Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 19

Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 19
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 19 Jólin nálgast óðfluga og bæði börn og fullorðna hlakkar til. Þó hátíðarhaldið sé ef til vill með svipuðu sniði á flestum heimilum er mismunandi hvað hverj- um og einum finnst skapa hina einu sönnu jólastemmningu sem allir sækjast eftir. Nokkrir Vestfirðingar tjáðu sig um hvað þeim þætti einkenna góð jól. – Hvað finnst þér einkenna góð jól? „Jólin tengi ég ekki við Jesú Krist, enda þekkti ég manninn ekki neitt. Jólin snúast um al- sælu, alsælu sem þú eyðir með fjölskyldunni. Alsælu sem felst í því að éta mikið af jólamat, svínahamborgara- hrygg, hangikjöti, jólaís og konfekti og hinu frábæra ís- lenska jólaöli. Spila við fjöl- skylduna þó svo að oft verði heitt í hamsi, enda er það kær- leikurinn sem kraumar undir á hátíðisdögum eins og jólun- um. Mér finnst ekki lengur gaman að fá gjafir og vill helst ekki gefa gjafir heldur. Menn eiga að nota peningana sína í annað og njóta þess frekar að hafa fjölskylduna sína hjá sér um hátíðarnar. Þegar ég var yngri hugsaði maður bara um gjafirnar og það komst ekkert annað að. Í dag þykir mér það meira spennandi að skemmta mér með vinum og kunningj- um, kíkja á dansleik annan í jólum og hitta fólk sem maður hittir ekki á hverjum degi. – Hvernig væru hin full- komnu jól í þínum huga? „Ég held að ég hafi ekki ennþá upplifað mín bestu jól ennþá. Ég trúi því að þau komi ekki fyrr en maður er kominn með konu og börn. Þegar mað- ur sér gleðina og spenninginn í augum barna sinna þegar þau sjá jólasveininn og opna gjaf- irnar. Þegar konan manns klæðir sig upp sem aðstoðar- kona Jólasveinsins og færir manni trakteringar og annað gott í kroppinn.“ – Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur feng- ið? „Mínar uppáhaldsjólagjafir í gegnum þetta jólamisferli, eru tvær, annars vegar fengum ég og systir mín forláta Nin- tendo-tölvu með tveimur stýripinnum og Mario Bros, þegar ég var fimm ára gamall. Þá var hæ, hó, hopp og hí og hamagangur á Hóli. Þá var oftar en ekki vinsælt að fylgja eftir stökkum Marios með því að lyfta stýripinnanum í takt við stökkin. Og hin gjöfin var stórglæsilegur Dúabíll á gamla genginu, bíll sem ég held að pabbi hafi keypt á Þingeyri jólin eftir Nintendo-tölvu æv- intýrið.“ – Hvað langar þig helst í jólagjöf? „Mig langar helst ekki í neitt í jólagjöf enda er þetta ekki tíminn til að vera að kaupa jólagjafir. Ég mæli með því að fólk spari peningana sína þessi jólin. Fólk á bara að vera ánægt með að fá fjölskylduna sína í heimsókn enda snúast jólin um traust og vináttu, ást og kærleika og frið og ró. Enda er maður manns gaman og allt er gott í hófi þó svo að hóf sé gott í hófi.“ – Hvað er algjörlega ómiss- andi um jólin? „Að komast vestur til að hitta fjölskylduna, vini og kunningja. Svo finnast mér smákökur rosalega góðar og svínahamborgarahryggurinn. Fólk á að missa sig í borð- haldinu og vera ekki með nein gestalæti því það er til nóg af graut. Og svo er bara að njóta þess að vera í fríi og vera ekkert að hugsa um þetta hversdagslega.“ Sigurvin Guðmundsson, sölumaður. Á eftir að upplifa sín bestu jól Fullkomin jól yrðu aft- ur hátíð fjölskyldunnar föld; róleg og með hógværum blæ.“ – Hvernig væru hin full- komnu jól í þínum huga? „Ég myndi vilja vera laus við metinginn allt í kringum mig og ég myndi helst ekki vilja heyra um jólin talað af ráði fyrr en á aðventunni. Jóla- auglýsingar myndi ég alls ekki vilja sjá í byrjun október, eins og nú tíðkast og jólaskrauti mætti stilla í hóf. Fullkomin jól yrðu aftur hátíð fjölskyld- unnar en ekki ein allsherjar Mammonsveisla. Það sem ég elska við jólin er tækifærið til þess að ná fjöl- skyldunni saman og þegar við verðum öll komin á sama stað; við systkinin, þeirra makar, krakkadýrin og gamla settið, þá er nú flest allt komið sem mér finnst hægt að biðja um. Ef öll fjölskyldan er væntan- leg eru góðar líkur á því að ég upplifi jólin aftur með fögnuði en ekki kvíða og fyrir mér kæmist það ansi nálægt full- komnun.“ – Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur feng- ið? –Hvað finnst þér einkenna góð jól? „Eins og sennilega má segja um flesta var desember mán- uður alltaf litaður tilhlökkun hjá mér þegar ég var barn, fyrst hlakkaði ég til þess að fylla annað ár í byrjun mán- aðar og þegar það var búið tóku jólin algjörlega yfir mína veröld. Jólaskapið kitlaði mig allan daginn, alla daga og ég vissi fátt betra en ljósin og söngvana. Kannski var ég bara blind á það sem í dag ergir mig því það verður seint sagt um mig núna að ég sé mikið jólabarn. Kannski sá ég ekki stressið, kapphlaupið og geð- veikina en minningin segir mér eiginlega frekar að allt hafi einfaldlega breyst. Und- anfarin ár hef ég allavega látið kæfandi stress og blindandi efnishyggju fara fyrir brjóstið á mér og mér tekst með engu móti að muna hvenær ég upp- lifði síðast alvöru jólaskap. Það sem myndi einkenna góð jól fyrir mér væri því lík- lega töluvert frábrugðið því hvernig ég hef verið að upplifa þau. Góð jól vildi ég hafa ein- Ég hef alltaf fengið mikið af bókum í jólagjöf og voru þær mér oft afdrep í veislum sem mér þóttu erfiðar sem afar feimnu barni. Þegar ég var þó tekin að stálpast og mannast fékk ég bók sem yfirtók allt annað þau jólin, það var Mannveiðihandbókin eftir Ísak Harðarson en mér þykir hún svo listavel skrifuð að ég las hana tvisvar strax á að- fangadagskvöld og faðmaði hana á milli – hvað fleira gerð- ist þau jól hef ég ekki nokkra hugmynd um.“ – Hvað langar þig helst í jólagjöf? „Ég hef aldrei verið mjög góð í að semja gjafalista og hefur það eflaust bæði haft kosti og galla. Það vita þó flestir sem þekkja mig að mig langar alltaf í fleiri bækur. Það er mikill ljóðaþorsti í mér þessa dagana og því myndi ég alveg vilja eignast ljóðasafn einhvers þeirra stórskálda sem við höfum átt í gegnum tíð- ina.“ – Hvað er algjörlega ómiss- andi um jólin? „Eins og ég hef nefnt þykja mér bækur alveg ómissandi um jólin. Sama má segja um fólkið mitt en ég hef verið ein jól í burtu frá þeim öllum og fannst það mun erfiðara en ég vildi viðurkenna; það eru bara ekki jól fyrr en einhver úr syst- kinahópnum er búinn að hækka róminn en allir eru samt einhvern veginn bara sáttir. Svo er líka algjörlega ómiss- andi að hafa mátulega kröftugt og gott djamm á milli hátíð- anna.“ María Elísabet Jakobsdóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.