Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 44
E sjuhlaupið fer fram á morgun, laugardag, og geta keppendur valið um að hlaupa tvær, fimm
eða ellefu ferðir upp og niður Esjuna.
Samkvæmt veðurspánni verður full-
komið hlaupaveður; skýjað og logn.
Esjuhlaupið er eitt erfiðasta hlaup
ársins og er nú haldið í þriðja sinn.
Síðustu tvö ár hefur það verið valið
besta hlaup ársins af hlaupurum.
Fjallahlaup er ný íþróttagrein sem
nýtur æ meiri vinsælda. Sigurður
Kiernan er einn skipuleggjenda Esju-
hlaupsins og segir hann fjallahlaup
sambland af hlaupi og fjallgöngu sem
fari mun betur með liðamót en götu-
hlaup. „Í fjallahlaupi er hlaupið í sí-
breytilegu umhverfi þar sem bæði er
mjúkt og gróft undirlag. Það fer síður
illa með hné og liði því höggin eru
misjöfn en ekki einsleit líkt og við
götuhlaup. Úti í náttúrunni er maður
líka alltaf að sjá og upplifa eitthvað
nýtt,“ segir hann. Sjálfur hljóp hann
tíu ferðir upp og niður Esjuna fyrir
tveimur árum en ætlar að einbeita
sér að umsjón hlaupsins í ár.
Nú þegar eru um níutíu hlauparar
búnir að skrá sig til leiks og ætla þeir
flestir að hlaupa tvisvar sinnum upp
Esjuna. Að sögn Sigurðar eru flestir
sem ganga upp Esjuna og skokka svo
niður, nema þeir allra hörðustu sem
hlaupa líka á leiðinni upp. Hlaupið
hefst við Esjurætur og í byrjun er
hlaupinn lítill hringur þar í skógin-
um. „Það er gert til að hlaupararn-
ir fái smá hvíld á jafnsléttu áður en
klifrið byrjar.“ Á uppleiðinni er farin
stysta leiðin að Steini. Á leiðinni nið-
ur er svo farin aðeins lengri leið sem
ekki er eins brött.
Hvað búnaðinn varðar er gríðar-
lega mikilvægt að hlauparar í Esju-
hlaupinu séu í sérstökum skóm til
fjallahlaupa en ekki í hefðbundnum
skóm fyrir götuhlaup. „Götuskór
eru of mjúkir og sléttir. Utanvega-
skór eru aftur á móti grófbotna svo
hlauparar ná betra gripi. Þeir eru
líka harðir svo fólk meiðir sig
ekki á oddhvössum steinum. Þá
eru þeir hertir að framan svo
ekki brotnar nögl þegar sparkað
er í stein. Leyfilegt er að vera með
göngustafi og segir Sigurður það
smekksatriði hvort hlauparar geri
það. „Með því að nota göngustafi
er hægt að minnka álag á bak og
fólk fær meiri stöðugleika,“ segir
Sigurður.
Við rætur Esju verður drykkjar-
stöð þar sem fólk getur geymt
sinn mat og sótt sér í hverri ferð.
Boðið verður upp á drykki, ban-
ana, súkkulaði og heita og salt-
mikla súpu til að vinna upp á móti
salttapi. Hlauparar eru hvattir til
að hafa með sér vatnsbrúsa og
orku upp á Esju, eins og prótein-
stykki og gel.
Keppnisgögn verða afhent í
versluninni TRI við Suðurlands-
braut í dag, föstudag. Þeir hlaup-
arar sem enn eiga eftir að skrá sig
geta gert það þar í dag.
Nánari upplýsingar má nálgast
má nálgast á vef hlaupsins www.
mtesjaultra.is
44 heilsa Helgin 20.-22. júní 2014
Hlaup Eitt Erfiðasta Hlaup ársins
Samstarf á fjöllum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn er
20 ára fyrirtæki sem sérhæfir sig
í útivistarferðum með túrista um
fjöll og firnindi. Eins og alþjóð veit
þá margborgar sig fyrir karla og
konur að vera vel útbúin svo snúa
megi ofan af íslensku hálendi með
alla fingur og tær. Svo það lukkist
hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn
og verslunin Íslensku Alparnir
hafið samstarf og munu því leið-
sögumenn og aðrir starfsmenn Ís-
lenskra Fjallaeiðsögumanna klæð-
ast m.a. Mount Equipment fatnaði
sem er sérhæfður til brúks við erf-
iðar íslenskar aðstæður auk þess
sem aðrar vörur verslunarinnar
verða notaðar til að kynna náttúru
Íslands fyrir innlendum og erlend-
um ferðamönnum.
Á myndinni má sjá frá vinstri Guðmund Gunnlaugsson og Hjört Þór Grjetarsson frá
Íslensku Ölpunum og Arnar Má Ólafsson og Elínu Sigurðardóttur og frá Íslenskum
Fjallaleiðsögumönnum kampakát með samninginn.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Verið velkomin í heimsókn!
Opið virka daga kl.10-18
Texas
Torino
Lyon
Sófar í öllum stærðum
30%
1 ÁRS AFMÆLI
Á BÍLDSHÖFÐA 18
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SÓFUM /SÓFASETTUM
*Í VÖLDUM ÁKLÆÐUM
Verð áður 333.900 kr.
frá 233.730 kr.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
BLAM (Stóra sviðið)
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða
Upphlaup á Esjunni
Esjuhlaupið verður á morgun, laugardag, þar sem hlauparar hlaupa tvær, fimm eða ellefu ferðir
upp og niður Esjuna. Hlaupið er eitt það erfiðasta en jafnframt talið það besta af hlaupurum.
Í fjallahlaupi er
hlaupið í síbreytilegu
umhverfi þar sem
bæði er mjúkt og
gróft undirlag.
Alltaf er góð stemning í Esjuhlaupinu og eru hlauparar sem aðrir hvattir til að koma og gera sér glaðan dag í fjallinu. Hlauparar
geta valið um að hlaupa tvær, fimm eða ellefu ferðir upp Esjuna.
Það er líka gríðarlega mikilvægt að
drekka nógan vökva á hlaupunum.
Þá er sniðugt að vera með léttan
bakpoka með vökvahólfi og slöngu
sem hægt er að súpa
úr á hlaupunum. Svo
er ekki verra að hafa
lítið hólf til að geyma
orkustöng eða banana
og bíllyklana.
CamelBak HydroBak bakpoki
geymir 1.5 lítra af vökva.
Verð 7.900 kr. í GÁP
Það mikilvægasta er að vera vel
skóaður í sérstökum fjallahlaupaskóm.
Skórnir þurfa að vera léttir og hrað-
skreiðir með góðri dempun en líka
sterkbyggðir með styrkingu í botni og
tánni því nóg er af steinum til
að reka sig í. Síðan þurfa
þeir að anda vel
og vera fljótir að
þorna.
Salomon S-Lab XT 5 Racing dömu
og herra.
Verð 29.995 kr.
Stillanlegir göngustafir veita góðan
stuðning í brattanum, bæði upp og
niður. Gott að hafa þá létta og auð-
stillanlega en jafnframt sterkbyggða.
Gabel Mont Blanc FI göngustafir
stillanlegir frá 66-144 cm.
Verð 11.995 kr. í Fjallakofanum
Fjallahlaup eru ekkert grín og það er
nauðsynlegt að vera vel græjaður.
Gömlu hlaupaskórnir duga skammt og
svo verður að passa að fá nægan vökva.
Hér eru 3 nauðsynlegir hlutir til að nota
þegar brunað er upp fjöll og firnindi á
tveimur jafnfljótum.
Nauðsynlegur bún-
aður í fjallahlaup