Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 59
SKUGGADRENGUR EFTIR CARL-JOHAN VALLGREN
„Leggið nafnið á minnið. Danny Katz. Hann er stórkostleg spennu-
sagnahetja ... Vallgren leggur rækt við minnstu smáatriði og spennan
eykst með hverri blaðsíðu.“ – EKSTRA BLADET
Sumarið 1970 hverfur lítill drengur á lestarstöð í Stokkhólmi. Ókunn kona leiðir
hann í burtu og hann sést ekki framar. Áratugum síðar hverfur bróðir drengsins,
Jóel Klingberg, á fullorðinsaldri. Eiginkona Jóels leitar aðstoðar hjá gömlum
skólabróður hans, Danny Katz, sem er tungumálasnillingur með vafasama fortíð.
Fljótlega kemur í ljós að hin valdamikla Klingberg-fjölskylda
á sér mörg leyndarmál. Og þegar reynt er að bendla Danny
Katz við morð breytist rannsókn hans í baráttu fyrir eigin lífi.
Skuggadrengurinn er saga um myrka kima
mannssálarinnar, veröld þar sem dauðinn táknar ekki
endilega endalokin.
★★★★★
– EKSTRA BLADET
„… óvenju v
el skrifuð,
tungumálið b
rýtur
markvisst up
p staðlaða
bókmenntate
gund.“
SVENSKA DAG
BLADET
„Þú leggur þessaekki frá þér!“AFTONBLADET
Carl-Johan Vallgren er þekktur sænskur verðlauna-
höfundur og tónlistarmaður. Árið 2002 hlaut hann
Augustpriset, ein virtustu bókmenntaverðlaun Svía, fyrir
bestu skáldsögu ársins, Den vidunderliga kärlekens
historia. Bækur hans hafa komið út í 25 löndum.