Fréttatíminn - 20.06.2014, Qupperneq 27
bmvalla.is
Náðu í
iBókina
á bmvalla.is
og skoðaðu
vöruúrvalið.
Fegraðu
umhverfi
þitt
Góð ráð og frábært úrval
af hellum og hleðslusteinum
fyrir heimilið
og sumarbústaðinn
Landslags-
arkitektar
gefa góð ráð við
útfærslu hug
mynda og
veita að stoð við
efnisval.
VÍNARSTEINN VÍNARKER
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 141753
„Fastanefnd Íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum, undir stjórn Grétu
Gunnarsdóttur fastafulltrúa, hafði
unnið hörðum höndum að kynn-
ingu á framboðinu undanfarna
níu mánuði og mæddi mest á
Maríu Mjöll Jónsdóttur, sendi-
ráðsritara og kosningastjóra, sem
stóð sig frábærlega vel. Norður-
löndin stóðu saman að framboð-
inu sem gaf því aukinn styrk,“
segir Tómas. Alls á 21 dómari
sæti í hafréttardómnum og koma
þrír þeirra frá Vesturlöndum.
Stórt smáríki í hafréttar
málum
Sterk staða Íslands í hafréttarmál-
um sýnir að með réttum áherslum
geti smáríki náð góðum árangri
og sambærilegri stöðu og stór-
veldin á sumum sviðum, að sögn
Tómasar. „Það krefst forgangs-
röðunar og fórnum á öðrum svið-
um í staðinn því við getum ekki
látið til okkar taka alls staðar.“
Það er mat Tómasar að á sviði
hafréttar hafi Íslendingar verið
samkvæmir sjálfum sér og ekki
síst þess vegna hafi úrslitin í kjör-
inu orðið eins góð og raunin varð.
„Ísland hefur mjög sterka rödd á
þessu sviði og við höfum meðal
annars lagt ríka áherslu á rétt
strandríkja til að nýta allar lifandi
auðlindir hafsins með sjálfbærum
hætti. Aðrar þjóðir eru ekki alltaf
sammála okkur en við höfum
verið sjálfum okkur samkvæm
og notið virðingar fyrir það. Mér
er til dæmis ekki kunnugt um
að nokkurt ríki hafi ákveðið að
styðja okkur ekki vegna hval-
veiða.“
Aðstoð við þróunarríki
Á undanförnum árum hafa ís-
lensk stjórnvöld lagt æ meiri
áherslu á að miðla þekkingu sinni
á sviði hafréttar til fátækari ríkja
heimsins og segir Tómas þessa
þekkingu gríðarlega mikilvæga
fyrir hagsæld þeirra. „Fyrir mörg
þróunarríki getur jafnvel einn vel
menntaður einstaklingur á þessu
sviði gert kraftaverk.“ Mörg
þróunarríki eru í sömu sporum og
Ísland fyrir nokkrum áratugum
áður en yfirráð yfir fiskimið-
unum náðust og hafa ekki burði
til að hafa eftirlit með ólöglegum
veiðum erlendra skipa í sinni lög-
sögu. „Oft hafa fátæk ríki aðeins
efnahagslögsögu á pappírnum og
njóta ekki arðsins af auðlindum
sínum til fullnustu.“ Það sé sið-
ferðisleg skylda Íslendinga að
veita slíkum ríkjum aðstoð.
Tómas hefur undanfarin tólf ár
gegnt starfi forstöðumanns Haf-
réttarstofnunar Íslands og mun
sinna því áfram samhliða dómara-
starfinu. Hluti af því er kennsla
á hafréttarnámskeiði á Ródos á
Grikklandi ár hvert en stofnunin
styrkir bæði þátttakendur frá Ís-
landi og þróunarlöndum til náms
þar.
Óperan og þjóðaréttur
Tómas er óforbetranlegur Vals-
maður, stundar skógrækt af kappi
og er göngugarpur. Hann er sá
þriðji sem gegnir stöðu þjóðrétt-
arfræðings utanríkisráðuneytis-
ins. Frá árinu 1948 gegndi Hans
G. Andersen stöðunni, Guðmund-
ur Eiríksson tók við af honum árið
1980 og Tómas tók við keflinu
árið 1996 þegar Guðmundur var
kjörinn í hafréttardóminn til sex
ára.
Óperur eiga hug og hjarta Tóm-
asar og hefur hann um árabil átt
sæti í stjórn Íslensku óperunnar
og verið formaður Vinafélags
hennar. Svo skemmtilega vill til
að Guðmundur Eiríksson, forveri
Tómasar, átti einnig sæti í stjórn
Íslensku óperunnar. „Þegar ég
tók við af Guðmundi í utanríkis-
ráðuneytinu bað hann mig að taka
líka við af sér í Óperunni. Þessar
stöður hafa því fylgst að.“
Ástríða fyrir hafrétti
Hafréttur er ekki aðeins starf
Tómasar, heldur ástríða og hefur
hann lifað og hrærst á þeim vett-
vangi í yfir tvo áratugi. Að loknu
laganámi frá Háskóla Íslands árið
1988 starfaði hann í fjögur ár á
lögfræðistofu og gerðist með-
eigandi hennar. Lokaverkefnið
hafði hann skrifað undir leiðsögn
Guðmundar Eiríkssonar og það
kitlaði hann alltaf að sérhæfa sig
í þjóðarétti. Hann fór því til fram-
haldsnáms í Kaupmannahöfn
og Saarbrücken í Þýskalandi og
sérhæfði sig í Evrópu- og þjóða-
rétti. Að því loknu var hann ráðinn
til að taka þátt af Íslands hálfu í
úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem stóð með hléum í
tvö ár og segir Tómas þá reynslu
hafa jafnast á við framhaldsnám í
hafrétti. Síðan lá leiðin í utanríkis-
ráðuneytið þar sem hann hefur
unnið að mörgum af stærstu utan-
ríkismálunum eins og samninga-
viðræðum um afmörkun efna-
hagslögsögunnar og greinargerð
til landgrunnsnefndar Sameinuðu
þjóðanna um ytri mörk íslenska
landgrunnsins utan 200 sjómílna.
Tómas hefur jafnframt gegnt
mikilvægum verkefnum fyrir
ráðuneyti sjávarútvegsmála og
var aðalfulltrúi Íslands í Alþjóða-
hvalveiðiráðinu og aðalsamninga-
maður Íslands í makríldeilunni
í nokkur ár. Hann kveðst sáttur
við að hafa staðið fast í lappirnar
í þeim erfiðu málum þrátt fyrir
þrýsting úr ýmsum áttum.
Unnusta Tómasar er Fernanda
Millicay og deila þau áhuga á haf-
rétti því hún er lögfræðingur hjá
fastanefnd Argentínu hjá Samein-
uðu þjóðunum en þau kynntust í
gegnum störf sín á sviði hafréttar.
Sjávarútvegurinn og ESB
Ekki er hægt að ljúka samtal-
inu án þess að spyrja Tómas út
í aðildarviðræður við ESB en
hann gegndi stöðu varaformanns
samningahóps um sjávarútvegs-
mál. Tómas segir þessi mál við-
kvæm. Hann leggur þó áherslu
á að það megi ekki gleymast að
Íslendingar hafi lagt mikið á sig
til að tryggja yfirráð yfir fiskimið-
unum í kringum landið, þorska-
stríð hafi verið háð og fulltrúar
landsins tekið virkan þátt í haf-
réttarráðstefnunni á sínum tíma.
„Þessi yfirráð tryggðu efnahags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar. Þó að
hinum efnahagslegu stoðum hafi
sem betur fer fjölgað er sjávarút-
vegurinn gríðarlega mikilvægur
og þýðing hans sérstaklega mikil
þegar kreppir að. Ef til aðildarvið-
ræðna kemur einhvern tímann í
framtíðinni tel ég afar mikilvægt
að Íslendingar standi í lappirnar
í sjávarútvegsmálum og geri það
að fortakslausri kröfu að halda
óskertum fullveldisrétti yfir efna-
hagslögsögunni.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
viðtal 27 Helgin 20.-22. júní 2014