Fréttatíminn - 05.06.2015, Page 11
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens eru vel hannaðir að innan sem utan.
Í innréttingunum eru stillanlegar hillur, einstaklega björt LED-lýsing og
mikið rými.
Svo að ekki þurfi að henda mat koma „crisperBox“- og „coolBox“-skúff-
urnar að góðum notum. „crisperBox“-skúffan er með rakastillingu sem
tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. Í „coolBox“-skúffunni er
kuldinn meiri (-2° til 3° C) en annars staðar í kælinum og eykur þar með
geymsluþol ferskra kjötvara og fisks. Í frystirými sambyggðu kæli- og
frystiskápanna eru þrjár gegnsæjar frystiskúffur, þar af ein stór
(„bigBox“).
Með því að velja skápa með „noFrost“ sleppa menn alveg við að affrysta
frystirýmið.
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens hafa mjög góða orkunýtni.
Þeir eru nú allir í orkuflokki A+, A++ eða A+++.
Siemens er í fararbroddi í hönnun, tækni
og nýjungum.
Smith & Norland er Siemens-umboðið á
Íslandi.
Smith & Norland sinnir varahluta- og
viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði
á eigin verkstæði.
Kæli- og frystiskápar
frá Siemens
Samviska listheimsins
Guerrilla Girls fögnuðu 30 ára
afmæli í vor en þær komu fyrst
saman þegar þeim ofbauð skertur
hlutur kvenna á yfirlitssýningu á
Museum of Modern Art í New York
yfir það sem þótti bera af það árið í
samtímalist á heimsvísu. Þær kalla
sig „samvisku listheimsins“ og eru
afdráttarlausar þegar kemur að
mismunun og spillingu í listum,
pólitík og poppkúltúr. Verk þeirra
eru í eigu margra helstu listasafna
heims, á borð við Centre Pompidou
í París, Museum of Modern Art í
New York, Reina Sofia, Madrid og
Tate Modern í London. Þær eru
höfundar límmiða, auglýsinga-
spjalda, götuverka og fjölda bóka.
Auk þess að gera veggspjaldið
fyrir Listahátíð í Reykjavík héldu
Guerrilla Girls í gær fyrirlestur í
Bíó Paradís þar sem þær fjölluðu
um hugmyndavinnuna á bak við
verk sín.
Sjálfsprottin bylting
Käthe og Frida eru mjög áhugasam-
ar um jafnréttisbaráttuna á Íslandi
og segjast til að mynda afar hrifnar
af því hversu margar konur sitja á
þingi. Ég ákveð að segja þeim frá
byltingunni sem hefur átt sér stað
í Facebook-hópnum Beauty Tips.
Hópurinn var upphaflega stofnaður
fyrir stúlkur til að skiptast á „bjútí“-
ráðum en fljótt þróaðist það út í að
fá umræðuefni voru hópnum óvið-
komandi, en hann er læstur og ekki
hægt að fá aðgang nema vera boðið
af meðlimi. Forsaga byltingarinnar
er að vinkona stúlku sem tiltekinn
maður var sagður hafa barnað
þegar hún var sextán ára spurði í
hópnum hvort þar væru einhverjar
sem hefðu lent í honum. Barnsmóð-
irin unga gaf sig þar fram og heitar
umræður spunnust upp. Stúlkurnar
ræddu mismunandi birtingarmynd-
ir kynferðisofbeldis og áreitni en
þegar umræðan virtist farin á villi-
götur eyddi stjórnandi hópsins allri
umræðunni. Það var þá sem byltingin hófst
og hver af annarri tóku stúlkur að birta
eigin reynslusögur af kynferðisofbeldi og
nauðgunum. Ég er enn að segja Guerrilla
Girls frá þessu þegar önnur þeirra biður
mig að endurtaka nafnið á hópnum svo
hún geti skrifað það hjá sér. „Þetta er stór-
merkilegt,“ segir Käthe. Frida bendir á að
þetta hafi greinilega ekki verið skipulagt
heldur sé þetta sjálfsprottin bylting. „Ég
held að það sé mjög erfitt að þegja yfir því
að hafa verið beittur kynferðisofbeldi og
mikið frelsi sem því fylgir að fá allt í einu
rými til að geta talað,“ segir hún. „Mér
finnst frábært að þessi hópur hafi þróast á
þennan hátt yfir í pólitíska hreyfingu. Þetta
er „fantastic,“ segir Käthe.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Tvær Guerrilla
Girls, þær
Käthe Koll-
witz og Frida
Kahlo, komu
hingað til
lands vegna
Listahátíðar
Reykjavíkur.
Þær eru mjög
áhugasamar
um jafnrétt-
isbaráttuna á
Íslandi og lýsa
yfir sérstakri
hrifningu með
byltinguna á
Beauty Tips.
Mynd/Hari
Verkið sem
Guerrilla Girls
settu upp á
Listahátíð í
Reykjavík stend-
ur á austurhlið
Tollhússins og
er ádeila á fjár-
styrki til kvenna
í kvikmynda-
gerð. Mynd/Hari
viðtal 11 Helgin 5.-7. júní 2015