Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 20
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 200820
Helg er jól
–Hvað finnst þér ein-
kenna góð jól?
„Það er pottþétt snjórinn.
Helst allt hvítt og svona of-
urjólasnjókoma með logni
og öllu þessu, það er alveg
jólin í mínum huga. Snjór-
inn getur gert kraftaverk.
Hugsaðu bara um það, æði!“
– Hvernig væru hin full-
komnu jól í þínum huga?
„Þar sem ég á svo mikið
af minningum um jól hjá
mömmu og svo endað hjá
afa og ömmu á Engjavegi
24 verð ég eiginlega að segja
að það væri hið fullkomna
fyrir mér. Yfir jólatímann
hittist svo öll stórfjölskyldan
hjá þeim og var mikið brall-
að og skrafað. Tóti, pabbi
Svönu kallaði þetta „Drauma-
partý“. Ég og allir sem voru
þarna erum honum hjartan-
lega sammála. Ég átti hlut-
verk í þessum draumapartý-
um sem mér þótti afar vænt
um, en ég sá um franskar kart-
öflur, og tók ég það MJÖG
alvarlega. Þurfti vísu að sinna
því niður í kjallara einn, en
mér var alveg sama ef fransk-
arnar rötuðu á diska gestanna.
Þetta partý er enn við lýði, en
nú flakkar það á milli fjöl-
skyldnanna og er ómissandi.
VÁ hvað ég sakna þessara
tíma. Og að sjálfsögðu er allt
á kafi í snjó í þessum full-
komnu jólum!“
– Hver er eftirminnilegasta
jólagjöfin sem þú hefur feng-
ið?
„Þessu er erfitt að svara,
þar sem jólagjöfunum til mín
hafa snarlega fækkað með ár-
unum, stundum fékk maður
ekkert nema bara hanska og
þá kannski fimm pör eða álíka.
Að vísu er þetta á uppleið aft-
ur, þannig að við skulum bara
segja að ég eigi eftir að fá þá
eftirminnilegustu. Það er
ágætis vísbending í næsta
svari.“
– Hvað langar þig helst í
jólagjöf?
„Scanner. Góðan alhliða
scanner. Mig sárvantar svo-
leiðis græju! Mig vantar
samt líka hanska!“
– Hvað er algjörlega
ómissandi um jólin?
„Snjór, ég, þú og allir
hinir. Fjölskyldan, Færan-
lega fjölskylduboðið, hangi-
kjet, svínakjöt, snjór, eitt-
hvað rautt, eitthvað grænt,
snjór, eitthvað gult, eitt-
hvað blátt, snjór, harðfisk-
ur, Macintosh sælgæti og
jólasveinninn! Svo ætla ég
að segja mamma, því ég er
mömmustrákur. En það er
víst ekki hægt að hafa hana
þessi jól, hún ákvað að flýja
land og halda sín jól á
Spáni.“
Snjór og aftur snjór
Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður og ljósmyndari.
Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmdastjóri Héraðssambands Vestfirðinga.
Jólagrauturinn henn-
ar mömmu ómissandi
–Hvað finnst þér einkenna
góð jól?
„Samvera með konu og fjöl-
skyldu í frið og ró og auðvitað
að borða yfir sig.“
– Hvernig væru hin full-
komnu jól í þínum huga?
„Messa í Hnífsdalskapellu,
heims um ból, borða jólamat,
jólagrautur, opna pakka, sjá
gleðina í börnunum og liggja
svo á meltunni.“
– Hver er eftirminnilegasta
jólagjöfin sem þú hefur fengið?
„Flugustöng sem foreldrar
mínir gáfum mér fyrir mörg-
um árum síðan.“
– Hvað langar þig helst í
jólagjöf?
„Hef í seinni tíð aldrei verið
með neinar sérstakar óskir.“
– Hvað er algjörlega ómiss-
andi um jólin?
„Fjölskyldan, skatan á Þor-
láksmessu og svo er jólagraut-
urinn hennar mömmu algjör-
lega ómissandi.“
Skaðinn á séreignasjóði LV lítill
Fulltrúar frá Íslenskum verð-
bréfum funduðu með stjórn
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
fyrir rúmum þremur vikum
og var tilætlan fundarins að
fara yfir eignastöðu sjóðsins
en Íslensk verðbréf sjá um
eignastýringu hans. Kom lítið
í ljós um stöðu sjóðsins á fund-
inum að sögn Guðrúnar K.
Guðmannsdóttur, framkvæm-
dastjóra Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga. „Skaðinn á séreigna-
sjóði Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga er mjög lítill. Við erum
með 7% nafnávöxtun á ári úr
honum. Það hefur ekkert gerst
í sambandi við uppgjör á
þrotabúum bankanna þannig
að við vitum ekkert um stöðu
sjóðsins fyrr en eftir áramót,“
segir Guðrún.
Hún segir stjórn Lífeyris-
sjóðs Vestfirðinga og fulltrúa
frá Íslenskum verðbréfum
hafa rætt hvað þeir hafi upp á
að bjóða. „Nú eru flestir að
endurskoða allar sínar ávöxt-
unarleiðir og fórum við yfir
hvað boðið er upp á í þeim
efnum. Það er stefnt að því að
þeir verði með fundi á Ísafirði
eftir áramót og bjóði fólki upp
á ávöxtunarþjónustu. Þeir hafa
séð um eignastýringu fyrir
okkur undanfarin ár og hefur
samstarfið gengið mjög vel
hjá okkur,“ segir Guðrún.
Hún segir tryggingafræði-
legar úttektir eigi að liggja
fyrir í janúar og verður ljóst
þá hver staða lífeyrissjóðanna
er en uppgjörsvinnan gengur
mjög hægt.
– birgir@bb.is
Lífeyrissjóður Vestfirðinga er til húsa í Neista á Ísafirði.