Fréttatíminn - 05.06.2015, Side 22
E ftir að við erum sest með rjúkandi espresso í bollum við sófaborð í einbýlishúsi á
Bráðræðisholtinu liggur auðvitað
beinast við að spyrja Jón Ársæl hvað
taki nú við hjá honum. Svörin liggja
þó ekki alveg á lausu.
„Þetta er orðinn langur tími með
sama þáttinn og ég er alveg tilbú-
inn að takast á við nýja hluti,“ segir
hann véfréttarlegur. „Þetta var mín
eigin ákvörðun en svo er auðvitað
alls kyns pólitík í svona fyrirtækjum
eins og Stöð 2 sem spilar inn í og
Ævisagan
er ekki
prenthæf
Einn vinsælasti sjónvarpsþáttur íslenskrar sjónvarpssögu lauk
göngu sinni á sunnudagskvöldið eftir fjórtán ár í loftinu. Það
var því við hæfi að taka hús á stjórnandanum, Jóni Ársæli
Þórðarsyni, og spyrja hann sömu spurninga og hann hefur
spurt tæplega fimm hundruð Íslendinga í þáttunum. Skip-
stjórasonurinn sem byrjaði á sjónum tólf ára og stundaði síðar
sálfræðirannsóknir á galdramönnum í Afríku hefur enda frá
mörgu að segja þótt hann segi ævisögu sína of viðsjárverða til
að eiga erindi fyrir almenningssjónir.
ákvörðunin því í raun sameiginleg.
Ég er mjög sáttur við hana enda ein-
settum við okkur það strax í upp-
hafi að við ætluðum ekki að halda
þessum þætti úti það lengi að hann
væri farinn að dala, vildum hætta á
toppnum og gerðum það. Við vorum
efins um hversu margir einstakling-
ar þyldu hálftíma heimildarþátt um
sjálfa sig en á þeim reyndist eng-
inn hörgull og nú sitjum við uppi
með tæplega fimm hundruð þætti
um sjálfstætt fólk á Íslandi, sem
eru auðvitað hluti af sögu okkar og
merkileg heimild. Hver einstakling-
ur hefur sína sögu að segja, málið
er bara að setjast niður og hlusta.“
Þótt Sjálfstætt fólk hafi lokið göngu
sinni á sunnudagskvöldið segist Jón
Ársæll geta lofað sjónvarpsáhorfend-
um því að hann sé ekki horfinn af
skjánum. „Stöð 2 vill áframhaldandi
samstarf og við erum að skoða það,“
segir hann en vill ekki gefa meira upp
að svo stöddu. Hvað komi út úr því
verði bara að koma í ljós.
Keyptur yfir á Bylgjuna
Jón Ársæll er sálfræðingur að
mennt. Hvernig stóð á því að hann
lenti inn í fjölmiðlabransann?
„Ég var í klínísku námi í sálar-
fræði, fyrst hérna heima og svo úti í
Lundi í Svíþjóð, og vann sem slíkur
fyrst eftir að ég kom heim frá námi.
Fékk mig svo lausan úr sálfræði-
starfinu og fór að kenna um tíma en
mér fannst það ekki eiga við mig.
Ég var að kenna í unglingadeildum
og þegar ég stóð mig að því að vera
farinn að öskra í tímum þá sá ég að
þetta var ekki starf sem ég mundi
kjósa mér sem ævistarf. Um það
leyti sá ég auglýst eftir starfsfólki á
Tímann sem þá var verið að breyta
í Nútímann og þar sem mig hafði
alltaf dreymt um að vinna við fjöl-
miðla greip ég tækifærið. Eftir mjög
skemmtilegt tímabil á Nútímanum
fór ég í tímaritabransann á Mann-
lífi og Fjölni og svo þaðan í útvarp,
fyrst á Stjörnunni og síðan í morg-
unútvarpi Rásar 2. Þetta var á þeim
tíma þegar enn tíðkaðist að kaupa
fjölmiðlafólk frá öðrum fyrirtækjum
og ég var keyptur yfir á Bylgjuna í
Reykjavík síðdegis. Það var auðvi-
tað blóðskömm að breyta því fallega
nafni en ég vildi fríska upp á þátt-
inn og hann fékk því nafnið Ísland
í dag. Þar var ég í eitt og hálft ár
en fór þá upp á fréttastofu Stöðvar
2. Ég þótti hins vegar aldrei neinn
svakalegur rannsóknarfréttamað-
ur og var oftast með mjúkar fréttir
úr mannlífinu sem mér fannst vera
miklu meira virði heldur en ein-
hverjar staðreyndaflækjur. Það var
því ákveðið að hluti af fréttatíman-
um héti einfaldlega Ísland í dag. Síð-
an eru að nálgast þúsaldamót og þá
fékk ég þá hugmynd að freista þess
að segja sögu Íslands á 20. öldinni
og fékk að kalla saman lítinn hóp af
sérfræðingum til að gera þættina
20. öldin – brot úr sögu þjóðar. Við
gerðum tíu þætti á þremur árum og
þeir fengu mikið áhorf. Að því loknu
var krafan sú að koma með helst
einhverja ennþá betri hugmynd sem
væri bæði góð og ódýr og þannig
varð Sjálfstætt fólk til. Sú þáttagerð
hefur verið mikið ævintýri í fjórtán
ár sem lýkur núna á sunnudaginn.“
Sálfræðin sjónum yfirsterkari
Faðir Jóns Ársæls var togaraskip-
stjóri og hann ólst upp á Seyðisfirði
og Eskifirði áður en fjölskyldan flutti
til Reykjavíkur. Datt honum aldrei í
hug að gera sjómennskuna að ævi-
starfi? „Jú, jú, ég var kominn á togara
tólf ára gamall og var öll sumur á sjó
sem unglingur. Löngu fyrr var ég
kominn í fiskverkun og þar sem ég
var stór og sterkur strákur var ég ell-
efu ára gamall settur á kvennakaup
við hliðina á konum sem höfðu unnið
alla sína hunds og kattartíð í fiski.
Þannig var nú réttlætið þá.”
En hvað heillaði þig við sálfræðina?
„Ég var í Kennaraskólanum þar
sem voru frábærir kennarar í sál-
arfræði, meðal annars Broddi Jó-
hannesson rektor sem var sálfræði-
menntaður. Ég var líka veikur fyrir
dulsálarfræði og þegar ég fór í sálar-
fræðina í háskólanum var þar verið
að kenna hana eins og víða á Vestur-
löndum, þótt nú sé búið að leggja þá
fræðigrein alveg af. Dulsálarfræðin
snýst um yfirskilvitleg fyrirbæri og
við stunduðum meðal annars rann-
sóknir á Hafsteini miðli sem þá var
okkar frægasti og besti miðill. Þessi
áhugi fylgdi mér og þegar ég var að
ljúka mastersnámi úti í Lundi og átti
að velja rannsóknarefni fyrir loka-
ritgerðina stakk ég upp á því að ég
fengi að fara til Afríku, leita þar
uppi galdramenn og skrifa um þá og
þeirra hugmyndaheim.“
Á puttanum heim frá Afríku
Jón Ársæll lét ekki sitja við hug-
myndina eina, fór til Afríku og
Ég hef alltaf verið grallari og
haft gaman af því að brjóta
reglurnar. Ljósmyndir/Hari
Framhald á næstu opnu
22 viðtal Helgin 5.-7. júní 2015