Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 39

Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 39
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 39 STAKKUR SKRIFAR Jólahald í mótbyr Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Við lifum á umbrotatímum. Sjaldan hafa viðlíka hörmungar dunið á íslenskri þjóð og nú. Fjárlagfrumvarp ríkisstjórnarinnar er köld vatnsgusa í andlit okkar allra, nema þeirra sem sukkuðu og sóuðu með sjóði banka og fyrirtækja. Í taumlausri græðgi sópuðu þau til sín tugum ef ekki hundruð milljóna íslenskra króna. Skeytingarleysi þeirra var algert. Áður hefur þessum örfáu tugum karla og nokkrum konum verið líkt við víxlarana í musterinu. Jesú Kristur velti um borðum þeirra vegna þess að þeir vanhelguðu musterið. Hann rak þá út. Enginn venjulegur maður skilur þá óheftu, taumlausu frekju og sjálfselsku sem þetta fólk hefur sýnt og þó. Fjölmiðlar hafa velt sér upp úr óhóflegu líferni þeirra og birt myndir af snekkjum og einkaþotum, sem nú er vitað hvernig óhófsfólkið eignaðist. Orðið frelsi, einkum í viðskiptum, hefur fengið á sig ógeðfelldan blæ. Frelsi vekur nú þá ímynd að kúga megi lýðinn. Margir, aldnir jafnt og ungir hafa tapað sparnaði sínum á báli óhófsins, frekjunnar og græðg- innar. Þó fólk hafi í forvitni sinni haft gaman að því að fylgjast með hvernig þotu- liðið hagaði óhófi sínu og munaði réttlætir það ekki að íslensku samfélagi sé svo komið að skattar hækki, þjónusta minnki, framkvæmdum sé slegið á frest og óvissan verði hlutur þúsunda sem ekki sjá fram úr skuldum og vandamálum. Aldrei hefur stærri eignaupptaka orðið hlutskipti jafn margra og nú á jafn skömmum tíma. Hverjar afleiðingar fjárhamfara verða til lengri tíma litið er algerlega óvitað. Her hagfræðinga á engin svör. Ríkisstjórnin hefur átt erfiða daga við að greiða úr óskapnaðinum. Dýrar, en því miður gagnslitlar eftirlitsstofnanir dugðu ekki. Enginn stóð vaktina. Hver bendir á annan þegar spurt er um ábyrgð. Er íslenskt sam- félag ábyrgðar- og getulaust þegar kemur að fjármunabrotum? Hægt er að dæma ógæfumenn fyrir stuld á pilsnerdós og lambalæri. Hirði þjófurinn bankann má ekki stugga við honum þótt heil þjóð standi eftir hnípinn. Þess er saknað nú við jól að þjóðkirkjan hafi lítið látið í sér heyra. Syndurum ber að fyrirgefa þótt fjöldanum blæði. Gamla testamentið verður auðveldara lesefni en hið nýja. Brýnt er að almenningur fyrirgefi sjálfum sér að hafa saklaus lent í miðri hringiðu fjárhruns, reyni að fyrir- gefa ríkisstjórn og alþingi fyrir að hafa sofið á verðinum, en muni að óskapnaðurinn má ekki endurtakast. Þegar ekkert er eftir verður fyrir- gefning nýtt upphaf. Við verðum að treysta á okkur sjálf hvert og eitt. Jólin gefa von um betri tíð en framundan er löng og torsótt leið. Njótum þeirra. Við eigum margt gott fólk á Íslandi. Megi bera meira á því, ásamt réttlæti og jöfnuði. Gleðileg jól. Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250 millj- óna króna framlags úr ríkis- sjóði til sveitarfélaga vegna tímabundins samdráttar í afla- marki þorsks á árinu. Er fram- laginu ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu. Bolungarvík fær hæsta framlagið, sé miðað við höfðatölu, af sveitarfélögum á Vestfjörðum en Bolungarvík fær 9.650 krónur á hvern íbúa sem gera 8.723.543 krónur. Að sögn ráðuneytisins byggist úthlutunin nú á sambærilegum forsendum og árið 2007 sem er áhrif ákvörðunar um afla- niðurskurð á einstök sveitar- félög þar sem aflamark er skráð. Þó er að þessu sinni miðað við minnkun aflamarks eins og það var í hverju sveit- arfélagi um sig þann 1. sept- ember 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkur fiskveiðiár þar á undan eins og gert var fyrir ári. Ráðuneytið segist telja, að með því sé betur mætt áhrifum af niðurskurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða afla- marks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Alls er 200 milljónum króna varið til þessa þáttar. Þá er sérstakt tillit tekið til breytinga sem átt hafa sér stað í lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006-2007 og 2007-2008. Alls er 50 milljónum króna varið til þessa þáttar, en fram- laginu er ætlað að mæta minnkandi umsvifum í starf- semi hafna vegna ákvörðunar um niðurskurð í aflamarki þorsks. Ákveðið að hámarksúthlut- un til einstakra sveitarfélaga yrði 35 milljónir króna. Mark- mið úthlutunarinnar er að framlag renni til þeirra sveit- arfélaga sem verða fyrir um- talsverðum áhrifum vegna hins tímabundna samdráttar í þorskafla. Úthlutun til sveitarfélaga á Vestfjörðum: Bolungarvíkurkaupstaður: Íbúar 904, Samt. kr. 8.723. 543., kr. á íbúa 9.650. Ísafjarðarbær: Íbúar 3.963, Samt. kr. 24.096.940., kr. á íb. 6.080. Tálknafjarðarhreppur: Íbú- ar 290, Samt. kr. 2.267.642., kr. á íb. 7.819. Vesturbyggð: Íbúar 920, Samt. kr. 6.345.291., kr. á íb. 6.897. Súðavíkurhreppur: Íbúar 214, Samt. kr. 0., kr. á íb. 0. Strandabyggð: Íbúar 500, Samt. kr. 151.421, kr. á íb. 303. – birgir@bb.is Vestfirsk sveitarfélög fá 41,5 milljónir Matvælaframleiðsla hlut- fallslega stærst á Vestfjörðum Matvælaframleiðsla er hlut- fallslega stærri á Vestfjörðum í samanburði við önnur land- svæði og greiðir þriðjung launa í fjórðungnum. Þá er ótalið fiskveiðar og önnur af- leidd störf s.s. hótel- og veit- ingahúsarekstur, verslun og flutningsþjónusta. „Veiðar og vinnsla á sjávarafurðum, land- búnaðarframleiðsla og öflun matartengdra hlunninda hafa því löngum verið undirstöðu- atvinnugreinar hér á Vest- fjörðum. Vestfirðingar búa yfir mikilli þekkingu á sviði matvælaframleiðslu og hafa fulla burði til að hasla sér enn frekari völl á þessu sviði. Sér- stök tækifæri liggja í hrífandi náttúru, óspilltu dýralífi og kraftmikilli menningarsögu. Atvinnuþróunarfélag Vest- fjarða hefur að undanförnu tekið að sér að skoða þessa þætti sérstaklega“, segir í grein frá At-Vest. Fjölmörg verkefni sem fela í sér þróun á matvælum eru nú þegar farin af stað á Vest- fjörðum og má þar nefna áframrækt á þorski, bleikju- eldi og væntanlega kræklinga- rækt sem munu skapa mikla sérstöðu í framleiðslu. Önnur sjálfstæð verkefni má nefna s.s. sérhæfða framleiðslu á lamba- og kindakjöti en mikill áhugi virðist vera á vöruþróun og heimavinnslu afurða. Auk þess vinna Drangsnesingar að vöruþróun á grásleppuafurð- um, Patreksfirðingar skoða tækifæri í tengslum við stein- bítinn að ógleymdum sólþurrk- aða saltfiskinum á Ísafirði. Hrein náttúra Vestfjarða og lífræn vottuð landssvæði skapa auk þess tækifæri til að búa til lífrænar afurðir eins og bláber, krydd, te og jurtaveigar og fleiri afurðir í landbúnaði í hæsta gæðaflokki. Nýverið reið Atvest á vaðið með forverkefni í matar- tengdri ferðaþjónustu. Ferða- mönnum á Vestfjörðum fer stöðugt fjölgandi sem er tækifæri til að kynna matvöru með sérkennum hvers svæðis fyrir sig. Þannig nýtist hug- myndaflug heimamanna í vöruþróun, hönnun og fram- setningu sem eykur verðmæti vörunnar og sýnileika stað- bundinnar matarmenningu svæðisins. Settur hefur verið af stað forverkefnishópur sem kemur úr röðum vestfirskra matvælaframleiðenda og fram- reiðenda ásamt Atvest Sam- starfið mun ná til fyrirtækja og einstaklinga í vinnslu á fiski, kjöti, mjólkurafurðum, grænmeti, drykkjarvöru og fleiri afurðum ásamt versl- unum, ferðaþjónustuaðilum og veitingastöðum. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að auka veltu og söluhagnað á vestfirskum matvælum til ferðamanna, heimamanna og neytenda almennt. Fjölmargir framleið- endanna eru smáir og því er samstarf þeirra mikilvægt til að auka verðmæti á eigin framleiðslu. Þeir geta sérhæft sig í framleiðslu fyrir minni markaði, t.d. ferðaþjónustuna. Þannig hafa þeir áhrif á verð og útlit vörunnar, þá getur sér- staða hvers framleiðanda bet- ur fengið að njóta sín og rekj- anleiki afurða orðið meiri. „Með öflugu samhæfðu átaki aðila í greininni, Atvest og annarra stofnanna eru tæki- færin í tengslum við matvæla- framleiðslu og matartengda ferðaþjónustu gríðarleg. Með úrvals hráefni og samstilltu átaki aðila í greininni að vopni er engum vafa undirorpið að sóknartækifæri eru í atvinnu- sköpun á Vestfjörðum“, segir í greininni sem verður birt í heild BB-vefnum innan tíðar. Matvælaframleiðslega er hlutfallslega mest á Vestfjörðum. Harpa handhafi Guðrúnar- bikarsins Harpa Björnsdóttir, for- maður íþróttafélagsins Ívars á Ísafirði, er handhafi Guðrúnarbikarsins árið 2008. Guðrúnarbikarinn er bikar sem gefinn var Íþróttasambandi fatlaðra árið 2000 af Össurri Aðal- steinssyni, félagsmanni í Lionsklúbbnum Esju til minningar um eiginkonu hans Guðrúnu Pálsdóttur. Handhafi hans er valinn ár hvert af stjórn ÍF og er bikarinn afhendur þeirri konu sem hefur starfað sérlega vel í þágu fatlaðs íþróttafólks. „Harpa er einstakur liðsmaður íþróttahreyf- ingar fatlaðra og stjórn ÍF samþykkti samhljóða að handhafi Guðrúnarbikars- ins árið 2008 yrði Harpa Björnsdóttir, formaður Ívars. Hún hefur verið val- in af ÍF og Special Olym- pics á Íslandi í fararstjórn á alþjóðamót og hefur hvarvetna vakið athygli fyrir hlýtt viðmót, dugnað og hæfileika í mannlegum samskiptum“, segir í til- kynningu.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.