Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 26

Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 200826 félagið til að flytja það í burtu því það hafði einmitt gerst þegar Marel keypti Póls og flutti svo starfsemina suður.” Ég hef heyrt því fleygt að þú sért skaphundur ef því er að skipta þótt ég hafi nú ekki kynnst því nema í gamla daga þegar stríðandi fylkingar efri og neðribæjar áttust við á orr- ustuvöllum bæjarins? Hann brosir. „Já, ég hef stundum rokið upp. Ég er mjög tilfinningaríkur maður og tek á hlutunum af ástríðu og vil fylgja þeim alla leið. Það er eflaust nokkuð til í því að ég sé skapheitur. Hins veg- ar hef ég lært að hafa stjórn á skapi mínu. Þetta hefur því slípast dálítið af mér í seinni tíð. Mér finnst miklu meira varið í þá sem tala tæpitungu- laust og af hreinskilni.” Þið Albert Marzelíusson hafið átt gott samstarf í þessu fyrirtæki. Það hlýtur þó að hafa soðið upp úr einhvern tímann? „Samstarf okkar hefur byggst á hreinskilni. Við höfum bara hreinsað loftið ef okkur greinir á. Við köllum það „leiðinda- fundi”. Við Addi náum ein- staklega vel saman enda er hann einstakur félagi. Kannski er samstarf okkar jafn gott og raun ber vitni vegna þess að við náðum að sameina þessa tvo krafta sem bjuggu hlið við hlið áratugum saman en áttu lítið sem ekkert samstarf. Ég á þar við Þór og Skipa- smíðastöðina. Þegar ég kom inn í fyrirtækið var ég bláfá- tækur að koma úr námi með fjölskyldu á mínu framfæri. Ég hafði ekkert annað að bjóða en tölvuna mína, skrif- borðið og teikningu af rækju- vélinni sem hafði verið loka- verkefnið mitt. Við náðum hins vegar að vinna vel úr því sam- an.” Svo ertu farinn að hlaupa, þú hleypur kannski af þér hornin? „Ja, ég hætti að reykja og byrjaði að hlaupa. Ég hef tekið virkan þátt í skemmtilegum félagsskap á Ísafirði sem kall- ast „Riddarar Rósu” og er mikill heilsubótarklúbbur. Þarna kemur saman hópur fólks og hleypur saman. Rósa í bakar- íinu og Kristbjörn „Bobbi” Sigurjónsson eru aðal drif- fjaðrirnar í þessum klúbbi. Ég hef hlaupið nokkur hálfmara- þon og fór í mitt fyrsta og eina maraþonhlaup 2006 þegar ég tók þátt í Reykjavíkurmara- þoninu. Hlaupin henta mér mjög vel því ég get hlaupið hvar sem ég er staddur í heim- inum. Á veturna stundar þessi klúbbur gönguskíði grimmt. Addi hefur verið mjög virkur þar og fer í Fossavatnsgöng- una á hverju ári sem er 50 kílómetra ganga.” Ferð þú líka á skíði? „Ég á gönguskíði en ber fyrir mig snjóleysinu hér fyrir sunnan. Ég reyni að hlaupa minnst þrisvar, fjórum sinnum í viku. Maður setur sér fögur markmið um hver áramót í sambandi við hlaupin. Það er hins vegar engin spurning að betra þrek gefur meiri starfs- orku og það var frábært að losna undan oki tóbaksins.” Þú nefndir það áðan að fyrirtækið sé í góðri stöðu og ekki mjög skuldsett? Hafið þið alltaf haft það að markmiði að hafa borð fyrir báru og er það ekki bara lykilatriði til að ná árangri? „Það er alveg hárrétt og enn og aftur er það kannski hluti af umhverfinu sem við kom- um úr. Fasteignir á Ísafirði hafa ekki mjög hátt veðsetn- ingarhlutfall þannig að við gátum ekki fengið mikla pen- inga lánaða út á fasteignina okkar. Við höfum ætíð farið varlega því við höfum alltaf litið svo á að á okkur hvíli samfélagsleg ábyrgð í rekstri á þessu félagi. Því höfum við haft það að leiðarljósi að ekk- ert sem við gerum megi verða til þess að setja rekstur félags- ins í tvísýnu. Slæmur rekstur kemur að sjálfsögðu niður á eigendum félagsins en líka niður á samfélaginu. Ennþá meira nú í seinni tíð. Við höfum því stigið varlega til jarðar og helst reynt að eiga fyrir hlutunum þegar við höf- um farið út í fjárfestingar. Það hefur líka verið gott á óvissu- tímum þegar verkefnastaðan hefur verið óviss og lítið að gera þá höfum við geta rekið félagið á hagkvæman hátt.” Ef maður lítur yfir starfsferil þinn er eitt sem maður rekur augun í. Þú hefur verið að leita að þekkingu og hefur reglulega farið í nám? „Já, ætli það sé ekki ein- hvers konar fullkomnunarár- átta. Það var gríðarlega stór ákvörðun að taka okkur upp frá fyrirtækinu og flytja hing- að suður, en það var líka liður í því að efla tengsl við við- skiptavinina og félagið. Mér fannst ég þurfa að bæta við mig þekkingu til að geta skilað fyrirtækinu fram á veginn. Ég var búinn að reyna að taka fjarnám í háskólanum á Akur- eyri en langaði í þetta Masters- nám og sá að það hentaði mér mjög vel. Það er rétt hjá þér. Mig hefur þyrst í þekkingu og er í raun síleitandi til þess að geta gert hlutina betur.” Fjölskyldan við lok Evrópuferðar, stödd í ítölsku ölpunum, frá vinstri eru Jóhann, Sonja, Rut, Dagný og Jóhann Atli. Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Bæjarstjórn Bolungarvíkur sendir íbúum sveitarfélagsins og viðskiptavinum sínum bestu jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir hið liðna. Bæjarstjórinn. Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Setja út á stærð golfvall- arins í aðalskipulagi Landeigendur í Meðaldal í Dýrafirði hafa gert athuga- semdir við drög að aðal- skipulagi Ísafjarðarbæjar þar sem stærð golfvallarins í dalnum er skráð 64,6 km² en er í raun 1,0 km² að mati landeigandanna. Þeir segja að ekki sé gert ráð fyrir stækkun vallarins í samningi eigenda við Golfklúbbinn Glámu og að golfvöllurinn sé rekinn með tímabundnu leyfi eigendanna. Í bréfi frá Andrési F. Kristjánssyni, einum af landeigendum í Meðaldal segir að í samn- ingi sem landeigendur í Meðaldal gerðu við Golf- klúbbinn Glámu sé gert ráð fyrir 9 holu velli í dalnum og ekki komi til álita að hálfu eigenda að golfvöllur- inn verði stækkaður. „Hvort golffélaginu verður heimilað að halda starfsemi sinni áfram með sama hætti í Meðaldal eftir árið 2015 eins og samningurinn gerir ráð fyrir, hefur ekki verið ákveðið enn. Það er þó ekkert í stöðunni í dag sem ætti að hindra að svo gæti orðið,“ segir í bréfinu. Óskað er eftir að þessar staðreyndir komi fram í kynningu aðalskipulagsins og að ákveðin óvissa sé um áframhaldandi leyfi fyrir golfvellinum í Meðaldal eftir árið 2015. Bæjarráð vísaði erindinu til umhverf- isnefndar Ísafjarðarbæjar. – birgir@bb.is

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.