Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 33
DV Helgarblað föstudagur 4. júlí 2008 33 Berglind ÓlafsdÓttir Berglind „Icey“ fór út í Hawaiian Tropic-keppn- ina fyrir Íslands hönd árið 1997 og heillaðist þessi föngulega stúlka strax af borg englanna. Berglind hefur síðan þá búið í Los Angeles og unnið að alls kyns kvikmynda- og fyrirsætustörfum. Berglindi vegnar vel vestanhafs og var meðal annars tilnefnd sem kynþokkafyllsta kona heims af tímaritinu FHM. Óttar Martin norðfjörð Höfundur Hnífs Abrahams flutti til Barcelona til að skrifa sína aðra skáldsögu sem kemur væntanlega út um næstu jól. Borgin gefur Óttari án efa mikinn inn- blástur því hann hefur hafið skriftir á enn fleiri verkum. Óttar er ekki einn í Barcelona. Auður Jónsdóttir og eig- inmaður hennar eiga einnig heima þar. Þessir rithöf- undar eyða án efa ófáum stundunum saman yfir kaffi. Kristján jÓhannsson Einn frægasti og dáðasti (að minnsta kosti hér í eina tíð) óperusöngvari þjóðarinnar. Fæddur og uppalinn á Akureyri en eftir að hafa lært undir- stöðuatriðin í söng hjá sjálfum Sigurði Demetz fór Kristján til Ítalíu í frekara söngnám á áttunda ára- tugnum. Þar hefur hann alið manninn mörg und- anfarin ár en heimsækir fósturjörðina við og við, endrum og sinnum til tónleikahalds. Þrátt fyrir að Kristján sé umdeild persóna í meira lagi má hann eiga það að hann hefur sungið á helstu óperusvið- um heimsins, þar á meðal Scala og Metropolitan. helgi Björnsson Söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson býr í Berlín. Síðustu árin hefur hann snúið sér æ meira að viðskiptum og endur- reisti meðal annars hið sögu- fræga Admiralspalats sem hef- ur að geyma stórt leikhús sem Helgi rekur. Að hans sögn er dásamlegt að búa í Berlín sem er virkilega að koma sterkt inn sem miðpunktur menningar- lífs í Evrópu. auður jÓnsdÓttir og ÞÓrarinn leifsson Skötuhjúin Auður og Þórarinn hafa búið í hinni rómuðu borg Barcelona undanfarin misseri. Bæði sinna þau listinni þar af miklum móð, Auður í ritstörfum og Þórarinn í myndlist og ritstörfum. Dvölin í Katalóníu virð- ist gera þeim gott því bæði hafa fengið mikið lof fyrir bækur sínar, og er skemmst að minnast bókar Þórarins, Leyndarmálið hans pabba, sem kom út fyrir síðustu jól. steinunn Ólína ÞorsteinsdÓttir og stefán Karl stefánsson Þetta leikarapar flúði eyjuna og flutti í hlýja loftslagið í Kaliforníu, nánar tiltekið í San Diego. Hjónin hafa búið þar í rúman áratug og líkar vel, enda kannski ekki furðulegt þar sem San Diego er oft kölluð paradís á jörðu. Þetta leikarapar vinnur náið saman að alls kyns verkefnum vestanhafs og ætlar sér ekki að koma heim. dÓra taKefusa Sagði skilið við íslenska skemmtanabransann og flutti til Kaupmannahafnar. Þar gerði hún sér lítið fyrir og opnaði skemmtistað ásamt vinkonu sinni. Staðurinn fékk nafnið Jolene og nýtur mikilla vin- sælda meðal Íslendinga sem og Dana. Dóra Tak- efusa hefur það óvenju gott úti ásamt kærastanum Össa sem er betur þekktur undir nafninu 7berg. steinunn sigurðardÓttir Steinunn hefur búið ásamt eiginmanni sínum í þorpinu Sauve í Suður-Frakklandi síðastliðin átta ár og skrifar þar hvert meistaraverkið á fætur öðru. Síðastliðið haust var Steinunn reyndar að velta fyrir sér að flytja tímabundið til Berlínar, en sagðist þá í viðtali við DV ekki hafa nein plön um að yfirgefa Frakkland fyrir fullt og fast. „Ég get ekki ímyndað mér marga staði á jarðríki sem væri yndislegra að búa á en á þessum bletti okkar,“ sagði skáldkonan skelegga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.