Fréttatíminn - 20.06.2014, Qupperneq 37
bakki. Rauð lína á myndinni sýnir þeg-
ar nokkrir sentimetrar eru í að öku-
maður klessi á. Útvarpið er hægt að
stilla á snertiskjánum en ég var ekki
eins hrifin af þeirri útfærslu og kann
betur við gamaldags aðferðina þegar
raunverulegir takkar eru hlið við hlið
svo hægt sé að skipta um útvarpsstöð
án þess að kíkja á tækið. Það er mjög
erfitt að fikta í snertiskjá án þess að líta
á hann. Þess má þó geta að í RAV4 er
hægt að skipta um útvarpsstöð í stýr-
inu, hækka og lækka og skipta á milli
útvarps, geislaspilara, Bluetooth og
USB og mæli ég eindregið með því að
nota þá aðferð þegar bíllinn er á ferð
og útvarpsdagskráin ekki spennandi.
Loftkælingunni í framsætum er skipt
á milli ökumanns og farþega svo hvor
getur stillt fyrir sig sem líklega gæti
komið í veg fyrir ósætti.
Farangursgeymslan er 547 lítra og
virkilega vel útfærð og vel afmörkuð frá
aftursætunum með hlera og stöngum.
Geymslan var líka í passlegri hæð svo
auðvelt er að raða í hana. Hlerinn er
rafstýrður svo ekki þarf annað en ýta
honum niður um nokkra sentimetra
eða ýta á einn takka og þá lokast hann.
Það er alltaf gaman þegar bílar koma
á óvart með tækni sem maður vissi
ekki af en það gerði RAV4 á akstri undir
mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæð-
inu þegar bílinn jók lýsingu í mæla-
borðinu á meðan ekið var í myrkri. Þá
voru ljósin á Auto stillingu sem þýðir
að Led dagljósin eru alltaf á en bíllinn
kveikir sjálfur á aðalljósum og ljósum
í mælaborðinu þegar dimmir. Best af
öllu fannst mér þó barnalæsingin því
hún var mjög einföld; takki og við hann
áberandi mynd af barni. Svei mér þá,
ég held að þetta hafi verið í fyrsta sinn
sem ég á ekki í vandræðum með að
finna takkann fyrir barnalæsinguna.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
ReynsluakstuR RaV4 GX Plus Dísil
Skemmtilegur á mölinni
bílar 37
Toyota RAV4 er lipur og
skemmtilegur smájeppi fyrir
fjölskylduna á ferðinni innan-
bæjar sem utan. Hann er bú-
inn sniðugri bakkmyndavél,
rúmgóðri farangursgeymslu
með rafdrifnum hlera og
ýmsu öðru.
t oyota R AV4 er virkilega rúmgóður og skemmtilegur fjölskyldubíll. Bíllinn er stór
en samt ekki of stór svo þægilegt er
að keyra á honum í þéttbýli sem og í
minniháttar torfærum. Við reynslu-
aksturinn lá leið okkar í Krísuvík
þar sem við stilltum á „sport-takk-
ann“ þegar á malarveginn var kom-
ið. RAV4 er með nýja sportstillingu
sem gerir kleift að nýta snerpu og
lipurð bílsins til hins ýtrasta.
Verð bílsins er um fimm og hálf
milljón króna. Fyrir flesta er það
dágóð summa en í samanburði við
aðra nýja bíla verður það að teljast
nokkuð hagstætt. Losun koltvísýr-
ings RAV4 er 137 g/km og því er
afsláttur af vörugjöldum sem ríkið
innheimtir. Eftir því sem losun kol-
tvísýrings ökutækja er meiri því
hærri vörugjöld eru innheimt svo
ökumenn sem kjósa umhverfisvæna
bíla fá smá verðlaun.
Á miðju mælaborðinu er snert-
iskjár þar sem meðal annars er
hægt að stilla útvarpið og fá hjálp
við að bakka því í bílnum er hin fín-
asta bakkmyndavél. Mér fannst hún
mjög sniðug og nýtti hana í hverju
Þægileg sæti
Bakkmyndavél
Rúmgóð farangurs-
geymsla
Sparneytinn
Útvarp með snertiskjá
Háir gluggar hjá aftur-
sætum
Helstu upplýsingar
RAV4 GX Plus Dísil
Beinskiptur, 5 dyra
Vél 2,0 D4D
Hestöfl 124
Gírar 6
Eyðsla: 7,2 l/100 km.
Co2 137 gr/km
Lengd: 4.570 mm
Breidd 1.850 mm
Hæð: 1.660 mm
Farangursrými: 547 l.
Verð frá 5.440.000 kr.
Toyota RAV4 er með nýrri sportstillingu svo hægt er að nýta snerpu og lipurð til hins
ýtrasta. Farangursgeymslan er stór, vel útfærð og afmörkuð frá aftursætunum með hlera
og stöngum. Ljósmynd/Hari.
Loftkælingin er tvískipt svo ökumaður og
farþegi stilla hvor fyrir sig. Ljósmynd/Hari.
Helgin 20.-22. júní 2014