Listin að lifa - 15.10.2001, Page 36
FRÆÐSLUHORMIÐ
Ágætu lesendur!
Með hverju árinu sem líður byrja margir fyrr á jólaundir-
búningnum. Það getur verið af hinu góða en jafnframt
sakna margir gömlu góðu daganna þar sem aðventan
færði okkur í senn væntingar og fögnuð og hinn eiginlegi
jólaundirbúningur hófst.
Eflaust finnst mörgum of seint að koma með hugmynd að
jólakorti núna. Þess vegna fékk ég að velja fyrirmynd að
korti hjá Björgu í Föndru, mynd sem hægt er að nota við
fleiri tækifæri. Ramminn er gerður með „pickstensli“.
Saumað er með þræði og litlum perlum ef vill. Falleg
glansmynd, þrívíddarmynd eða persónuleg mynd límd í
miðjuna. Kortið er klippt með takkaskærum og límt á mis-
litan pappír eða sett í ramma.
Þættinum hafa borist margar góðar og áhugaverðar
uppskriftir að venju og hér koma nokkrar:
Kjúklingaréttur Steinunnar
Rétturinn er soðinn í ofnmóti með loki
1 kjúklingur (kjúklingalæri eða bringur)
3 dl tómatsósa
3-4 tsk. karrý
I tsk. pipar
1 tsk. salt
um 1 1/2 dl rjómi
1. Hreinsið og skerið kjúklinginn í hæfilega stóra bita (t.d.
læri og bringur í tvennt).
2. Blandið kryddinu út í tómatsósuna.
3. Veltið kjúklingabitunum í kryddblöndunni og leggið þá í
eldfast mót. Leggið lok á mótið og setjið það í 220
gráðu heitan ofn í 25 mínútur.
4. Hellið rjómanum yfir kjúklingabitana og setjið þá aftur í
ofninn í aðrar 25 mínútur.
5. Berið réttinn fram með soðnurn kartöflum eða hrísgrjón-
um. Einnig er gott að bera með brauð/bollur eða salat.
Góður ábætir (handa 6-8)
Ábætirinn er frystur og því auðvelt að búa hann til fyrir-
fram þegar tími gefst til.
Botn:
2 eggjahvítur
1 dl púðursykur
3/4 dl sykur
2 sléttfullir bollar Rice Krispies
1. Hitið ofninn í 150 gráður.
2. Stífþeytið eggjahvítur, sykur og púðursykur.
3. Blandið Rice Krispies varlega saman við og setjið á ofn-
plötu með bökunarpappír.
4. Bakið neðst í ofninum í eina klukkustund.
Súkkulaðirjómi:
150 g suðusúkkulaði
3/4 dl rjómi
Setjið rjóma og súkkulaði í pott. Bræðið það við vægan hita
og kælið.
Rjómakrem:
2 eggjarauður
3 msk flórsykur
4 1/4 dl rjómi (stífþeyttur)
2 msk koníak eða annað bragðefni.
1. Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn vel saman.
2. Blandið rjómanum og koníaki varlega saman við.
Brjótið marensbotninn niður og setjið í skál. Hellið
súkkulaðirjómanum yfir og síðan rjómakreminu. Setjið
skálina í lokaðan plastpoka og frystið. Ábætirinn er tekinn