Fréttatíminn - 20.06.2014, Qupperneq 34
Hátún 6a • 105 Rvk • Sími: 552 4420 • fonix.is
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
F yrir einhverjum öldum þóttu þeir mikil karlmenni sem háðu bardaga og slógust við mann og annan. Í dag þykja þeir sem slást og fara í stríð ósköp litlir menn.
Við fyrirlítum stríð og oft er talað um að þeir sem
standa í stríðsrekstri séu valdagráðugir menn í
mikilli tilvistarkreppu í bland við mikilmennsku-
brjálæði. Um miðja tuttugustu öldina þóttu her-
menn vera mikil karlmenni, vissulega voru þetta
hugrakkir menn sem sendir voru af yfirvöldum
eitthvert út í heim til þess að berjast fyrir ein-
hverju sem þeim var sagt að væri að gera eitthvað
á hlut þjóðar sinnar. Í dag eru þetta nánast ungir
drengir sem í rauninni hafa ekki fengið tækifæri
til þess að byrja eigið líf þegar þeir eru sendir
á einhverjar vígstöðvar einhversstaðar þar sem
enginn finnur þá, og maður finnur til með þeim.
Upp úr 1980 komu fram á sjónarsviðið ungir
menn sem unnu með peninga. Unnu með verð-
bréf, fasteignir, skuldabréf og oft á tíðum með
auðtrúa fólk sem vildi græða peninga. Þetta voru
karlmenni sem áttu nóg af seðlum, glæsilega bíla,
kampavín, kavíar og konur, nóg af þeim. Þetta
voru karlmenni.
Eftir hrun telst þetta ekki til karlmennsku.
Þessar týpur eru fyrirlitnar og hataðar af mörg-
um í þjóðfélaginu. Þessir menn standa fyrir alls-
konar neikvæðum hlutum og eru holdgervingar
alls þess sem fór úrskeiðis á landinu bláa. Hér á
Íslandi þótti fyrir nokkrum árum karlmannlegt
að vera brúnn, lita á sér hárið, vera mikið í rækt-
inni og tala niðrandi um konur með stjórn-
málaskoðanir. Í dag, já í dag, eru ennþá nokkuð
stór hópur sem er enn í þessari kreðsu. Þeir hafa
að vísu elst um 15-20 ár. Þeir fara enn í ljós, þeir
sem eru ekki búnir að missa hárið eru enn að lita
það, og enn er hópur sem talar niður til kvenna
sem dirfast að hafa skoðanir. Eina vandamál
þeirra er það að þeir sem taka mark á þeim eru
yfirleitt unglingar sem vita ekki hvaða skoðun á
að mynda sér.
Karlmennska fyrri ára þar sem menn eins og
Humphrey Bogart, Steve McQueen og Dean
Martin báru höfuð og herðar yfir aðra bræður
sína, er komin aftur. Þó með smá grófleika. Þessi
týpa er klassísk og virðist ætla að lifa af, alveg
sama hvað hefur gengið á í tískustraumum í
gegnum árin. Í dag eru grófar útgáfur vinsælar,
menn eins og ítalski knattspyrnumaðurinn Andr-
ea Pirlo, fatahönnuðurinn Tom Ford og leikarinn
Daniel Craig. Metro útlit manna eins og Cristiano
Ronaldo nær einhvernveginn ekki að halda í við
karlmennskuútlit þeirra fyrrnefndu og meira að
segja eru margir á því að menn eins og leikarinn
Jack Black séu karlmannlegri en margir þessir
stelpulegu metro-menn. Hér á landi vilja kon-
ur menn með mikinn karakter, menn sem hafa
dularfullt yfirbragð og eru góðir í því sem þeir
gera. Leikarinn Ólafur Darri er gott dæmi um
nútíma karlmennsku, sem og Baldur í Skálmöld,
sem lítur út eins og grískur guð þrátt fyrir að
hafa aldrei farið í ræktina.
Víkingurinn er farinn, hermaðurinn er farinn
og hippinn líka, bankamaðurinn og metro maður-
inn eru ekki vinsælir svo maður spyr sig. Hver er
kyndilberi karlmennskunnar í dag?
Í dag viljum við menn sem eru með rökhugsun,
getu og þor til þess að hafa skoðun og rökræða
ýmsu mál þjóðfélagsins á yfirvegaðan hátt. Lík-
amsbygging er ekki aðalatriði, heldur er það mik-
ilvægt að menn séu snyrtilegir og sjálfsöruggir
með sitt útlit, alveg burtséð lögun og stærð.
Þeir sem enn eru að raka líkamshár þykja ekki
karlmannlegir. Í dag þykir það mjög kynþokka-
fullt að vera með gott hár, eða góða skeggrót, og
að menn hafi vitsmuni til þess að snyrta rótina,
en þó ekki um of. En fyrst og fremst er karl-
mennskan huglæg. Í dag viljum við menn með
skoðanir, ekki endilega skoðanir á öllu, heldur
gáfaða menn. Menn sem eru listrænir. Menn með
skoðanir á samfélaginu og hvernig má bæta það.
Menn sem elska hamborgara og líka sushi. Menn
sem breytast ekki þó þeir keyri stóran bíl. Menn
sem kunna að fara með áfengi. Menn sem gefa
til góðgerðarmála. Menn sem elska konur. Menn
sem elska karla, og bara umfram allt góða gaura
sem elska börn. Það sem við karlmenn getum
tekið frá forverum okkar er þorið frá víking-
unum, stolt hermannanna, frjálslyndið frá hipp-
unum, kæruleysi útrásarvíkinganna og frá metro
manninum fáum við… tja ekki neitt. Húmorinn
höfum við svo í blóðinu og stolt er eitthvað sem
við Íslendingar eigum nóg af.
Karlmennskan er því mikil á Íslandi,
allavegana miðað við höfðatölu.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Leikarinn
Ólafur
Darri er
gott dæmi
um nútíma
karl-
mennsku,
sem og
Baldur í
Skálmöld,
sem lítur
út eins og
grískur guð
þrátt fyrir
að hafa
aldrei farið
í ræktina.
Grófa týpan eða
metro maðurinn
Karlmennska er
eitthvað sem allir
karlmenn keppast
við að sýna. Hver
er karlmannlegur?
Hvað þarf maður
að sanna til þess
að teljast karl-
mannlegur – og af
hverju?
34 karlmennska Helgin 20.-22. júní 2014