Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 40
Ættfræði DVföstudagur 4. júlí 200840
Magnús fæddist á Sauðárkróki.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1968,
stundaði nám í sagnfræði og stærð-
fræði við HÍ 1969-71, nám í veður-
fræði við Uppsalaháskóla 1975-69,
lauk þaðan fil. kand.-prófi og stund-
aði framhaldsnám í veðurfarsfræði
við Uppsalaháskóla 1979. Magn-
ús var kennari við Hagaskólann í
Reykjavík 1970-75, við MS 1979-80
og við MA 1982-85. Hann var veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands 1980-
82 og frá 1985 og hefur verið veður-
stofustjóri frá 1994.
Magnús sat í stjórn Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga 1981-82, í
kjararáði og samninganefnd félags-
ins 1986-88, í verðtrygginganefnd
1988, í ráðgjafanefnd um umhverf-
isáhrif iðjuvera frá 1989-92, í nefnd
um stefnumótun í umhverfismál-
um 1990-91, var formaður Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur 1989-90, var
varaþingmaður í Reykjavík 1991-95,
sat í stjórn Félags forstöðumanna
ríkisstofnanna 1997-2003, var for-
maður félagsins 1999-2003, situr
í Almannavarnaráði, situr í stjórn
Landsbókasafns Háskólabókasafns
frá 2006 og situr í Vísinda- og tækni-
ráði frá 2003.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 25.12. 1973
Karítas Ragnhildi Sigurðardóttur, f.
18.5. 1949, hjúkrunarfræðingi. Hún
er dóttir Sigurðar Guðmundssonar,
klæðskera og forstjóra á Akureyri, og
k.h., Guðrúnar Karítasar Karlsdóttur,
húsmóður og verslunarmanns.
Börn Magnúsar og Karítasar eru
Lena, f. 24.11. 1971, markaðsfræð-
ingur í Reykjavík en maður hennar er
Sindri Gunnarsson og eiga þau þrjú
börn; Sigurður Freyr, f. 4.12. 1972,
verkfræðingur en kona hans er Perla
Björk Egilsdóttir og eiga þau tvö
börn auk þess sem hann á barn fyrir;
Magnús Karl, f. 10.7. 1980, læknir.
Systkini Magnúsar eru Jónína, f.
1950, bankastarfsmaður á Sauðár-
króki; Helgi, f. 1952, húsgagnasmið-
ur í Reykjavík; Halldór, f. 1953, verk-
stjóri á Akureyri.
Foreldrar Magnúsar eru Jón Krist-
bergur Ingólfsson, f. 1.10. 1925, bif-
vélavirki á Sauðárkróki, og Regína
Margrét Magnúsdóttir, f. 14.3. 1927,
húsmóðir.
Ætt
Jón er sonur Ingólfs, smiðs á
Steinsstöðum í Tungusveit, hálf-
bróður Þórhalls, útgerðarmanns og
kaupmanns á Höfn, föður Daníels,
útgerðarmanns og söngvara á Siglu-
firði og Olgu, móður Örvars Kristj-
ánssonar tónlistarmanns. Ingólfur
var sonur Daníels, pósts á Steins-
stöðum Sigurðssonar, og Sigríðar
Sigurðardóttur frá Víðivöllum. Móðir
Jóns var Jónína Guðrún Einarsdóttir,
b. á Mannskaðahóli Jónssonar.
Regína Margrét er dóttir Magn-
úsar, smiðs á Sauðárkróki Halldórs-
sonar, b. á Ystu-Grund og járnsmiðs
á Sauðárkróki, bróður Ingibjargar,
langömmu Sigurgeirs, fyrrv. bæjar-
stjóra á Seltjarnarnesi, Magnúsar
Jónssonar, ráðherra frá Mel og Hall-
dórs Þormars sýslumanns, föður
Jóns Orms prófessors. Ingibjörg var
dóttir Þorleifs, b. á Botnastöðum,
bróður Ingibjargar Salome, ömmu
Jóns Leifs og Jóns, alþingisforseta á
Akri, föður Pálma, fyrrv. ráðherra.
Þorleifur var sonur Þorleifs ríka,
hreppstjóra í Stóradal, Þorkelsson-
ar, og Ingibjargar, systur Ingiríðar,
ömmu Sigríðar, ömmu Matthíasar
Bjarnasonar alþingismanns. Ingi-
björg var dóttir Guðmundar ríka í
Stóradal, Jónssonar, ættföður Skegg-
staðaættar Jónssonar. Móðir Hall-
dórs járnsmiðs var Ingibjörg, syst-
ir Einars, föður Indriða rithöfundar.
Ingibjörg var dóttir Magnúsar, prests
í Glaumbæ, Magnússonar, og Sig-
ríðar Halldórsdóttur Vídalín, systur
Benedikts, langafa Einars Benedikts-
sonar skálds. Móðir Magnúsar smiðs
var Sigríður Magnúsdóttir, b. á Utan-
verðunesi, Árnasonar, og Sigurbjarg-
ar Guðmundsdóttur.
Móðir Regínu Margrétar er
Hólmfríður, systir Moniku á Merki-
gili. Hómfríður er dóttir Helga,
b. á Ánastöðum Björnssonar, og
Margrétar, systur Sigríðar, ömmu
Gunnars, Harðar og Bjarna Felix-
sona. Margrét var dóttir Sigurðar, b.
í Ásmúla á Landi Sigurðssonar, b. í
Kálfholtshjáleigu, bróður Jóns, afa
Halldórs, afa Halldórs V. Sigurðs-
sonar, fyrrv. ríkisendurskoðanda.
Jón var einnig afi Guðrúnar, lang-
ömmu Sigurðar E. Guðmundsson-
ar, forstjóra Húsnæðisstofnunar.
Móðir Sigurðar í Kálfholtshjáleigu
var Sesselja Aradóttir, b. í Götu á
Stokkseyri Bergssonar, hreppstjóra
í Brattsholti og ættföður Bergsætt-
ar Sturlaugssonar. Móðir Margrét-
ar var Guðný, systir Guðmundar í
Gröf, langafa Svövu, móður Ágústs
Einarssonar, rektors Viðskiptahá-
skólans á Bifröst. Guðný var dóttir
Guðmundar, b. í Efstadal í Laugar-
dal Guðmundssonar.
60 ára á miðvikudag
Magnús Jónsson
veðurstofustjóri
Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson kgk@dv.is
Kjartan gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra
íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
íslendinga. lesendur geta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is.
Gunnar Konráðsson
fyrrv. bóndi á Efri-Grímslæk í ölfusi
Gunnar fæddist á
Efri-Grímslæk og ólst
þar upp. Hann gekk í
Héraðsskólann á Laug-
arvatni 1946-48. Gunn-
ar stundaði vinnu á búi
foreldra sinna og vann
ýmis störf sem til féllu
í sveitinni. Hann festi
síðan kaup á vörubíl
og stundaði vegavinnu
þegar svo bar við, m.a.
í Krýsuvíkurvegi, auk
þess sem hann flutti
fisk og fiskafurðir frá
Þorlákshöfn. Þá reri
hann þrjár vertíðir hjá hinum
aflasæla skipstjóra, Guðmundi
Friðrikssyni í Þorlákshöfn, og
vann margar vertíðir í fiskverk-
un hjá Meitlinum. Gunnar tók
við búi foreldra sinna að Efri-
Grímslæk 1967 og stundaði
þar búskap til 2003 er sauðfé
var skorið í Vestur-Ölfusi vegna
ritðuveiki. Hann flutti síðan til
Þorlákshafnar sl. haust.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 4.7. 1959
Grétu Jónsdóttur, f. 24.9. 1937,
d. 9.9. 2007, húsfreyju. Hún var
dóttir Jóns Sigurðssonar, f. 21.9.
1910, d. 31.12. 1993, og Fan-
neyjar Eyjólfsdóttur, f. 9.7. 1914,
d. 3.7. 1989, frá Hafnarfirði.
Börn Gunnars og Grétu eru
Konráð, f. 31.5. 1956, starfs-
maður við fiskvinnslu í Þorláks-
höfn; Jón, f. 22.1. 1959, líkams-
ræktarþjálfari í Reykjavík, var
kvæntur Soffíu Sveinsdóttur og
er sonur þeirra Viktor; Gunnar,
f. 14.1. 1977 var í sambúð með
Ragnhildi Magnúsdóttur sem
lést 2004 en sambýliskona hans
nú er Matthea Sigurðardóttir.
Systkini Gunnars eru Ingólf-
ur, f. 19.6. 1929, fyrrv. starfs-
maður Samskipa, kvæntur
Ragnheiði Halldórsdóttur hús-
móður og eignuðust þau fimm
börn en fjögur þeirra eru á lífi;
Magnús, f. 8.9. 1933, fyrrv. bif-
reiðastjóri hjá Mjólk-
urfélagi Reykjavíkur,
var kvæntur Jónu Sig-
ursteinsdóttur og eiga
þau fjögur börn; Sig-
ríður, f. 20.2. 1937, hús-
móðir í Þorlákshöfn,
gift Guðmundi B. Þor-
steinssyni vélstjóra og
eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Gunnars
voru Konráð Einarsson,
bóndi á Efri-Grímslæk,
og k.h., Soffía Ásbjörg
Magnúsdóttir hús-
freyja.
Ætt
Konráð var sonur Einars, b.
á Efri-Grímslæk Eyjólfssonar,
b. á Efri-Grímslæk Eyjólfsson-
ar. Móðir Einars var Kristrún
Þórðardóttir, b. í Hlíð í Eystri-
hreppi Guðmundsonar. Móðir
Konráðs var Guðrún Jónsdóttir,
b. á Hjalla og síðar kaupmanns
í Reykjavík Helgasonar og Guð-
rúnar Bergsdóttur. Móðir Guð-
rúnar var Aldís, systir Ófeigs,
ríka á Fjalli, langafa Tryggva
Ófeigssonar útgerðarmanns.
Systir Aldísar var Sólveig á
Hlemmiskeiði, langamma
Guðríðar í Tryggvaskála, ömmu
Guðlaugs Tryggva.
Soffía Ásbjörg var dóttir
Magnúsar, b. á Efra-Skarði Ól-
afssonar, b. á Drageyri Böðvars-
sonar. Móðir Magnúsar Ólafs-
sonar var Þórunn Árnadóttir, b.
í Litla-Lambhaga Þorkelssonar
og Guðrúnar Karlsdóttur. Móð-
ir Soffíu Ásbjargar var Sigríð-
ur Ásbjörnsdóttir, þurrabúðar-
manns í Melshúsum á Akranesi
Ásbjörnssonar, b. í Melshúsum
Erlendssonar. Móðir Ásbjörns
Ásbjörnssonar var Sigríður
Jónsdóttir. Móðir Sigríðar Ás-
björnsdóttur var Soffía Sveins-
dóttir, b. á Beigalda Sigurðsson-
ar og Sigríðar Sigurðardóttur.
Gunnar verður að heiman á
afmælisdaginn.
80
ára á
föstudag
Heiðrún Kjartansdóttir
starfsmaður við Barna- og unglingageðdeild lsH
Heiðrún fæddist í
Reykjavík en ólst upp
í Keníu frá tveggja ára
aldri þar sem foreldrar
hennar voru kristniboð-
ar. Þar var hún á norsk-
um heimavistarskóla og
bandarískum mennta-
skóla. Hún stundaði
nám við MH og lauk
þaðan stúdentsprófi
1998 og lauk BA-prófi í
sálfræði frá HÍ 2005. Hún
stundaði auk þess nám í
píanóleik frá barnæsku
og söngnám.
Heiðrún starfaði við leikskóla
2005-2006 og hefur starfað hjá
BUGL frá 2006.
Heiðrún söng með ýmsum
kórum sem barn og unglingur,
söng með Gospelkór Reykjavík-
ur frá stofnun og þar til nýverið
og söng með Kanga kvartettinum
frá 1997 og í nokkur ár en kvart-
ettinn gaf út geisladisk 2001 og
rennur ágóðinn af sölu disksins
til kristniboðs- og þróunarhjálpar
í Keníu og Eþíópíu.
Heiðrún var í KSS á mennta-
skólaárum og KSF á háskólaár-
um, hefur mikið sinnt tónlistar-
starfi hjá KFUM og K
og er nú í Salti, kristnu
samfélagi. Þá sækir hún
samkomur hjá Kær-
leikanum. Hún starf-
aði í Vindáshlíð í nokk-
ur sumur og sat í stjórn
Vindáshlíðar um skeið.
Fjölskylda
Systkini Heiðrúnar
eru Ólöf Inger Kjartans-
dóttir, f. 10.12. 1980, M.
Paed. í ensku og dag-
mamma í Danmörku en
maður hennar er Krist-
inn Óðinsson og er sonur þeirra
Gunnar Jakob; Jón Magnús Kjart-
ansson, f. 13.9. 1984, nemi í fjár-
málaverkfræði en kona hans er
Marisa Kjartansson.
Foreldrar Heiðrúnar eru
Kjartan Jónsson, f. 3.4. 1954, dr.
í mannfræði, kristniboði og hér-
aðsprestur Kjalarnessprófasts-
dæmis, og Valdís Magnúsdóttir, f.
28.10. 1949, kennari.
Heiðrún verður stödd á kristi-
legu móti á afmælisdaginn en
hennar mesta gæfa í lífinu er fólg-
in í því að hafa fengið að kynnast
Jesú.
30
ára á
föstudag