, var síðan alveg með þetta
á hreinu þegar þau komu hingað. Ég
heyrði krakkana tala um þetta og Logi
vildi fyrst ekki trúa því að hann hafi
gert þetta sjálfur því ég hafði sagt að
þetta væri slys. En auðvitað á maður að
vera hreinskilinn um dauðann við börn.
Þau finna alltaf þegar verið er að fela
hluti fyrir þeim.“
Jörðuðu börnin sín sama dag
Systursonur Ingu Völu, Emil Jón
Björnsson, var brenndur í Svíþjóð og
ákveðið með nokkrum fyrirvara að út-
för hans færi fram frá Akureyrarkirkju
þann 6. júní. „Fyrst að þau voru öll
að koma til Akureyrar á þessum tíma
ákváðum við að hafa útfarirnar sama
dag. Við ákváðum samt strax að hafa
tvær aðskildar athafnir þannig að þeir
sem væru að koma í jarðarför Tinnu
þyrftu ekki líka að vera við jarðarför
Emils sem þau þekktu ekki neitt, og
ekki síður öfugt. Það er alltaf gríðar-
lega erfitt þegar verið er að jarða svona
ungt fólk og maður vill ekki að fólk
þurfi að upplifa það oftar en það kærir
sig um. Það er vissulega dálítið einstakt
þegar svona gerist, að systur séu að
jarða börnin sín sama dag.“
Inga Vala og Ingólfur taka sérstak-
lega fram að þau vilja koma á framfæri
þakklæti til bæjarbúa á Akureyri, auk
allra ættingja, vina og jafnvel gamalla
skólafélaga, fyrir allan þann hlýhug og
ótrúlega stuðning sem þau hafa mætt.
Þau segja suma hafa haft orð á því hvað
þau hafi verið iðin við að fara út úr húsi
og mæta til að mynda við útskriftir
barnanna í skóla og leikskóla. „Við tók-
um meðvitaða ákvörðun um að hætta
ekki að lifa. En við vitum líka að þessir
dagar eru ekki endilega þeir erfiðustu.
Það eiga eftir að koma verri dagar þar
sem söknuðurinn verður yfirgnæfandi,“
segir mamma Tinnu. Það eiga eftir að
koma afmælisdagar, jól, fjölskylduvið-
burðir þar sem Tinna átti fast hlut-
verk. Algengt er að samfélagið reikni
með því að fjölskyldur séu komnar yfir
mestu sorgina eftir missi um ári síðar.
„Mögulega verður þetta enn erfiðara
þegar við hverfum aftur inn í fjöldann,
þegar hversdagurinn tekur við,“ segir
pabbi Tinnu. Nú einbeita þau sér að því
að boðskapur Tinnu lifi áfram.
„Þegar öllu er á botninn hvolft erum
við svo þakklát fyrir og stolt af henni
fyrir að hafa komist á þennan stað.
Hún náði að koma tilfinningum sínum
frá sér og hún skilaði skömminni á
þann stað sem hún á heima. Tinna átti
heilmikla vinnu eftir með sjálfa sig en
hún var byrjuð og hún var á réttri leið.
Það þurfti heilmikið til að koma henni
á þennan stað. Hún var dæmd, þetta
kostaði hana erfitt umtal, hún kom sér
upp kvíðasjúkdómi og þunglyndi, og
hún leitaði í fíkniefni. Hins vegar fékk
hún borgað til baka í heilmikilli reynslu
þó hún hafi ekki verið reynd á mörgum
sviðum. Hún var orðin svo mikil mann-
eskja með svo sterkan boðskap, og það
er það sem við viljum halda á lofti,“
segja þau.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
viðtal 21 Helgin 20.-22. júní 2014