Listin að lifa - 01.09.1996, Side 10
Félagsvistin er öllum
opin
— segir stjórnandi hennar, Guðmundur Guðjónsson
„Öllum er frjálst að spila
félagsvist hjá okkur, líka yngra
fólkinu. Hjá Félagsmálastofnun
mega aðeins 67 ára og eldri
rnæta, en við hjá FEB fögnum
því að sjá líka unglinga sem ekki
hafa náð aldri.“
Guðmundur er búinn að
stjórna vistinni síðan hún byrjaði í
Risinu. „Fyrst var ég tregur í
þetta, ætlaði að vera frjáls í spila-
mennskunni. En núna finnst mér
skemmtilegt að ganga á milli og
fylgjast með spilunum sem menn
hafa á hendi. Eg nýt þess líka að
Skaftfellingarnir, Davíð og Kristín
eru alltaf með bros á vör.
glotta frarnan í spilarana. Þetta er
mikið til sama fólkið og frábær
félagsandi yfir borðum. Stundum
þarf einhver að fara. Þá tekur
maður við. Þegar byrjað er að
spila má ekkert stopp koma upp.
Enginn sannur félagsvistarmaður
vill sitja lengi yfir borðum í að-
gerðarleysi. Félagsvistin verður að
ganga hratt og snurðulaust, það
gerir keppnisandinn í íþróttinni."
Fyrir jól og á vorin er fjögurra
daga keppni í Risinu, sem er mjög
vinsæl. Þá fá margir verðlaun.
„Það er hvorki dót né drasl í
verðlaun, fólk á nóg af slíku —
vöruúttekt er vinsælli, hana geta
allir notfært sér.“
- Hvenær fórstu að taka í spil?
„Eg byrjaði að spila heima. Við
vorum ekki nema 12 systkinin!
Það var fjölmennt og kátt á
heimilinu og geysilega mikið
spilað.“ Guðmundur er fæddur
og uppalinn í Austur-Landeyjum,
Voðmúlastaðahjáleigu. „Það var
svo mikið af hjáleigum í Land-
eyjum.“ Þá var venja að ungir
drengir færu á vertíð í sjávar-
plássin strax eftir fermingu og
Guðmundur er 10 vertíðir í
Eyjum. Sjósókn og búskapur
skiptast á og Guðmundur stundar
eigin búskap á býlinu Snotru í átta
ár. „Ég gaf bænum nafnið
„Búland“ og vildi að hann bæri
það með rentu. Slæmar fréttir að
heyra að Búland er nú komið í
eyði.“ Af veru Guðmundar í
Reykjavík muna margir eftir
honum sem starfsmanni hjá Shell
í Skerjafirði.
Konurnar eru duglegri að mæta
í félagsvistina, eins og í annað
Heyrðu Gunna, hvaö á ég að segja?
Þau eru samstillt í félagsvistinni,
Guðmundur og Unnur.
félagslíf hjá FEB. „Oft verð ég að
fara bónarveg til blessaðra kvenn-
anna og fá þær til að spila sem
karla. Margar þeirra koma löngu
fyrir tímann og njóta þess að sitja
og tala saman. Kaffikonan okkar,
hún Unnur er líka svo létt og
skemmtileg - lætur engan bíða
lengi eftir kaffisopa og meðlæti.
Hún er hjálparhellan mín og
tekur off í spilin, ef vantar inn í.“
Skilaboð Guðmundar til félags-
manna eru þessi: „Látið ykkur
ekki vanta í félagsvistina. Það er
oft kátt hjá okkur í Risinu. Þar er
hægt að spila á 25-30 borðum,
því fjörugra, því fleiri sem mæta.“
O. Sv. B.
I tengslum við félagsvistina á
föstudögum, bjóðum við hjartan-
lega velkomna alla þá sem vilja
æfa sig í briddsi. Við stefnum á
skemmtilega spilamennsku, vit-
um að margir sitja heima og
halda að þeir kunni ekki neitt,
en það er mesti misskilningur.
Hafið góða skapið í farteskinu
og þá kemur ýmislegt skemmti-
legt í ljós. Unnur og Guðný eru
alltaf mættar kl. 13.00, með
heitt á könnunni. Guðný gefur
allar upplýsingar í síma 553-
0895 eða Unnur í síma 567-
7517.
Hlökkum til að sjá ykkur!