Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Síða 10

Víkurfréttir - 29.04.2010, Síða 10
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR10 Við lifum á und- arlegum tímum og sannarlega merki- legum. Nú gefst okkur öllum tækifæri á að endurskoða líf okkar og hvað það er sem skiptir mestu máli. Mig langar að deila með ykkur í dag fallegri lífsins speki Cherokee indjána. Kvöld eitt sagði gamall Cherokee indjáni barnabarni sínu, ungum dreng, frá baráttu sem á sér stað innra með fólki. Hann sagði; „Sonur minn, baráttan er á milli tveggja „úlfa“ innra með okkur öllum. Annar er illur, það er reiði, öfund, afbrýðissemi, böl, eftirsjá, græðgi, hroki, sjálfsmeðaumkun, sektarkennd, gremja, minnimáttarkennd, lygar, falskt stolt og að vera fullur yfirlætis og eigin þörfum. Hinn er góður. Það er gleði, friður, ást, von, rósemi, auðmýkt, góðvild, góð- mennska, hluttekning, örlæti, sannleikur, samúð og trú.“ Drengurinn hugsaði sig um nokkra stund og spurði síðan afa sinn; „Hvor úlfurinn vinnur?“ Gamli indjáninn svaraði; „Sá sem þú nærir!“ HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA Húsavík-Mývatn-Aðaldalur Verð á mann í tveggja manna herbergi 46.900.- og eins manns 56.900.- Gisting á Fosshóteli Húsavík 3 nætur. Innifalið: 3 gistinætur, morgunmatur, kvöldverðir, söfn, súpur og kaffi og kvöldverður á heimleið.Grín og gaman. Skráning og upplýsingar á SBK í síma 420 6000 ekki seinna en 21. maí. Greitt við skráningu, má greiða með visa/euro Nánari upplýsingar hjá Oddnýju 6959474, Lella 4212177, Jórunn 4237601, Ragnheiður 4212236, Kristín 4268218 Geymið auglýsinguna. Sumarferð FEB 2010 verður farin 8. - 11. júní 2010 kl. 08:30 frá SBK Komið er að tímamótum í sögu Heilbrigð-isstofnunnar Suðurnesja. Starfsfólk skurðstofu hefur verið sagt upp störfum og taka uppsagnir gildi 1. maí. Starfsemi skurð- stofunnar hefur frá upphafi sögu sjúkrahúss- ins verið ríkur þáttur í þjónustu við íbúa svæðisins sem og annarra landsmanna. Á liðnum mánuðum hefur hópur fólks barist ötullega fyrir áframhaldandi tilvist skurð- stofunnar en þrátt fyrir allt verður skurðstof- unni lokað. Þessum einstaklingum sem og öllum þeim fjölmörgu einstaklingum og fjöl- skyldum sem notið hafa þjónustu skurðstof- unnar, viljum við sem nú látum af störfum þakka fyrir samfylgnina í gegnum árin. Það hefur verið okkur sönn ánægja að hafa notið samfylgdar ykkar og fengið að vinna í ykkar þágu í gegnum árin. Lifið heil Starfsfólk skurðstofu HSS Ásdís Johnsen, skurðhjúkrunarfræðingur Brynja Hjaltadóttir, sjúkraliði Guðrún Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur Margrét Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur Rut Þorsteinsdóttir, svæfingahjúkrunarfræðingur Sigríður Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur Svajunas Statkevicus, svæfingalæknir Þórunn A. Einarsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur Þeir sem aka um byggð-ina að Ásbrú hafa tekið eftir því að víða eru skurðir og jafnvel miklir efnisflutn- ingar. Nú er unnið að krafti við rafkerfisbreytingar en þeim á að vera lokið sam- kvæmt lögum í október á þessu ári. Verið er að leggja nýja rafstrengi í bygging- ar í efri hluta hverfisins að Ásbrú og rafvirkjar munu von bráðar þurfa að setja upp evrópskar rafmagns- töflur og skipta út öllum innstungum og ljósum í hverri einustu byggingu á svæðinu, þar sem ekki er komið rafmagn samkvæmt íslenskum stöðlum. Aðrar jarðvinnuframkvæmd- ir eru einnig á svæðinu en þær miða að því að ganga frá gömlum sorphaugum Varn- arliðsins. Þar þarf að flytja til mikinn jarðveg. Þegar ekið er eftir Grænásbrautinni má sjá mikla efnistöku neðan við gömlu vöruskemmur NEX, þar sem nú er verið að setja upp gagnaver Verne Global. Þaðan er verið að taka mold en síðan verður gengið frá svæðinu og sáð í það að nýju. Starfsfólk skurðstofu kveður Miklar jarðvinnufram- kvæmdir að Ásbrú

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.