Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 62
Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 5/6 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 6/6 kl. 20:00 Síðasta sýning Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl. Laugardagurinn 6.júní kl.17 Alþjóðlegi tangóhópurinn leikur verk eftir Piazzolla, Sutar, Ravel og fleiri. Guido Bäumer saxófónn, Aladár Rácz píanó, Hávarður Tryggvason kontrabassi og Krzysztof Olczak harmónikka og útsetningar. Almennt miðaverð 2000 krónur, 1000 krónur fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. Miðasala á midi.is Veitingastofurnar opnar alla daga frá kl. 11 – 17. Aðstaða fyrir fundi og móttökur af ýmsum stærðum. Nánari upplýsingar í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is H inn heimsfrægi hugsjóna-maður og mannvinur Patch Adams kemur nú í annað sinn til landsins á vegum Hugarafls. Adams er heimsfrægur heimilis- læknir sem hefur farið mjög óhefð- bundar leiðir í starfi sínu. Árið 1998 var gerð kvikmynd byggð á ævi hans og fór Robin Williams á kostum í hlutverki heimilislæknisins. Adams veiktist sjálfur af alvarlegu þunglyndi sem ungur maður og lagðist inn á geðsjúkrahús. Hann hafði ákveðið að enda sitt líf en fékk einhverskonar vitrun og ákvað að nota krafta sína í að stuðla að jákvæðni og leggja sitt á vogarskálarnar til að minnka ofbeldi í heiminum. Adams notar persónu- lega nálgun, umhyggju og samtal í meðferðum sínum. Að loknu námi stofnaði Adams „Gezundheit“ þar sem allir geta komið og leitað ókeypis læknisþjón- ustu. Adams er iðinn við að breiða út boðskap sinn um allan heim og byggir hann á svokölluðum „trúða- leiðöngrum“ sem draga það besta fram í manneskjunni, kalla fram gleðina og hamingjuna ásamt því að lina þjáningu og stöðva ofbeldi. Þann 14. júní verður fyrirlestur með Patch Adams í Háskólabíói klukkan 19.30 undir yfirskriftinni „Medecine, joy and humor“. Íslenskir listamenn taka á móti gestum með glensi og gleði og Patch Adams bandið leikur ljúfa djasstónlist. Hugarafl á í samstarfi við Eddu Björgvins og Sólheima um kom- andi ævintýri með Patch Adams og konu hans Susan Parenti. Susan er gjörningalistamaður og haldnar verða tvær listrænar uppákomur með henni og tveimur leikurum frá Bandaríkjunum, í Listaháskóla Ís- lands þann 10. júní klukkan 20 og á Sólheimum í Grímsnesi. Nánari upplýsingar má nálgast á midi.is og á heimasíðu Hugarafls. Unnið í samstarfi við Hugarafl Patch Adams vænt- anlegur til landsins K arlakór Akureyrar–Geysir, Bogomil Font og hljóm-sveit, sameinast á tónleik- um í Hamraborg í Hofi, föstudag- inn 5. júní, klukkan 20. Sérstakur gestur er Óskar Pétursson. Yfir- skriftin er öðruvísi, enda tónleik- arnir ólíkir öllu því sem kórinn hefur hingað til gert. Tónleikarnir eru tileinkaðir sjómönnum og sjómennsku og því haldnir helgina sem ber upp á sjálfan sjómannadaginn. Þarna feta félagar í Geysi alveg nýjar slóðir. Kórinn flytur karlakórslög í nýjum búningi og popp og rokk í karlakórsbúningi. Lög með Bogo- mil Font, Bubba Morthens, Rod Stewart, Hauki Morthens, Ólafi Þórarinssyni. Svo koma við sögu Davíð Stefánsson, Páll Ísólfsson, Áskell Jónsson, Sigfús Halldórs- son og fleiri. Hjörleifur Örn Jónsson er stjórnandi kórsins. Hann hefur útsett flest laganna fyrir kórinn á þessum tónleikum. Bogomil Font mætir í Hof í sínu besta formi og hljómsveitin hans er skipuð tónlistarmönnunum, Ómari Guðjónssyni, Kjartani Valdimarssyni, Helga Svavari Helgasyni, og Valdimar Kol- beini Sigurjónssyni. Ekki er vit- að hvort Óskar Pétursson hefur verið til sjós, en hann syngur eins og engill. Miðasala er á www.menningar- hus.is -hf Bogomil og karlakór í Hofi Havartí er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst framleiðsla á honum á Höfn í Hornarfirði árið 1987. Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havartí varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havartí er mildur, ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og eplum. HAVARTÍ FJÖLHÆFUR www.odalsostar.is 62 menning Helgin 5.-7. júní 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.