Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 2
JH.íAÍU^i að Ufa
EFNISYFIRLIT:
Ávarp Páls Gíslasonar, formanns FEB 2
Öflugt félag - hagur okkar allra 3
Aprílgabbið lifir enn
talað við göngustjórann Ernu Arngrímsdóttur. 3 og 23
Sönglistin og sameinað afl virkra félaga
talað við kórstjórann Kristínu Sæunni Pjetursdóttur. 5-6
Vetrarparadís í Karíbahafi fyrir eldri borgara 6
Föst vetrardagskrá félagsins 7
Félagsvistin er öllum opin
segir stjórnandi hennar Guðmundur Guðjónsson. 10
Mímisbrunnur - lumar ætíð á yngingarlyfjum.
Pálmi V. Jónsson læknir skrifar um rétt fæði og hreyfingu. I I
Félags- og tómstundastarf veturinn 1996-97
Reykjavíkurborg kynnir félagsmiðstöðvarnar. 12-13
Hinn heilagi réttur - tekur fyrir ýmis hagsmunamál.
Margrét Thoroddsen hugleiðir skert
réttindi eldri borgara. 14-15
Lífsgleði njóttu eins lengi og kostur er
Brynhildur Olgeirsdóttir, fyrsti formaður leikfélagsins. 15-16
„Elexír“ fyrir heilann
segir Sigrún Pétursdóttir, formaður leikfélagsins. 16-17
Lífið er flæði
segir Guðmundur Gunnlaugsson, arkitekt. 18-19
Jólakort Félags eldri borgara 21
Slysavarnadagskrá 23
Að kunna að tapa og sigra
í KR lærði ég hinn sanna íþróttaanda segir Bergur
Þorvaldsson, stjórnandi briddsins. 24
Skoðun stjórnmálamanns
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra fjallar um
velferðarþjóðfélagið og lífeyrismál. 26
Umsóknareyðublað um aðild að FEB 27
Það gerir sjómennskan
segir Pétur H. Ólafsson, dans- og ferðastjóri. 29-30
Pútt-golf
Vilhjálmur Halldórsson er upphafsmaður pútt-golfsins á
íslandi. 30
Forsíðumyndin er málverkið Örlagateningurinn frá 1925, eftir
Finn Jónsson (1892-1993). Myndina málaði Finnur í Þýskalandi,
en þar kynntist hann hinum róttæku hugmyndum módernismans
og sýndi meðal annars í Sturm galleríinu í Berlín.
Listin að lifa er gefin út af Félagi eldri borgara í Reykjavík
Umbrot og prentun: Hagprent-lngólfsprent ehf
Filmuvinnsla: Prenthönnun
Stærra blað FEB
Með útgáfu þessa blaðs, sem
hefur hlotið nafnið „Listin að
lifa“, eru þáttaskil í útgáfumálum
félagsins. A undanförnum árum
hafa komið 3-5 tölublöð árlega af
fréttabréfi, en nú finnst stjórn
félagsins kominn tími til breytinga og að blað okkar
fylgist með kröfum tímans um stærð og útlit.
Ráðinn hefur verið ritstjóri, Oddný Björgvins, sem
hefur safnað efni og ritstýrt hinu nýja blaði og vil ég
sérstaklega bjóða hana velkomna til starfa hjá okkur.
Við höfum líka hafið samstarf við Félagsmálaráð
Reykjavíkur um útgáfuna og lofar það góðu.
Það er von stjórnar að með þessu fái eldri borgarar í
Reykjavík betri upplýsingar um félagsstarf í borginni og
umfjöllun um ýmis mál sem þá varða.
Páll Gíslason, formaður FEB
Kæru lesendur!
Það er gaman að kynnast öllu
því káta og hressa fólki sem
vinnur fyrir FEB - viðmælendur
mínir kunna sannarlega „listina
að lifa“. Ég hlakka til að starfa
með ykkur og kynnast flestum
ykkar. Sendið mér línu eða
hringið, ef þið eruð með góðar
hugmyndir um efni blaðsins.
Oddný Sv. Björgvins, ritstjóri
Þær vinna fyrir ykkur
Starfsfólk á skrifstofu FEB. Stefanía Björnsdóttir, gjaldkeri
Úlla Bettý Knútsdóttir ritari, Sigrún Ögmundsdóttir er með
átak til eflingar félaginu og Aðalheiður S. Steingrímsdóttir
svarar í símann. Fremst á myndinni er Guðríður Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri.