Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 29.04.2010, Qupperneq 8
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR8 VÍKURFRÉTTIR EHF. Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222 Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Ellert Grétarsson, sími 421 0004, elg@vf.is Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Útlit, umbrot og prenvistun: Víkurfréttir ehf. Hönnunardeild Víkurfrétta: Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is Skrifstofa Víkurfrétta: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is 141 776 UM HV ERFISMERKI PRENTGRIPUR Sparisjóðurinn í Keflavík er orðinn í ríkiseigu. Yfir hundrað ára sögu sjóðsins í almannaeigu lauk í síð- ustu viku þegar hann var yfirtekinn af ríkinu. Rekstur sjóðsins hafði verið afar erfiður frá bankahruninu. Endurskipulagning á rekstr- inum fór út um þúfur þar sem samkomulag náðist ekki við lánadrottna bankans um 80% niðurfellingu krafna. Ýmsir tapa á falli Sparisjóðs- ins í Keflavík, ekki eingöngu stofnfjáreigendur. Lífeyris- sjóðurinn Festa gæti tapað hátt í 1,7 milljarði vegna þessa, staðfestir Kristján Gunnarsson, núverandi stjórnarformaður Festu. „Bókfærð eign Festu í Spari- sjóðnum í Keflavík um síð- ustu áramót er 241 milljón í skuldabréfum en stofnfjárbréf höfðu verið afskrifuð að fullu. Ef ekki fæst neitt upp í þessar eignir þá má búast við að þær tapist á þessu ári. Festa hefur fært niður eign sína í SpKef umtalsvert eða um 888,6 milljónir kr. í skuldabréfum og 712 milljónir kr. í stofnfé. Festa hefur líka fært niður eign sína í fleiri sparisjóðum s.s. Spron, Sp.Mýr og Byr en þar er einungis um skuldabréf að ræða,“ svaraði Kristján Gunnarsson þegar hann var inntur eftir því hversu stórt tap Festu væri vegna falls Sparisjóðsins í Keflavík. Hverjar verða afleiðingar þessa taps? Munu lífeyr- isréttindi verða skert enn frekar til viðbótar við þau 5% sem ákveðin voru á síðasta ársfundi Festu? „Ef kæmi til frekari afskrifta myndi það hafa óveruleg áhrif á afkomu sjóðsins árið 2010. Ávöxtun það sem af er þessu ári er góð og ef hún verður svipuð út árið erum við í góðum málum og munum vonandi ekki þurfa að skerða réttindi“. RÚV hefur eftir Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verka- lýðsfélags Akraness, að stjórnendur lífeyrissjóðsins, eigi að segja af sér. Hver eru þín viðbrögð við því? Kemur það til greina, ekki síst í ljósi þess að þú varst einnig stjórnarformaður SpKef á sama tíma? „Í tilvitnuðu viðtali við Vil- hjálm Birgisson talar hann um Lífeyrissjóðina í fleirtölu. Þar var einkum verið að fjalla um Gildi og LSR. Ég vil í þessu sambandi taka það fram að fjárfestingar okkar í Stofnfjárbréfum SpKef voru gerðar fyrir áratugum, enginn af núverandi stjórnarmönn- um var í stjórn þá. Sjóðurinn tók þátt í stofnfjáraukningu árin 2006 - 2007, en ef það hefði ekki verið gert hefði hlutur hans verið þynntur út. Hins vegar tók hluti af núverandi stjórn ákvörðun um að selja þriðjung af eign- inni og innleysti við það 400 milljón krónur í hagnað fyrir 2 árum. Skuldabréf sjóðsins á SpKef eru aðallega keypt á árunum 2001 – 2003. Síðan þá hafa bara verið sett innlán á innlánsreikninga sem við fallið eru tryggðir samkvæmt yfirlýsingu ríksstjórnar. Á ársfundi sjóðsins, sem hald- inn var 20. apríl síðastliðinn var tilnefnt í nýja stjórn. Til- nefning mín var samþykkt án mótatkvæða. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sat þennan fund og gerði ekki athugasemdir. Þess ber að geta í þessu sambandi að hér var um algjört kerfishrun að ræða við fall bankanna haustið 2008 en í kjölfar þess hafa mörg fyrirtæki farið í þrot. Þannig eru 65% stærstu fyrirtækja landsins árið 2007 gjaldþrota í dag. Þetta hefur haft mjög neikvæðar afleið- ingar fyrir lífeyrissjóðakerfið í heild sinni og hafa sjóðir þurft að skerða réttindi í framhald- inu. Réttindaskerðingar Festu lífeyrissjóðs hafa heldur verið í vægari kantinum í þeim samanburði,“ sagði Kristján. Festa tapar líklega 1,7 milljarði kr. á falli Sparisjóðsins í Keflavík „Ávöxtun það sem af er þessu ári er góð og ef hún verður svipuð út árið erum við í góðum málum og munum von- andi ekki þurfa að skerða réttindi“. - Kristján Gunnarsson stjórnarformaður Festu. Yfir 40 verkefni í Reykjanesbæ, stór og smá, voru kynnt á nýsköp- unarþingi í Reykjanesbæ sl. þriðjudag. Á þinginu voru kynnt stutt viðtöl við for- svarsmenn verkefna í bæn- um og er greinilegt að mik- il og fjölbreytt flóra verk- efna er í gangi í bænum. Meðal þeirra verkefna sem kynnt voru má nefna nýstárlega harðfiskfram- leiðslu, heilsusjúkrahús, sérkennilegt gistiheimili, víkingasmiðju, kísilvers- afurðir, tækifæri rafræns gangnavers, framleiðslu á skólamat, loðnuhrognaverk- smiðju, hugmyndafræði Ásbrúar, netfyrirtæki, list- dansskóla, tónlistarverkefni, líkamsrækt, húðvörufram- leiðslu, Latabæjar leikjagarð, ýmis forvarnarverkefni fyrir börn, kvikmyndaver, þekkingarþorpið kring- um Keili, gígagarð á Reykjanesi, o.s.frv. Að sögn Árna Sigfússonar bæjarstjóra var megintil- gangur ráðstefnunnar að varpa fram sýnishornum af hinni gríðarlegu fjölbreyttu flóru nýsköpunar sem á sér stað í bænum en ekki síður að leiða saman forsvars- menn þeirra og fleiri verk- efna, sem geti skapað sam- stæður eða klasa og þannig virkjað samtakamáttinn- „Við kusum að kalla þessa Litrík flóra fyrirtækja og nýsköpunar í Reykjanesbæ klasa þorp, eins og listaþorpið, heilsuþorpið, orku- og tækni- þorpið o.s.frv. Þetta eru þó aðeins lítil dæmi um þá flóru sem er til staðar, fjölmargir aðilar bíða kynningar á næstu ráðstefnu, sem við höldum í haust.“ segir Árni. Þá er meðal nýstárlegra framsetninga á ráðstefnunni að hægt verður að nálgast lýsingar forsvars- manna hugmyndanna sem kynntar voru á netinu, undir Reykjanesbaer.is/nyskopun

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.