Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 6
föstudagur 4. júlí 20086 Fréttir DV Sandkorn n Í gærmorgun mátti vart sjá hvaða blað lesendur lásu, slíkur var frændskapurinn að Morgun- blaðið, 24 stundir og Fréttablað- ið voru öll með sömu forsíðuna þar sem sagt var frá því að heilir fjórir starfsmenn hefðu hætt hjá REI. Kannski ekki 240 uppsagnir eins og hjá Ice- landair, en forsíða engu að síður. Þegar betur var að gáð, mátti einn- ig sjá að forsíðumyndin af Loga Bergmann þuli, reyndist baksíðu- myndin á Morgunblaðinu. Og þá er ekki allt upptalið, því Þorleifur Gunnarsson, borgarfulltrúi VG, fékk pistil sinn um útboð á fíklum og fleiru arðvænlegu birtan bæði í Mogganum og 24 stundum. Því hlýtur sá pistill að hafa verið einna mest lesinn í gærdag. Slíkt samstarf fjölmiðla má hugsanlega nefna gúrkutíð. n Árni Johnsen á í harðri rimmu við söngkonuna Björk á síðum Morgunblaðsins. Þar svarar hann svargrein Bjarkar um náttúruna. Árni fer um víðan völl og afstaða hans til máls- ins nokkuð fyrirsjáan- leg. En svo virðist sem Árna þyki Björk og allar hinar heimsfrægu stjörn- urnar sækja land og þjóð sjaldan heim því hann líkir komu þeirra við afhendingu handritanna. En stoppar ekki þar því hann heggur í sama knérunn og aðrir sem fylgja álverum hér á landi og bendir á nauðsyn álframleiðslunnar á Náttúrutónleikunum sjálfum. Því hann fullyrðir að þar hafi legið eft- ir tíu þúsund dósir að tónleikum loknum. n Uppsagnir skekja ríkisstarfs- menn RÚV sem hingað til héldu að þeir væru jafnöruggir með stöðu sína og aðrir launþegar ríkisins. Svo er nú aldeilis ekki því þeg- ar hefur átta verið verið sagt upp og fækkað um 20 stöðugildi. Á meðal þeirra sem fengu að finna fyrir löngum skurðarhnífi RÚV var fréttamað- urinn Héðinn Halldórsson sem hefur flutt samviskusamlega fréttir frá Danmörku undanfarna mán- uði. Þá vekur hins vegar athygli að RÚV á enn fréttaritara annars vegar í Bretlandi og hins vegar í Bandaríkjunum. Í því ljósi má velta því fyrir sér hvort Ísland sé að treysta enn frekar tengsl sín við ríkin tvö á meðan Norðurlöndin fá að sitja á hakanum. n Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef- ur farið öfuga leið við það sem tíðkast í Reykjavík þessa dagana. Ungir sprei- listamenn fá nefnilega af- not af sérstök- um veggjum í miðbæ Hafn- arfjarðar það sem þeir geta úðað að vild án þess að Jakob Frímann Magnússon elti þá á röndum vopnaður málning- arpensli. Framtakið hefur vakið lukku hjá bæjarbúum í Hafnarfirði sem kunna að meta spreilistina. Jakob Frímann átti áður heima í Hafnarfirði og hafði búsetu þar á annan tug ára. Þess vegna geta úðarar prísað sig sæla að græni hermaðurinn sé fluttur til Reykja- víkur. Íslenskir fjárfestar og hluthafar í íslenskum fyrirtækjum hafa fengið vænan skell eftir hrun á verðbréfamörkuðum. Fjöldi útrásarverkefna hefur farið í handaskolum og valdið milljarða tapi. Hlutabréf í íslenskum fyrirtækjum hafa lækkað um allt að 96 prósent. Slæm kaup koSta milljarða Bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið fyrir barðinu á versn- andi efnahagsástandi undanfarið ár. Hlutabréf hafa stórlækkað í verði og mörg útrásarverkefni íslenskra fjárfesta farið í handaskolum. Þess eru dæmi að misráðnar fjárfesting- ar hafi kostað íslensk fyrirtæki allt að fimmtán milljörðum króna. Fjárfesting kostaði milljarða Ein alversta fjárfesting undan- farinna ára voru kaup FL Group á eignarhaldsfélagi American Air- ways, AMR. FL Group keypti 6 pró- senta hlut í AMR á um 29 milljarða króna undir árslok 2006. Tæpu ári síðar seldi félagið stærstan hlut sinn eftir að virði hans hafði rýrnað um fimmtán milljarða. Einn viðmælenda DV orðaði það sem svo að FL Group hefði með kaupum í stóru bandarísku flugfé- lagi veðjað á lágt olíuverð og sterk- an dollara. Það hafi svo farið á hinn veginn, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Félagið tapaði að auki afar háum fjárhæðum á fjárfestingum sínum í hinum þýska Commerzbank og flugfélaginu FinAir. Alls nam tap vegna útrásarverkefna FL Group um 38 milljörðum á síðasta ári. Gengi bréfa FL Group hefur sömuleiðis stórlækkað. Gengið nú er 6,6 krónur á hlut, tæpum 80 pró- sentum lægra en þegar mest var fyr- ir rúmu ári. Afskrifaði kaupin Eimskip hefur einnig tekið skellinn af misráðnum fjárfesting- um. Fyrr í mánuðinum kom fram að félagið hefur afskrifað eignarhlut sinn í breska flutninga- og geymslu- fyrirtækinu Innovate að virði 8,8 milljarða króna. Eimskip hafði fjár- fest í fyrirtækinu á árunum 2006 til 2007 og á það allt. Tap Eimskips á öðrum fjórðungi ársins nam um 12,6 milljörðum króna. Hlutur í Eimskip kostar nú 14,3 krónur. Gengið toppaði tvisvar á síðasta ári í 42,8 krónum. Þeir hlut- hafar sem keyptu í uppsveiflunni í fyrra brosa varla breitt, því bréf fyrir- tækisins hafa hrunið um 65 prósent á tæpu ári. Aðeins þrjú fyrirtæki í Kauphöllinni hafa lækkað meira frá áramótum hlutfallslega séð. Fá útrásarverkefnin í hausinn Það hafa fleiri fyrirtæki fengið mislukkuð útrásarverkefni í haus- inn. 365, áður Dagsbrún, ætlaði sér að ráðast inn á breskan fjölmiðla- markað með kaupum á Wynde- ham-prentverkinu fyrir örfáum árum. Félagið neyddist til að horfast í augu við að kaupin voru mistök og færðu niður eignarhlut sinn í prent- smiðjunni að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar króna í fyrra. Baugur Group keypti tískuvöru- keðjuna MK One undir árslok 2004 á um sjö milljarða króna. Fyrr í ár seldi Baugur keðjuna svo til fyrir- tækisins Hilko. Kaupverðið var ekki gefið upp. MK One hafði verið rek- ið með 17,4 milljóna punda tapi árið áður, andvirði yfir 27 milljarða króna. Það má því gera ráð fyrir að Hilko hafi ekki fengið keðjuna á uppsprengdu verði. Hluthafar í vondum málum Hluthafar í íslenskum fyrir- tækjum hafa ekki farið varhluta af kreppunni. Þeir sem stigu síðastir um borð í góðærislestina áður en hún fór af sporinu standa nú marg- ir uppi með hendurnar hálftóm- ar. Þannig fengu þeir sem keyptu í SPRON þegar fyrirtækið fór á mark- að 23. október köttinn í sekknum, því bréfin hafa lækkað um 80 pró- sent. Kaupþing keypti hlutinn á 3,8 krónur þegar fyrirtækin sameinuð- ust fyrr í vikunni. Hann seldist hæst á 18,9 krónur daginn sem Spari- sjóðurinn fór á markað. Svipaða sögu er að segja af mörg- um íslenskum fyrirtækjum. Bréf Ex- istu, Teymis og fjölmargra annarra fyrirtækja hafa tekið hrikalega dýfu. DeCode hlaut einna verstu útreið- ina á hlutabréfamörkuðum. Bréf þess náðu hámarki í 28,75 doll- urum, að andvirði tæplega 2.300 króna á gengi dagsins í dag. Síðan þá hefur gengið hrunið um heil 96 prósent. Íslendingar ekki farið óvarlega Einn viðmælandi DV skýrði frá því að bankar um allan heim hefðu að stórum hluta skrúfað fyr- ir lánveitingar til fyrirtækjakaupa og hefði botninn því dottið undan þeim miklu verðhækkunum hluta- bréfa sem á undan hefðu komið. Annar viðmælenda DV benti enn fremur á að Íslendingar hefðu ekki farið sérstaklega óvarlega þó ástandið á mörkuðum hér væri slæmt. Hins vegar væri fjöldi fjár- mála- og fjárfestingarfyrirtækja á landinu hlutfallslega óvenju mikill. Því kæmi hrun sem heimsbyggð- in horfir nú upp á sérlega illa við Ísland. Iðnfyrirtæki hafa lækkað minnst eins og sjá má séu fyrirtæki Kauphallarinnar skoðuð. „Þeir sem stigu síðast- ir um borð í góðæris- lestina áður en hún fór af sporinu standa nú margir uppi með hend- urnar hálftómar.“ Eimskip Hefur tapað miklu á útrásarverkefnum sínum. FL Group Það var þungt yfir mörgum á síðasta aðalfundi fl group. HAFstEinn GunnAr HAuksson blaðamaður skrifar: hafsteinng@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.