Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 31

Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 31 Atvinnuþróunarfélag Vest- fjarða hefur verið að skoða möguleika til aukinna funda- og ráðstefnuhalda á Ísafirði og nágrenni. „Það þykir ljóst að sá markaður hefur ekki náð að teygja sig nægjan- lega vestur og teljum við að í samvinnu við ferðaþjón- ustu og önnur fyrirtæki sé grundvöllur til að leita leiða við að þróa slíkan markað enn betur hér á Ísafirði“, segir í tilkynningu. Svæðið þykir hefur upp á einstaklega mikið að bjóða og með samhentu átaki hags- munaaðila er hægt að mynda öflugan hóp sem vinnur sam- an í átt að markmiðunum. Til- gangur slíkrar samvinnu væri að auka veltu og arðsemi þeirra sem taka þátt í verkefn- inu og auka nýtingu þeirra sérstaklega á jaðartímum, svo sem gististöðum, mat- sölustöðum, söfnum og verslunum. „Það er svo von At-Vest að þetta sé einungis byrjun- in á stærra verkefni sem feli í sér fleiri staði á Vestfjörð- um sem ákjósanlegan kost til funda og ráðstefnu- halda“, segir í tilkynningu. – thelma@bb.is Vilja ýta úr vör samvinnuverkefni til að auka funda- og ráðstefnuhald Forsendur fyrir lögbýli lögformlegar „Málið er eðlilega höndlað í ráðuneytinu. Það voru allar lögformlegar forsendur til staðar til að veita landeigend- unum lögbýlisrétt á þessari jörð og ef að við hefðu hafnað því þá hefði það væntanlega verið gert á annarlegum for- sendum og það kom auðvitað ekki til greina,“ sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútveg- og landbúnaðarráðherra í sam- tali við Svæðisútvarp Vest- fjarða aðspurður um stofnun lögbýlis í Leirufirði í Jökul- fjörðum. Hann sagði málið hafa með mjög undarlegum hætti undið upp á sig. „Að mínu mati standa engin efni til þess að fjalla um málið með þeim hætti sem gert hefur verið. Þetta er mjög eðlileg málsmeðferð og ég vil vekja athygli á því að á síðustu þremur árum, samkvæmt upp- lýsingum sem ég lét taka sam- an af þessu tilefni, þá höfum við veitt rétt til stofnunar lög- býla í 120 tilvikum. Hér er því um að ræða mjög venjuleg verkefni sem unnin eru af hálfu ráðuneytisins og það er ekki þannig að það sé eitthvað sérstakt með það þó að eyði- jörð sé skráð lögbýli. Það eru fjölmörg dæmi um slíkt m.a. á Vestfjörðum,“ sagði Einar K Guðfinnsson. Hann sagði einnig fjar- stæðukennt að ætla að lögbýl- isréttur í Leirufirði í Jökul- fjörðum, gefi mönnum forskot á vegagerð í landinu og sagði lögbýlisstimpillinn ekki hafa nein áhrif á vinnu við aðal- skipulag Ísafjarðarbæjar sem nú er á lokastigi. – birgir@bb.is Tekist er á um atriði í reglu- gerð sem snýr að skoðunum bifreiða en Jónas Guðmunds- son, sýslumaður í Bolungar- vík, segir ekki enn komið í ljós hvort umsjón innheimtu á vanrækslugjöldum á bifreið- um sem ekki hafa verið færð til skoðunar á réttum tíma fari fram í Bolungarvík vegna þess að reglugerðin sé ekki tilbúin. Snýst ágreiningurinn um hvort Frumherji og Aðalskoðun eigi áfram að sjá um skoðun bif- reiða eða hvort skoðunin megi færast í ríkari mæli inn á bif- reiðaverkstæði. „Ég er ekki hlynntur því að skoðunin færist inn á bifreiða- verkstæðin. Þá er ég aðallega að hugsa um öryggið því við vitum það að sumir myndu bara fúska við skoðunina og ekki sinna sínu starfi. Upp á öryggið tel ég að skoðunin sé betur sett í höndunum á Frum- herja og Aðalskoðun. En auð- vitað yrði það gott fyrir verk- stæðin að fá smá pening inn á verkstæðin ef þau uppfylla þau skilyrði sem þeim eru sett,“ segir Guðmundur Ein- arsson, eigandi Bílaversins. „Öruggara að bifreiðaskoð- un sé með óbreyttu sniði“ Heilbrigðisstofnunin Ísa- fjarðarbæ hefur tilnefnt Helga Kr. Sigmundsson lækni sem fulltrúa í bygg- ingarnefnd björgunarmið- stöðvar á Ísafirði. Skal hann vera fulltrúi Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða frá 1. janúar. Eins og fram hefur komið er fyrirhugað að byggja björgunarmiðstöð á Ísafirði sem hýsa myndi slökkvilið, lögreglulið, björgunarfélag og Neyðarlínuna. Í vor óskaði Heilbrigðis- stofnunin Ísafjarðarbæ eftir aðkomu að skipulagningu björgunarmiðstöðvarinnar þar sem hún telji mjög brýnt að gert sé ráð fyrir aðstöðu fyrir sjúkrabifreiðar og sjúkraflutn- ingamenn í björgunarmið- stöðinni. Heilbrigðisráðu- neytið tók undir sjónarmið stofnunarinnar um að aðstaða fyrir sjúkraflutninga sé nauð- synleg þar sem björgunarmið- stöðvar eru skipulagðar á lands- byggðinni. Hagsmunaðilar hafa allir lýst yfir áhuga á að koma að byggingu fyrirhugaðrar björgunarmiðstöðvar á Ísa- firði sem hýsa myndi slökk- vilið, lögreglulið, björgun- arfélag og Neyðarlínuna. Kostnaðurinn við byggingu mun skiptast á milli ríkis og sveitarfélags og svo fé- lagasamtaka eins og björg- unarsveita og Rauða kross- ins verði þau með. Helgi fulltrúi HSÍ í bygging- arnefnd björgunarmiðstöðvar Engin niðurskurður í rekstri útibúa Sparisjóðsins í Keflavík „Ég á ekki von á því að viðskiptavinir Sparisjóðsins í Keflavík eigi eftir að finna mikið fyrir samruna sparisjóð- anna þriggja. Ef af þessum samruna verður, þá kemur hann til með að styrkja spari- sjóðina verulega. Við erum rétt búnir að undirrita vilja- yfirlýsingu og það er ekki meiningin hjá okkur að fara að loka útibúum eða stytta opnunartíma þeirra,“ segir Geirmundur Kristinsson, spari- sjóðsstjóri, aðspurður hvaða áhrif fyrirhugaður samruni sparisjóðanna getur haft á úti- bú Sparisjóðins í Keflavík á Vestfjörðum. „Ég held að of snemmt sé að fullyrða eitthvað um rekstrarform sparisjóð- anna þegar viðræður um sam- runa eru rétt komnar af stað. Það er ekki meiningin að sam- runinn eigi að koma niður á starfstöðvum sparisjóðanna hvort sem þær eru í Keflavík, á Snæfellsnesi, á Vestfjörðum eða á Húnaþingi, þá værum við ekki að þessu því Spari- sjóðurinn í Keflavík gæti gert það sjálfur og þyrfti hann ekki að fá hjálp úr Reykjavík til að gera það,“ segir Geirmundur. Hann telur Sparisjóðinn í Keflavík standa vel miðað við fjármálakreppuna. „Með sam- runanum myndi sparisjóður- inn styrkjast á öllum sviðum. Það er þrennt sem þarf að hafa í huga núna. Það er að eigin- og lausafjárstaða sé góð og gjaldeyrismálin séu í lagi,“ segir Geirmundur. Eins og sagt hefur verið frá hafa stjórnir Sparisjóðsins í Kefla- vík, Byrs sparisjóðs og SPRON undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að hefja undirbún- ing og vinnu sem miðar að því að sameina sparisjóðina. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er. Í viljayfirlýsing stjórna sparisjóðanna kemur fram að unnið verður eftir aðgerðar- áætlun og er stefnt að því að stofnfjáreigendur og hluthafar verði boðaðir til fundar í febr- úarmánuði til þess að fjalla um tillögu að samruna sem mun miðast við 1. janúar 2009. Í sameiginlegri tilkynn- ingu segja sparisjóðsstjórar sparisjóðanna þriggja að mark- mið sameiningarinnar sé að styrkja sparisjóðina í því erf- iða efnahagsumhverfi sem framundan sé og stuðla að aukinni hagræðingu í íslensku fjármálakerfi. – birgir@bb.is Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. Útibú Sparisjóðins í Keflavík á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.