Þjóðlíf - 01.01.1988, Síða 9
• í musteri menntanna vinna námsmenn stundum sigra.
Borgaraflokkurinn:
Búiim okkur undir framboð
Enginn flokkur áframboös, segir Ásgeir Hannes.
Borgaraflokkurinn skipuleggursig um land allt
Lánasjóðurinn:_________________
Námsmenn
vinnasigur
Liösauki barst úr
menntamálaráöuneytinu
Enn einu sinni hefur slegið í brýnu á
milli námsmanna og meirihluta stjórnar
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Námsmenn fengu menntamálaáðhera,
Birgi Isleif Gunnarsson í lið með sér á
dögunum vegna þess að meirihlutinn
hallaði á rétt einstæðra foreldra.
Forsaga málsins er sú að síðastliðið haust
ákvað stjórn LÍN nýjar úthlutunareglur þar
sem meðlag greitt til einstæðra foreldra var
reiknað þeim til tekna og dregið frá lánsupp-
hæð þeirra.
Fulltrúar stúdenta í lánasjóðnum mót-
mæltu þessu ráðslagi og töldu vera lögbrot.
Stjórn Lánasjóðsins er þannig skipuð að
Síne, Stúdentaráð og BÍSN eiga þrjá fulltrúa
, þá Theódór Guðmundsson, Svanhildi
Bogadóttur og Kristin H. Einarsson . Vara-
menn þeirra eru Ólafur Darri Andrason,
Gunnlaugur Júlíusson og Kalmann De
Fontay.
Fulltrúar rikisvaldsins eru skipaðir af
menntamálaráðherra og fjármálaráðhera.
Peir eru Árdís Pórðardóttir, Sigurbjörn
Magnússon og Steingrímur Ari Arason en
varamenn þeirra eru Auðunn Svavar
Sigurðsson, Gunnar Jóhann Birgisson og
Halldór Árnason.
í ágreiningsefnum milli námsmanna og
ríkisvalds fara atkvæði yfirleitt þannig að um
jafntefli er að ræða 3 gegn 3, kemur þá til
atkvæði formannsins, sem látið er ráða.
Pessari skerðingu á lánum einstæðra
foreldra mótmæltu námsmenn köftuglega,
skerðingin næmi allt að 20% á láni og væri
aukinn heldur ólögleg, þarsem skýrt er
kveðið á um í lögum, að meðlag tilheyri
barni, ekki foreldri.
Tillögum námsmanna í stjóm LÍN um
lagaálit og leiðréttingu var vísað frá. Þá
sendu námsmenn Lagastofnun háskólans
beiðni um lögfræðiálit og voru þeir Sigurður
Líndal og Þorgeir örlygsson prófessorar
skipaðir til álitsgjafar. Lagastofnun komst að
þeirri niðurstöðu að ákvörðun stjórnarinnar
um breytingu á úthlutunarreglunum væri
ólögleg.
Með þetta álit í höndunum snem náms-
mannahreyfingarinnar sér til Birgis ísleifs
Gunnarssonar sem brá skjótt og vel við.
Námsmenn hafa nú krafist afturvirkrar
breytingar þannig að skerðingin verði bætt
frá upphafi, einstæðir foreldrar í hópi náms-
manna mega því vænta glaðnings frá ríkis-
valdinu fljótlega.
• Óskar Guömundsson
“Það er meðal helstu verkefna stjórnmála-
flokka að bjóða fram og þess vegna þarf það
ekki að koma nokkrum manni á óvart þó
Borgaraflokkurinn búi sig nú undir framboð
í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík eins
og öðrum sveitarfélögum um land allt",
sagði Ásgeir Hannes Eiríksson einn helsti
leiðtogi Borgaraflokksins í höfuðborginni í
samtali við Þjóðlíf. Þjóðlífi hefur borist
spurnir af starfsemi borgarmálaráðs flokks-
ins og munu tugir manna koma öðru hvoru
saman til skrafs og ráðagerða um borgarmál-
efni og væntanlegt framboð flokksins í borg-
inni 1990.
Borgaraflokkurinn er greinilega kominn á
stjá í borgarmálefnum og hefur t.d. tekið
eindregna afstöðu gegn ráðhúsinu í Tjörn-
inni. í stjórn "Borgaraflokksfélags Reykja-
víkur" eiga sæti: Þórir Lárusson, Auður
Jacobsen, Ingibjörg Helgadóttir, Magnús
Benediktsson,Ásgeir Guðlaugsson, Baldvin
Hafsteinsson, Friðrik Jónsson, Guðmundur
Finnbogason, Hulda Jensdóttir, Jóhann Al-
bertsson, Kristín Karlsdóttir, Nína Hjalta-
dóttir,Sigurður Þórðarson, Sveiney Sveins-
dóttir, Þorvaldur Sigurðsson, Guðrún Flosa-
dóttir, Gylfi Birgisson, Jón Gunnarsson,
Kristmann Magnússon, Margrét Hjartar-
dóttir, Rebekka Alvarsdóttir og Þuríður
Jónsdóttir.
Flokkurinn skipuleggur sig með nokkuð
hefðbundnum hætti og víða um land hefur
verið stofnað til félaga innan vébanda hans.
Skipulagið var staðfest á landsfundinum í
haust og hefur stjórnin komið reglulega
saman síðan. Þá hafa verið kosnar stjórnir
félaga í öllum kjördæmum.
í aðalstjórn flokksins eiga sæti Albert
Guðmundsson, Júlíus Sólnes og Ólafur
Granz . Formenn kjördæmisfélaganna
Gunnar Elíasson, Gunnar Sigurðsson, Hall-
dór Pálsson, Jóhanna Aðalsteinsdóttir,
Sigurður Hansen, Skúli B. Árnason, Val-
gerður Sveinsdóttir, Þórir Lárusson. Með-
stjórendur og varamenn í stjórn eru: Arndís
L. Tómasdóttir, Hilmar Haraldsson, Hörður
Helgason, Kristján Ingvarsson, Bjarni Jóns-
son, Guðríður Guðbjartsdóttir, Guttormur
Einarsson, Jóhanna Njálsdóttir og Þuríður
Haraldsdóttir. Auk þessara eiga aðrir þing-
menn flokksins, Aðalheiður Bjarnfreðsdótt-
ir, Guðmundur Ágústsson, Hreggviður
Jónsson, Ingi Björn Albertsson og Óli Þ.
Guðbjartsson seturétt á fundum aðal-
stjórnarinnar.
í Borgaraflokknum er auk þess fram-
kvæmdastjórn: Auður Jacobsen, Jóhann Al-
bertsson, Þórir Lárusson og Kristján
Ingvarsson. Flokkurinnn hefurskrifstofurað
Hverfisgötu í Reykjavik og er Hrönn Haf-
steinsdóttir skrifstofustjóri.
• Óskar Guömundsson
knattspyrnusnillingur
40 milljón króna trygging
Þegar Arnór Guðjohnsen var kjörinn
íþróttamaður ársins á dögunum krafðist
félag hans í Belgíu Anderlecht að hann
yrði tryggður fyrir 40 milljónir króna ein-
ungis á meðan á sólarhringsferð hans til
íslands stæði. Menn þurftu að hafa hraðar
hendur uppi á íslandi þarsem einungis
hálfur sólarhringur var til stefnu þegar
krafan kom frá Anderlecht. Það var hins
vegar Reykvísk endurtrygging sem gekk í
málið undir miðnætti aðfararnótt verð-
launadagsins og tókst að fullnægja kröf-
um Belganna...
9