Fréttatíminn - 05.06.2015, Page 58
H ljómsveitin Ensími var stofnuð árið 1996 til að svala þorsta liðsmanna í tónlistarsköpun. Í upphafi var ekki
stefnan að gera eiginlega hljómsveit en eftir
eðlilegan meðgöngutíma hljóðrituðu liðs-
menn prufuupptökur af nokkrum lögum
sem rötuðu í hendurnar á útgefendum sem
vildu ólmir gefa efniviðinn út. Nú eru liðin
tæp tuttugu ár síðan og fimmta plata sveitar-
innar á leiðinni til landsins.
Franz Gunnarsson, gítarleikari sveitar-
innar, segir tónlistina í ætt við fyrri plötur,
en þó hafi einfaldleikinn fengið að ráða ferð-
inni í þetta sinn. „Við erum búnir að dunda
við þessa plötu í tvö ár, en þó með miklum
hléum inn á milli,“ segir Franz. „Upphaflega
átti ekkert að pæla í plötu en svo fóru lögin
að hlaðast upp og á endanum var komið efni
á nýja plötu,“ segir hann. „Grunnurinn er
í ætt við það sem við höfum verið að gera
undanfarin ár, en í þetta sinn leyfðum við
einfaldleikanum að ráða ferðinni og leyfðum
TónlisT ný plaTa og úTgáfuTónleikar Hjá HljómsveiTinni ensími
Hættum aldrei en tökum stundum pásu
Rokksveitin Ensími gefur út sína
fimmtu breiðskífu á næstu dögum.
Platan sem nefnist Herðubreið
var unnin í nokkrum lotum af liðs-
mönnum sveitarinnar undir dyggri
stjórn Hrafns Thoroddsen, forsprakka
sveitarinnar. Franz Gunnarsson, gítar-
leikari Ensími, sagði að vinnan hafi
átt sér stað á undanförnum tveimur
árum, en þó ekki í neinni atrennu.
Í tilefni útgáfunnar ætlar Ensími að
blása til útgáfutónleika 13. júní í
Gamla bíói. Ekkert verður til sparað
við framkvæmd tónleikanna og verða
þetta sitjandi tónleikar.
lögunum að njóta sín aðeins
meira,“ segir Franz. „Við vorum
vanir því að hlaða aðeins í hljóð-
heiminn á fyrri plötum svo það
má segja að við höfum aðeins
farið út fyrir þægindarammann í
þetta sinn,“ segir hann.
Frumburður sveitarinnar,
Kafbátamúsík, leit dagsins ljós
árið 1998 og hlaut einróma lof
gagnrýnenda og tónlistarunnenda
þrátt fyrir að sveitin hefði aldrei
komið fram opinberlega og því
ekkert þekkt. Síðan hafa komið út
þrjár plötur og sú síðasta, Gælu-
dýr, kom út árið 2010. „Ensími
er að verða tuttugu ára gömul og
ætli þetta sé ekki bara eins og
gott vín, eldist vel,“ segir Franz.
„Útgáfutónleikarnir verða í Gamla
bíói 13. júní og við hlökkum til að
spila þetta stöff í bland við eldri
lög,“ segir hann, en Ensími hefur
alltaf verið spör á tónleikahald
og því sjaldséð á sviði. „Ensími
hættir aldrei en við höfum tekið
löng frí,“ segir Franz.
Miðasala á útgáfutónleika Ens-
ími er á www.tix.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ensími sendir
frá sér sína
fimmtu plötu á
næstu dögum.
Ljósmynd/Birta
Rán Björgvins-
dóttir
58 menning Helgin 5.-7. júní 2015
18. – 21. JÚNÍ ¬ 2015
Í HÖRPU
IMITATION
Reykjavík Midsummer
Music
LISTRÆNN STJÓRNANDI
Víkingur Heiðar Ólafsson
www.reykjavikmidsummermusic.com
„Absolutely unmissable“
REYKJAVÍK GRAPEVINE
„Glæsileg
kammertónlistarveisla“
FRÉTTABLAÐIÐ
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON SAYAKA SHOJI
„Kammermúsík á
heimsmælikvarða“
VÍÐSJÁ
„Einn af hápunktum
tónlistarársins“
FRÉTTATÍMINN
H
G
M
@
A
3.
IS