Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 42
42 heilsa Helgin 20.-22. júní 2014
Heilsa Börn ekki síður en fullorðnir græða á því að stunda jóga
fjölmiðlar erna indriðadóttir opnar nýjan vefmiðil
Auka jógakennslu
í grunnskólum
Jógahjartað hefur umsjón með jógakennslu sem hefst í tveimur grunnskólum á Akureyri haust.
Þegar hafa liðsmenn Jógahjartans kennt jóga við þrjá aðra grunnskóla, og standa viðræður yfir
við tvo til viðbótar. Átta mæður og jógakennarar standa að Jógahjartanu og er markmiðið að
veita börnum og unglingum aðgang að jógakennslu innan skólakerfisins.
É g er búin að kenna jóga í Hörðuvallaskóla í tvö ár í dægradvöl. Eftir tíma var
ég alltaf að rekast á börn sem
vildu líka fara í jóga og fékk hug-
mynd að því að stofna félag með
nafninu Jógahjartað í því skyni að
gera jógakennslu í grunnskólum
markvissari,“ segir Arnbjörg Kristín
Konráðsdóttir jógakennari. Hún
leitaði til annarra jógakennara og
spurði hvort þeir myndu vilja vera
með í verkefninu og úr varð að átta
jógakennarar og mæður stofnuðu
styrktarfélagið Jógahjartað í árs-
byrjun sem hefur það að markmiði
að veita börnum og unglingum að-
ganga að jógakennslu og hugleiðslu
innan skólakerfisins.
Sem einstaklingar hafa með-
limir Jógahjartans kennt jóga við
Hörðuvallaskóla, í nokkrum skólum
á Akureyri, Selfossi og í Reykjavík.
Í haust bætast tveir nýir skólar í
hópinn, Glerárskóli og Lundarskóli
á Akureyri. Viðræður standa yfir
við tvo skóla á höfuðborgarsvæðinu
til viðbótar og skýrist staðan betur
með haustinu. „Til að byrja með ein-
beitum við okkur að fyrsta til fjórða
bekk. Þetta hefur farið mjög vel af
stað. Sumir skólar leggja áherslu á
að vera heilsueflandi og vilja gjarnan
fara þessa leið í sínu starfi. Skóla-
stjórnendur þar eru áhugasamari en
skólar sem leggja ekki lykiláherslu
á að vera heilsueflandi. Viðtökurnar
sem við höfum fengið eru mjög
góðar og fjöldi foreldra hefur fagnað
framtakinu sem við höfum hitt og
eins á facbook síðunni okkar,“ segir
Arnbjörg.
Jógahjartað er styrktarfélag sem
er rekið á styrkjum og sjálfboðaliða-
starfi. Í menningarhúsinu Hofi á Ak-
ureyri var haldið fjölskyldujóga þar
sem þátttökugjald rann til kennslu-
verkefnisins í grunnskólum. Á dög-
unum var haldið fjölskyldujóga í Við-
ey þar sem gerðar voru jógaæfingar,
hugleitt, dansað, sungið og farið í
leiki, og rann þátttökugjald einnig til
verkefnisins. „Eftir Viðeyjarferðina
bættust svo tveir karlkyns jógakenn-
arar í hópinn sem er frábært og þeir
eru mjög flottar fyrirmyndir,“ segir
Arnbjörg. Á þjóðhátíðardaginn var
Jógahjartað loks með fjölskyldujóga
í Jógasal Ljósheima þar sem félagið
kynnti starfsemi sína. Í sumar verða
síðan haldin jóganámskeið fyrir
börn, dagana 30. júní til 3. júlí, og
eru nánari upplýsingar um þau á vef
Jógahjartans, jogahjartad.com.
„Við viljum einnig vera með kynn-
ingartíma og námskeið fyrir grunn-
skólakennara þar sem við kynnum
starfið og er velkomið að hafa sam-
band við okkur og fá heimsókn í
fræðsluskyni.“
Arnbjörg segir að jógakennsla í
grunnskólum falli vel að aðalnám-
skrá þar sem heilbrigði og velferð
eru einn af sex grunnþáttunum.
„Hugleiðsla stuðlar að meiri hug-
arró, betri eftirtekt og gerir okkur
tilbúnari til að takast á við amstur
dagsins. Hugleiðsla er skemmtileg
leið til að taka til í huganum. Hún
fækkar ágengum hugsunum og
hjálpar okkur að ná betra tilfinn-
ingajafnvægi.“
Öllum er velkomið að gerast fé-
lagar Jógahjartans og styrkja starfið
í leiðinni.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
„Jóga og hugleiðsla stuðla að meiri hugarró, betri eftirtekt og gerir okkur tilbúnari til að takast á við amstur dagsins,“ segir
Arnbjörg jógakennari. Ljósmyndir/Jógahjartað
Um 80 manns komu saman í Viðey þann 7. júní til styrktar Jógahjartanu.
Eftir Viðeyjar-
ferðina bættust
svo tveir karlkyns
jógakennarar í
hópinn sem er
frábært og þeir
eru mjög flottar
fyrirmyndir.
Erna
Indriða-
dóttir hefur
starfað við
fjölmiðla
í áratugi.
Síðustu átta
árin var hún
upplýsinga-
fulltrúi
Alcoa
Fjarðaráls
en hefur
nú opnað
vefinn Lifðu
núna þar
sem fjallað
er um mál-
efni fólks á
miðjum aldri
og upp úr.
Fjallar um líf og störf eldra fólks
e rna Indriðadóttir opnaði vefinn Lifðu núna á dögunum þar sem fjallað er um málefni fólks á
miðjum aldri og upp úr. Hugmyndina
að vefnum fékk hún fyrir nokkrum
árum. Nú eru fjölmennustu árgangar
Íslandssögunnar að eldast og er mark-
miðið með vefnum að gera líf og störf
þess fólks sýnilegri. „Fólk lifir lengur
og er við betri heilsu. Jafnvel þó fólk sé
hætt að vinna er það að gera ótrúleg-
ustu hluti. Svo er algengt að þegar fólk
hættir að vinna taki það sér eitthvað
nýtt fyrir hendur. Það eru margar út-
gáfur af lífinu sem betur fer,“ segir hún.
Á vefnum, www.lifdununa.is, verður
umfjöllun um réttindamál þessa aldurs-
hóps sem Erna segir mikilvægt að gefa
meiri gaum. „Réttindamálin eru gríðar-
lega mikilvæg, bæði fyrir fólk sem enn
er á vinnumarkaði og það sem komið er
af honum. Þegar fólk eldist breytist svo
margt; lífið, líkaminn, hugsunarhátt-
urinn og síðast en ekki síst félagslegar
aðstæður,“ segir hún.
Vefinn tileinkar Erna móður sinni,
Kristínu Guðnadóttur, og er það vel
við hæfi því þó hún sé komin vel á
níræðisaldur er hún hlaupandi um
bæinn, sundkona mikil og leggur stund
á enskunám. „Hún er ótrúlega virk
kona við góða heilsu og hefur verið mín
fyrirmynd og hvatning í lífinu og því
gaman að geta tileinkað henni vefsíð-
una.“
Erna hefur starfað við fjölmiðla í
áratugi en síðustu átta árin var hún
upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaráls á
Reyðarfirði. Um síðustu áramót lét hún
af störfum þar og er nú flutt til Reykja-
víkur. Hún segir tímann fyrir austan
hafa verið dásamlegan en jafnframt að
gott sé að vera komin á höfuðborgar-
svæðið þar sem börnin hennar og fjöl-
skyldan eru búsett. -dhe
Föstudagspizzan
Pizza sælkerans
er bökuð úr Kornax brauðhveitinu
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM