Víkurfréttir - 29.04.2010, Side 14
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR14
Helstu verkefni:
- Almenn vinna á bifreiðaverkstæði.
- Minniháttar viðgerðir.
- Akstur á neyðarþjónustubíl.
- Svörun neyðarsíma.
- Akstur og ferjun bíla.
Almennar hæfnis- og þekkingarkröfur:
- Próf í bifvélavirkjun eða reynsla af viðgerðum.
- Bílpróf er skilyrði.
- Meirapróf er æskilegt.
- Enskukunnátta skilyrði.
Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hreint sakavottorð.
25 ára lágmarksaldur.
Starfsmaður verður staðsettur í Reykjavík yfir
sumartímann en yfir veturinn í Keflavík.
Starf á verkstæði
ALP bílaleiga leitar að starfsmanni á
verkstæði á starfsstöð sína í Keflavík
Umsóknir sendist á atvinna@alp.is.
Umsóknarfrestur er til 9. maí 2010.
Áætlað að starf heist í maí.
Alp er umboðsaðili AVIS og BUDGET á Íslandi.
AVIS og BUDGET eru staðsett víðs vegar um heiminn með
starfsstöðvar í yr 160 löndum.
Er með móttöku í Apóteki Lyf og Heilsu
Suðurgötu 2, Reykjanesbæ.
Tímapantanir í síma 421 3200.
Frá klukkan 9:00 -18:00 virka daga.
Guðni Arinbjarnar
Sérfræðingur í
bæklunarskurðlækningum
Meiraprófsnámskei
Suðurnesjamenn athugið!
Námskeið til aukinna ökuréttinda hefst í Garði
mánudaginn 3. maí nk. kl. 18:00
ATH! Síðustu forvöð að öðlast aukin
ökuréttindi á lægra verði!
Verkalýðsfélög greiða allt að 100 þúsund kr. af kostnaði
Vinnumiðlanir greiða allt að 70 þúsund kr. af kostnaði
Skráning í símum 892 6570, 892 6571 og 822 2908
Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða
SÖNGLISTIN BLÓMSTRAR Á SUÐURNESJUM
Senn líður að vortónleik-um Karlakórs Keflavík-
ur. Fyrstu tónleikar kórsins
verða í Samkomuhúsinu í
Sandgerði miðvikudaginn
5. maí og í Hljómahöllinni
(Stapa) fimmtudaginn 6.
maí og þriðjudaginn 11.
maí. Allir tónleikarnir hefj-
ast kl 20:30. Kórinn mun
flytja ný verk í bland við
eldri klassísk karlakórslög.
„Það má segja að söngskrá
kórsins sé um margt metn-
aðarfull. Auk þess að vera
með dagskrá af klassískari
toga hefur kórinn fengið
íslensk tónskáld til að semja
fyrir sig 4 ný verk sem verða
frumflutt á tónleikunum“
segir Guðlaugur Viktorsson
stjórnandi kórsins. Þarna eru
verk eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur og Báru Grímsdóttur
við ljóð Tómasar Guðmunds-
sonar og Páls Ólafssonar.
Einnig er kórinn að flytja
nokkur lög úr verki eftir
eistneska tónskáldið Veljo
Tormis við nýja íslenska texta
Viktors A. Guðlaugssonar.
Eftir vel heppnaða tónleika
með poppgoðum Suðurnesja
þar sem ákveðinn tónlistar-
kafli Suðurnesja var tekinn
fyrir var ákveðið að fá íslensk
tónskáld til liðs við kórinn
til að skrifa nýja tónlist fyr-
ir kórinn og því dagskráin
að stórum hluta helguð því.
Kórinn hlaut styrk frá Menn-
ingarráði Suðurnesja SSS árið
2008 til að fá skrifuð fyrir sig
ný verk. Á síðasta ári var svo
kallað eftir nýjum verkum
fyrir kórinn og brugðust tón-
skáld vel við kallinu og hluta
af þeim afrakstri má heyra
næstkomandi miðvikudag.
„Við lofum góðri skemmtun í
Sandgerði í næstu viku, flest-
ir tónlistarunnendur ættu að
finna í dagskránni eitthvað
við sitt hæfi. Kórinn er vel
stemmdur við undirleik val-
inkunnra hljóðfæraleikara.
Þar eru m.a. Vadim Fedorov
á harmónikku, Leifur Gunn-
arsson á bassa og Benedikt
Jónsson á klarinettu“ sagði
Guðlaugur kórstjóri að lok-
um.
Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur
Það verður nóg um að vera hjá Kvennakór Suðurnesja á næstunni, en kórinn mun
syngja á fimm tónleikum í maí. Kórinn
heldur vortónleika í Listasmiðjunni á Ásbrú
mánudaginn 3. maí og í Bíósal Duushúsa
miðvikudaginn 5. maí. Tónleikarnir hefjast
kl. 20 bæði kvöldin.
Kórinn mun flytja nokkur létt og skemmtileg
lög eftir Eirík Árna Sigtryggsson við ljóð Þór-
arins Eldjárns en auk þess verða flutt lög úr
óperum, dægurlög og kirkjuleg verk. Helgina
7. – 9. maí fer kórinn til Akureyrar þar sem
hann mun halda tónleika ásamt Kvennakór
Akureyrar í Laugaborg í Eyjafirði laugardag-
inn 8. maí kl. 17. Laugardaginn 15. maí
syngur kvennakórinn síðan á tónleikum í
Bíósalnum ásamt Átthagakór Strandamanna
og miðvikudaginn 19. maí tekur kórinn þátt
í minningartónleikum sem haldnir verða um
Siguróla Geirsson. Stjórnandi Kvennakórs
Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og
meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney
Bogadóttir. Miðaverði á vortónleikana er
stillt í hóf en það er aðeins kr. 1000 og verður
miðasala við innganginn.
Kvennakór Suður-
nesja með fimm
tónleika í maí
Sérstakur gestur á sunnudaginn í Keflavíkurkirkju er sr. Miyako Þórðarson, prestur heyrnarlausra. Hún mun túlka
það sem fram fer í guðsþjónustunni á táknmáli en heyrn-
arlausum og heyrnarskertum börnum (og fullorðnum auðvit-
að) er sérstaklega boðið til guðsþjónustunnar af þessu tilefni.
Sr. Erla Guðmundsdóttir stýrir helgihaldinu.
Guðsþjónusta á táknmáli
í Keflavíkurkirkju
AuGlýSinGASíminn
er 421 0001