Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Page 4
föstudagur 4. júlí 20084 Fréttir DV
Sandkorn
n Kreppan kemur víða við. Líka
í fótbolta. Þróunin hefur verið sú
að leikmenn fúlsi jafnvel við boði
um 350 þúsund krónur á mánuði
og þeir best settu séu á launum
í kringum
milljón á
mánuði. Yfir
sumartím-
ann. Það var
samið við
alla þessa
leikmenn í
viðskiptalegri
hagsæld. Nú
er hins vegar kreppa. Þá þarf að
spara. Leikmenn í Kópavogi eru
orðnir langþreyttir á því að fá að-
eins hluta launa sinna borgaðan
og leikmenn í Vesturbænum hafa
einnig kvartað og kveinað á bör-
um landsins. Líður því væntan-
lega ekki á löngu þar til fyrsta verk-
fall íslenskra knattspyrnumanna
lítur dagsins ljós.
n Og meira að erfiðleikum í rekstri
knattspyrnu-
félaga.
Skagamenn
spenntu bog-
ann mjög hátt
í sumar. Hafa
sex leikmenn
á fullum at-
vinnumanna-
launum og
dýrasta þjálfara landsins. Nú er
svo komið að reksturinn gengur
afar illa. Reikningar hrannast upp
og æðstu mönnum ÍA óraði ekki
fyrir að fá þriggja milljóna króna
reikning frá Akureyri um mánaða-
mótin. ÍA fór í æfingarferð til Ak-
ureyrar sem kostaði félagið tvær
milljónir og þar voru keypt fæðu-
bótarefni fyrir milljón. Þegar svo
leikmenn vildu fá bensínkostnað-
inn greiddan var fokið í flest skjól.
Þrjár milljónir eru ekki lengur til
og óttast Akurnesingar að félagið
stefni í gjaldþrot enda á bærinn
allar eignir félagsins.
n Aðeins meira ofan af Skipa-
skaga. Mikið hef-
ur verið rætt
og ritað um
leik KR og ÍA
sem fram
fór síð-
astliðinn
mánudag.
Dómari
leiksins,
Garðar Örn
Hinriksson,
hefur verið
gerður að
blóra-
böggli
hjá ÍA
og hann
sakaður
um að hata ÍA. Margir hafa hins
vegar bent Skagamönnum á að
líta fyrst í eigin barm. Þannig hefur
lítið verið fjallað um að Guðjón
Þórðarson var ekki með liðið vik-
una áður en leikurinn fór fram.
Hann var erlendis á þjálfaranám-
skeiði. Mætti svo daginn fyrir leik
og tilkynnti byrjunarliðið. Þar var
Þórður Guðjónsson þrátt fyrir að
vera tæpur á meiðslum. Þórð-
ur þurfti að fara af leikvelli áður
en fjórar mínútur voru komnar á
klukkuna.
n Fylkismenn eru komnir áfram
í átta liða úrslit VISA-bikarsins í
fótbolta. Þeir eru hins vegar að
ströggla í deildinni. Stuðningsmenn
eru ósáttir við gengi liðsins, finnst
það móðgun ef uppalinn Fylkis-
maður er tekinn út af fyrir aðkomu-
mann og telja
að tími Leifs
Garðarssonar
með liðið sé
liðinn. Nú ber-
ast þær fréttir
að stjórnin sé
sama sinnis.
Vinni Fylkir
ekki Breiða-
blik á mánudaginn verður Leifi sagt
upp störfum.
Bensínþjófnaður frá bensínstöðvunum hefur aukist mikið hér á landi í takt við hækkandi
olíuverð. Þrjótarnir ýta einfaldlega á takkann „Greiðið inni“ og bruna síðan burt. Lög-
reglan hefur þó ráð undir rifi hverju og hefur uppi á þjófunum með sínum aðferðum.
Keyra burt án
þess að borga
„Bensínþjófnaður? Já, við fáum
fullt af þeim,“ segir Ólafur Emils-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu.
Töluvert hefur færst í aukana
að fólk borgi ekki fyrir bensín sem
það tekur á bensínstöðvum stóru
olíufélaganna. Takki sem stend-
ur á „Greiðið inni“ hjálpar til við
þjófnaðinn. Þjófarnir ýta einfald-
lega á takkann, taka bensín og
keyra síðan burt án þess að borga
inni. Lögreglan nýtir sér þó tækn-
ina og hefur uppi á þjófunum inn-
an skamms.
Stela öðrum númerum
Ólafur segir að lögreglan nái
flestum þjófunum innan skamms.
Þó séu alltaf einhverjir sem sleppa.
Undirritaður var að taka bensín
ekki alls fyrir löngu þar sem núm-
erslaus bíll renndi í hlað, dældi á
og keyrði í burtu. „Sumir gera þetta
og svo eru aðrir sem stela einfald-
lega númerunum af öðrum bílum
og setja á sína. Skila númerunum
bara aftur þegar þeir eru búnir að
dæla.“
Gamla aðferðin á undanhaldi
Lítið hefur verið um að fólk steli
bensíni með gömlu góðu slöng-
unni. Sjúga upp í slöngu, fá slatta
af bensíni upp í sig og láta leka
í brúsa. Ástæðan er einföld, bíl-
ar nútímans eru betur búnir en
gömlu bílarnir. Þeir eru varðir fyrir
slíkum þjófnaði. Erfitt getur reynst
að koma slöngu ofan í bensín-
tankinn. „Slíkur þjófnaður heyrir
til undantekninga enda bílar í dag
orðnir svo fullkomnir.“ Tjón af slík-
um þjófnaði getur numið allt að
25 þúsund krónum sé fullur tank-
ur tekinn af einum af bandarísku
bensínhákunum.
Faraldur í Bandaríkjunum
Víða erlendis þekkist svona
þjófnaður. Bandarísk yfirvöld hafa
til dæmis kallað bensínþjófnað far-
aldur. „Þetta er allt tekið upp á góð-
ar öryggismyndavélar þar sem við
sjáum númerin. Svo þekkjum við
líka fullt af þessu fólki sem hefur
verið að gera þetta. Við náum þeim
alltaf á endanum, það er ekki það,“
segir Ólafur.
ÞEGNSKYLDA ÞJÓÐARINNAR
Skáldið Skrifar
Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Auðvitað eru þeir þó nokkrir sem nú þegar fara á svartan lista yfir hugsanlega skipuleggjendur.“
æja, enn og aftur tekst mér að stuðla
titilinn og í þetta skiptið er ég nokkuð
sáttur við útkomuna því yfirskriftin er
kjarni þess sem mig langar að fjalla um
í dag.
Að vísu neyðist ég til að setja lykkju á leið
mína en það er bara betra.
Einhverju sinni var hér á landi fyrirbæri
sem kallað var Græni herinn. Þessi her var
hugsaður sem miðstöð uppgræðslu og átti að
gagnast landi og þjóð. Sá sem þar fór fremst-
ur í fylkingu var Jakob Frímann, einn aðal-
hljómborðseigandi Stuðmanna. Illar tungur
segja mér að þetta hafi allt farið út um þúfur
vegna þess að einhverjir óprúttnir einstakl-
ingar reyndu að nýta málstaðinn sér og sín-
um til hagsbóta. Ekki ætla ég að selja það dýru
verði enda greiddi ég ekki eina einustu krónu
fyrir orðin. Hvað sem öðru líður, Græni herinn
varð að floppi sem flestir vilja gleyma.
Og kem ég þá að kjarna málsins.
Ég hef núna síðustu vikurnar starfað fyrir
samtök sem kallast Gróður fyrir fólk í Land-
námi Ingólfs. Samtök þessi sinna því þjóð-
þrifaverkefni að græða landið með ýmsum
ráðum, og á stundum óhefðbundnum að-
ferðum. Yfirleitt er það ætlunin að breyta
auðn í vin - örfoka land verður að fífilbrekku
á skömmum tíma ef menn halda af kænsku og
kunnáttu um hrífuskaft og haka.
Ja, það er eiginlega akkúrat núna sem ég
kemst að meginmálinu: Ég legg það til að all-
ir Íslendingar fái þá þegnskyldu í vöggugjöf að
sinna landgræðslu í nokkrar klukkustundir á
ári hverju. Hvernig slíkt starf má útfæra í smá-
atriðum, veit ég ekki. En segja má að ég treysti
nánast hverjum sem er til að kortleggja þann
pakka allan.
Auðvitað eru þeir þó nokkrir sem nú þeg-
ar fara á svartan lista yfir hugsanlega skipu-
leggjendur. En ég sé það til dæmis fyrir mér
að fangar geti unnið af sér fangavist og ég sé
einnig fyrir mér að smákrimmar geti stundað
landgræðslu í stað betrunarvistar. Svo fátt eitt
sé nú nefnt.
Talandi um fanga.
Það er hrein tilviljun að vísan sem hér fer á
eftir skuli yfir höfuð fá að birtast. En við hlið
pistils míns í síðustu viku birtist klausa um
Jakob Frímann og sagt var að bolur með mynd
hans væri kominn úr prentun frá Kvíabryggju,
þar sem fangar prenta í gríð og erg. Og þá datt
mér strax í hug:
Nú losar borg við hlýja hyggju
heimsmynd dökk sem blý og kol
því kominn er frá Kvíabryggju
Kobbi Magg á nýjum bol.
J
Benedikt BóaS hinRikSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
dropinn dýr Það
getur kostað allt
upp í 25 þúsund
að fylla á tankinn.
Öryggismyndavélar ná þrjótunum
Olíufélögin hafa komið sér upp fullkomnum
öryggisbúnaði sem nær þjófunum á mynd.
allir ósáttir við hátt
verð Vörubílstjórar
mótmæltu háu verði
með misjöfnum
árangri þó. lítið hefur
til þeirra spurst eftir
átökin í Norðlingaholti.