Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 26
Afslappandi
að skjóta
Jórunn Harðardóttir, formaður Skotfélags Reykjavíkur og
framkvæmdastjóri Veðurstofu Íslands, keppir fyrir hönd Ís-
lands í skotfimi á Smáþjóðaleikunum. Hún segir skotíþróttina
veita sér kærkomið næði frá amstri dagsins. Íþróttin snúist um
að vera með hugann á réttum stað frekar en líkamlegan styrk.
É g giftist inn í íþróttina fyrir 25 árum en allir karlarnir í tengdafjölskyldunni eru
miklar skyttur og afi mannsins
míns var einn af þeim mönnum
sem endurvöktu Skotfélag Reykja-
víkur á sínum tíma,“ segir Jórunn
Harðardóttir, formaður Skotfélags
Reykjavíkur, en hún keppir fyrir
hönd Íslands í skotfimi á Smáþjóða-
leikunum. „Það var svo eftir að ég
kom heim úr doktorsnámi í jarð-
fræði í Bandaríkjunum sem ég gekk
til liðs við félagið og fór að æfa. Og
nú erum við hjónin bæði á fullu í
þessu.“
Gott að loka sig af með
eyrnatappa
Jórunn segir skotíþróttina fyrst og
fremst vera skemmtilega en þar að
auki hjálpi hún sér að slaka á og
hverfa frá amstri dagsins.
„Það er ekki hávaðinn sem heillar
mig heldur er það að keppa við sjálfa
mig sem mér finnst skemmtilegt.
Maður er alltaf að gera sitt besta
og maður er alltaf gráðugur í að
gera betur en síðast. Í minni vinnu
er mikið álag og áreiti og að geta
horfið inn í þennan heim, lokað mig
af með eyrnatappa og ekki hugsað
um neitt nema að skjóta er voða-
lega gott,“ segir Jórunn en hún er
framkvæmdastóri Veðurstofu Ís-
lands. „Þetta er ákveðin afslöppun
og svo fylgir ánægjan af því að hitta
í kjölfarið. Þetta er svolítið eins og
að fara í tívolí og vera alltaf að bíða
eftir því að hitta bangsann, það er
sami fílingurinn.“
Elsta íþróttafélag landsins
Skotfélag Reykjavíkur var stofnað
árið 1867 við Skothúsveg í Reykja-
vík og er því elsta íþróttafélag lands-
ins. Sportið er stærra en margir
gera sér grein fyrir, Skotfélagið er
með stærstu íþróttafélögum lands-
ins með um 4000 félagsmenn.
„Það eru ótrúlega margar byssur
í landinu. Það fylgdi auðvitað öllum
búskap bændasamfélagsins að eiga
allavega einn riffil og eina hagla-
byssu og það voru flestir með þetta
undir rúminu hjá sér. Sem íþrótt er
þetta kannski minna þekkt en þetta
hefur samt sem áður verið stundað
sem íþrótt alveg frá upphafi félags-
ins og samtökin voru stofnuð sem
íþróttafélag en ekki veiðsamtök,“
segir Jórunn sem veiðir ekki mik-
ið sjálf heldur lítur miklu frekar á
skytteríið sem hugarleikfimi. „Ég
er ekki mikill veiðimaður en skýt
þó hreindýr á svona fimm ára fresti.
Mér finnst útiveran sem fylgir því
skemmtileg.“
Hugurinn skiptir mestu máli
„Það er ótrúlega breiður hópur sem
stundar þetta sport og sem keppir.
Á Smáþjóðaleikunum núna erum
við með þátttakendur frá 16 ára og
upp í 60 ára. Það þarf að hafa ákveð-
inn styrkleika en samt ekkert mikla
krafta. Ef þú lítur yfir keppendahóp-
inn á leikunum núna þá er þetta ekki
fólk sem lítur út fyrir að vera afreks-
fólk í íþróttum, ekki af vaxtarlaginu
að dæma. Það sem skiptir mestu
máli er að halda heilanum á réttum
stað og hafa hann rétt skrúfaðan á.
Það er hugurinn sem skiptir mestu
máli í þessari íþrótt. Þú þarft að vera
einbeitt og í jafnvægi og þú þarft að
hafa taugarnar í lagi því ef það kem-
ur upp stress þá fer allt til fjandans.“
Vilja fleiri konur í sportið
Jórunn keppir fyrir hönd Íslands á
Smáþjóðaleikunum í tveimur flokk-
um, loftriffli og loftskammbyssu.
Hún segir loftskammbyssauna
vera sína uppáhaldsgrein þó 50 mm
liggjandi riffill sé hennar uppáhalds
vopn. „Það er mikill vöxtur í íþrótt-
inni en því miður er meirihlutinn
enn karlar, við viljum endilega fá
fleiri konur í félagið. Okkur vant-
ar nýliðun í hópinn en það hamlar
starfinu verulega hversu seint er
hægt að byrja að æfa, segir Jórunn
en samkvæmt íslenskum lögum má
ekki byrja að æfa fyrr en um 15 ára
aldurinn. „15 ára er aldurinn sem
krakkar byrja oftast að detta út úr
íþróttum og það væri því gott að ná
þeim áður. Það væri mjög gaman að
geta boðið upp á unglingaæfingar
með leiðsögn, eins og er gert í öll-
um löndum í kringum okkur. Þetta
eru vopn en með réttri meðferð þá
getur ekkert gerst. Þú fótbrýtur þig
allavega ekki í þessari íþrótt.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Það er hugurinn sem
skiptir mestu máli í
þessari íþrótt. Þú þarft
að vera einbeitt og í
jafnvægi og þú þarft
að hafa taugarnar í
lagi því ef það kemur
upp stress þá fer allt til
fjandans.
Jórunn Harðardóttir, formaður Skot-
félags Reykjavíkur og framkvæmda-
stjóri Veðurstofu Íslands, segir skotí-
þróttina veita sér kærkomið næði frá
amstri dagsins. Ljósmynd/Hari
Skotfélag Reykjavíkur er
elsta íþróttafélag landsins
en það var stofnað árið 1867
við Skothúsveg í Reykjavík og
upphaflega fóru æfingar fram
við Tjörnina í Reykjavík. Skot-
húsvegur dregur nafn sitt af
húsi félagsins sem var reist af
dönskum og íslenskum skot-
félagsmönnum. Starfsemi
félagsins lá að mestu niðri
styrjaldarárin og milli stríða
en formleg starfsemi þess
var endurreist árið 1950.
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
26 viðtal Helgin 5.-7. júní 2015