Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 29

Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 29
Það gerir sjó- mennskan Pétur í sínu rétta umhverfi innan um net og veiðarfæri. Þarna er hann í hlutverki sveitabóndans í auglýsingakvikmynd. — segir Pétur Ólafsson Alltaf er Pétur að. Gráa skeggið og létta brosið mætir á hverjum morgni uppi á skrif- stofu í Risinu. Nema að hann sé með ferðahópa á flakki úti í sveitum landsins, Færeyjum eða guð má vita hvar. Pétur er líka snúningalipur á dansgólfinu, heldur utan um dansleikina á sunnudagskvöldum. — Hvernig ferðu aðpví að vera svona atorkusamur, Pétur? wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtsm^^,....,- s „Eg er allur á kafi í að fram- kvæma hlutina. Þetta rennur svo auðveldlega út fyrir mér. Það gerir sjómennskan!“ A sjóaraárunum sigldi Pétur inn í alla Islandsfirði. „Seinna fór ég með hundinum mínum upp um fjöll og firnindi. Þá var ég á flakki um landið til að sjá um gæðaeftirlit á fiski og kom inn í alla flóa og firði — öfugu megin! Ef ég sá vegarspotta út frá þjóðvegi, ók ég eftir honum eins langt og hann náði. Hundurinn minn sat í framsætinu og sleikti mig í framan, ef ég dottaði við sfyrið.“ Þannig lærði Pétur að þekkja landið og fólk úti á lands- byggðinni. „Eg var svo mikið innan um allt þetta fólk. Felldi út heilu skipsfarmana, ef „maðkur var í mysunni". Var ekkert alltof vinsæll hjá þeim sem stjórnuðu fiskútflutningi.“ Pétur átti eitt sinn að svara fyrir það, hvers vegna hann stoppaði útflutning á fiskfarmi. „Þeir sátu þarna við fínpússuð ráðuneytis- borð og sögðust ekkert skilja í þessu. Þá hvolfdi ég úr fiskipoka litlum hluta af farminum fyrir framan þá — og maurinn skreið út um allt borð. Flibbamennirnir spruttu upp og sögðu: - Ertu vitlaus - þetta fer í fötin okkar og teppið. Maður verður nú að kunna að svara fyrir sig!“ Sumarferð til Færeyja — haustferð í Lakagíga og Eldgjá: Pétur er óþreytandi að skipu- leggja ferðir og ná verðinu niður. Færri komast í ferðir með Pétri en vilja. Langur biðlisti var í Lakagíga og uppselt til Færeyja. „Þessi ferðalög eru mikil lyftistöng,“ segir Pétur, „fyrir fólkið sem vill vita sem mest um viðkomandi staði - þó ekki of mikið. Ef ég sé þreytumörk á ferðahópnum, fæ ég harmonikkuspilara úr sveitinni og slæ upp balli til að fólk geti liðkað sig eftir setu í rútunni." Sunnudagsböllin eru vinsœl! Á hverju sunnudagskvöldi stendur Pétur við dyrnar inn í danssalinn og býður gestina velkomna. „Eg byrjaði í gamla Sigtúni og sá þar um skemmtanir með gríni og glensi. Nú er það sterk, félagsleg heild sem sækir sunnudagsböllin. Þar er aldrei haft vín um hönd, en fólk skemmtir sér því betur. I lok hvers dans- leikjar syngjum við öll saman: „Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur,“ og margir segja um leið og þeir ganga út: „Mikið var þetta skemmtilegt kvöld.“ Pétur segist hafa verið „helvítis dansfífl“ frá því hann var strákur! „Dansinn gefur svo sterk félagsleg tengsl innan um hoppin - bæði sálarlega mýkt og líkamlega at- orku. Þjóðir heims hafa dansað í trú og beint sjónum sínum til guðanna. Við íslendingar höfum dansað til að tjá gleði okkar. Dansinn gerir mann svo já- kvæðan.“ Konur eru alltaf í meiri- hluta á sunnudagsböllunum. Frh. á næstu síðu

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.