Fréttatíminn - 05.06.2015, Síða 50
50 heilsa Helgin 5.-7. júní 2015
3x15
Kolvetnaskert,
próteinríkt og fitulaust
Hentar
fyrir LKL
mataræði
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Njótum
matarins
saman
E mbætti landlæknis, Hjarta-vernd og Krabbameinsfélagið gáfu í vikunni út nýtt vegg-
spjald sem byggir á endurskoðuðum
ráðleggingum landlæknisembætt-
isins um rétt mataræði. Þar er lögð
áhersla á mataræðið í heild sinni
frekar en einstök næringarefni, og
að fólk borði fjölbreyttan mat í hæfi-
legu magni, hafi reglu á máltíðum og
njóti þess að borða. Æskilegt er að
velja fyrst og fremst matvæli sem eru
rík að næringarefnum frá náttúrunn-
ar hendi, svo sem grænmeti, ávexti,
ber, hnetur, fræ, heilkornavörur,
baunir og linsur, feitan og magran
fisk, olíur, fituminni mjólkuvörur og
kjöt og vatn til drykkjar. Takmarka
ber hins vegar neyslu á unnum mat-
vörum sem innihalda oft mikið af
mettaðri fitu, sykri eða salti. Og síð-
ast en ekki síst þá er mikilvægt að
við veitum matnum athygli og að við
gefum okkur tíma til að njóta hans.
n Heilkorn minnst
tvisvar á dag. Mælt
er með neyslu á
rúg, heilhveiti, gróf-
möluðu spelti eða
höfrum og að notað
sé bygg, hýðishrís-
grjón og heil-
kornapasta í stað
fínunninna vara.
n Fiskur tvisvar til
þrisvar í viku, þar
af einu sinni feitur
fiskur á borð við
lax, bleikju, lúðu
eða makríl.
n Kjöt í hófi,
sérstaklega rautt
kjöt. Mikil neysla
á rauðu kjöti,
sér í lagi unnum
kjötvörum, tengist
auknum líkum
á krabbameini í
ristli og þyngdar-
aukningu. Feitar
kjötvörur innihalda
einnig mikið af
mettaðri fitu.
Baunir eru prótein-
ríkar og geta komið
í stað kjöts.
n Tveir skammtar
af fitulitlum og
hreinum mjólkur-
vörum á dag.