Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 29.04.2010, Qupperneq 22
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR22 MANNLÍFIÐ BLÓMSTRAÐI AÐ ÁSBRÚ Á SUMARDAGINN FYRSTA Á sumardaginn fyrsta var opinn dagur á Ásbrú. Fyrirtæki á svæðinu tóku höndum saman og kynntu starfssemi sína. Gríðarlegur fjöldi heimsótti svæðið og sannarlega var mikið um að vera. Strax um hádegi byrjaði fólk að streyma að og eftir því sem leið á daginn jókst umferð- in. Um tíma má segja að hafi verið örtröð á Ásbrú – slík var umferðin. Með samstilltu átaki allra aðila tókst þó að greiða vel úr og var ekki annað að sjá en fólk væri ánægt með það sem í boði var. Bylgjan var með beina útsendingu úr Keili. Fjölmargir af höfuðborg- arsvæðinu renndu suðureftir og þá létu Suðurnesjabúar sig ekki vanta. Mikill áhugi virtist á námi Keilis og hinum rómuðu íbúð- um á Ásbrú. Fjölskyldurat- leikurinn teygði anga sína um Ásbrúarsvæðið með góðri þátttöku og góða vinninga í boði. Söguferðir með SBK um Ásbrú hrifu marga sem aldrei höfðu komið inn á þetta svæði áður. Baseball félög af höf- uðborgarsvæðinu tóku fyrstu æfingu ársins utandyra, forn- bílar spókuðu sig við Top of the Rock, Landhelgisgæslan „bjargaði“ flugfreyjum Keil- is með þyrlu. Nýju vélmenni Keilis voru kynnt, efnafræð- ingur bjó til „kreppusælgæti“ og fjölmörg fyrirtæki hér á Ásbrú kynntu sig. Stærsti slökkvibíll í heimi ásamt lögreglu-, sjúkra-, eiturefna- og körfubíl vöktu verðskuldaða athygli utan við Atlantic Studios en inni sló Karnival með alls kyns leik- tækjum og annarri skemmt- un algjörlega í gegn. Þar var örtröð um tíma en börn jafnt sem fullorðnir skemmtu sér einstaklega vel og allt fór vel fram. Opinn dagur á Ásbrú er kom- inn til að vera. Talið er að hátt í 20.000 manns hafi sótt kynn- ingar og skemmtanir þennan dag. Aðstandendur vilja þakka öllum sem lögðu hönd á plóg fyrir frábært samstarf. Áhersla er lögð á að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Gestir og sýnend- ur virðast hafa náð því marki. Undirbúningur að Opnum degi á næsta ári er þegar haf- inn. Nærri 20.000 gestir á opnum Ásbrúardegi

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.