Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Side 17

Víkurfréttir - 29.04.2010, Side 17
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 17VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 29. APRÍL 2010 „Við deyjum öll úr stressi“ Þriðjudaginn 4. maí nk. kl. 18:00 mun Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun koma á sal Fjölbrautaskólans við Sunnubraut og flytja fyrirlesturinn „Við deyjum öll úr stressi“ . Í þessum klukkustunda fyrirlestri verður farið yfir fyrirbærið streitu á fræðilegan og léttan og samkvæmt sumum örugglega óábyrgan hátt. Skoðað verður hvernig stressuð þjóð sem ekki er viðbjargandi getur brugðist við og slakað á. Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja býður velkomna foreldra og aðra velunnara skólans á þennan skemmtilega fyrirlestur. Frítt inn og allir velkomnir kveðja, Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja LJÓSMYNDAMARAÞON Stofn-aður hefur verið minning- arsjóður í nafni Guð- mundar Kristins Steinssonar sem lést af slysförum þann 17. apríl sl. til styrktar Handknatt- leiksfélagi Reykjanesbæjar og er þeim sem vilja minn- ast hans og stuðla þannig að frekari uppbyggingu handboltans í Reykjanesbæ bent á reikning hjá Íslands- banka nr. 542-14-400005, kt. 450908-0370. Útför Guðmundar verður gerð frá Keflavíkurkirkju fimmtudag- inn 29. apríl kl. 13:00. Minningarsjóður í nafni Guðmundar Kristins Steinssonar Pétur Darri Pétursson og Unnnur María Steinþórsdóttir hlutu aðalverðlaunin í Ljósmyndamaraþoni sem Bókasafn og Byggðasafn Reykjanesbæjar efndu til í tilefni Barnahátíðar. Sýning hefur verið opnuð í Kjarna á innsendum myndum og stendur hún yfir til sunnudagsins 2. maí. Söfnin tvö efndu til ljósmyndamaraþons fyrir grunnskólabörn í 5. - 10. bekk. Þátttakendum var skipt niður í tvo hópa, 5. - 7. bekk og 8. - 10. bekk og fengu þeir þrjú þema til að vinna með en þau voru „Hafið“, „Bærinn minn“ og „Lestur er lífstíll“. 5. - 7. bekkur Pétur Darri Pétursson (aðalverðlaun) Andri Snær Sölvason Laufey Rún Jónsdóttir Ugne Norkeviciute 8. - 10. bekkur Unnur María Steinþórsdóttir (aðalverðlaun) Brynjar Freyr Gunnlaugsson Joanna Katarzyna Kraciuk Vala Rún Pétursdóttir í Reykjanesbæ: Pétur Darri og Unnur María sigurvegarar Ljósmyndasýning með afrakstri ljósmyndamaraþonsins hefur verið sett upp í Kjarna.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.