Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 74
fermingar Helgin 6.-8. mars 20156
Við bjóðum góðar
framtíðarhorfur
Framtíðarreikningur
Á þessum tímamótum, þegar fullorðinsárin nálgast með
öllu sínu sjálfstæði og spennandi tækifærum, er tilvalið að
ræða hvernig sparnaður og fyrirhyggja í fjármálum geti best
lagt grunn að bjartri framtíð. Okkur langar í því sambandi
að benda á kosti Framtíðarreiknings Íslandsbanka sem ber
hæstu vexti almennra, verðtryggðra innlánsreikninga og er
bundinn til 18 ára aldurs.
Kynntu þér málið betur á islandsbanki.is eða í næsta
útibúi Íslandsbanka.
Börn á fermingaraldri sem kjósa að ávaxta
30.000 kr. eða meira á Framtíðarreikningi
fá 5.000 kr. í mótframlag frá Íslandsbanka
inn á reikninginn.*
*Gildir einu sinni fyrir hverja kennitölu þeirra barna sem koma
ásamt forráðamönnum í útibú Íslandsbanka fyrir 1. júlí 2015.
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur
Mikið úrval af gjafavöru
fyrir dömur og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Léttar
ferðatöskur
Kortaveski úr leðri
frá kr. 4.800. Nafngylling kr. 1100.
Tru virtu
ál kortahulstur.
Kr. 7200 Kemur í veg fyrir
skönnun á kortaupplýsingum.
Skartgripaskrín-
Lífstíðareign
Sjá ítarlegar
upplýsingar á
www.drangey.is
Súpur eru hentugar á veisluborðið þar sem hægt er að elda þær
með góðum fyrirvara og hvorki eldamennskan né framreiðslan er
flókin. Ein hugmynd er að hafa súpubar þar sem hægt er að velja
fleiri en eina súpu. Þá er hægt að bjóða upp á eina matarmikla og
kjarngóða kjötsúpu, framandi og kryddaða fiskisúpu og freska og
létta grænmetissúpu. Gott brauð, ostar og salat er kjörið meðlæti.
Einfalt og alltaf vinsælt
Íslensk kjötsúpa fyrir 12
Hráefni:
5 kg kjöt á beini
6 l vatn
800 g rófur
800 g kartöflur
400 g gulrætur
100 g hrísgrjón (má sleppa)
2 litlir laukar
1 meðalstór blaðlaukur
8 msk súpujurtir
4 msk salt
svartur pipar, eftir smekk
Aðferð:
Skerið kjötið niður í bita og fituhreinsið.
Setjið kjöt og kalt vatn í stóran pott og látið
suðuna koma hægt upp. Fleytið fituna vel
ofan af og látið suðuna koma upp aftur.
Skerið grænmetið niður í bita og bætið öllu
nema kartöflum og rófum saman við. Látið
malla í hálftíma og bætið þá kartöflum og
rófum út í ásamt salti og pipar. Látið sjóða
í hálftíma, eða þar til kjötið og grænmetið
er orðið mjúkt. Kjötsúpu má hita upp aftur
og aftur og verður hún þá jafnvel betri.
Einnig má frysta súpuna, svo hæg er að
búa hana til með miklum fyrirvara.
Einföld fiskisúpa fyrir 12
90 ml ólífuolía
3 pollar laukur, niðurskorinn
6 hvítlauksrif, söxuð
1 búnt af ferskri steinselju
3 miðlungsstórir tómatar, niðursneiddir
6 tsk tómatkraftur
7 dl fiskikrafti
1 ½ bolli hvítvín eða mysa
2 kg af hvítum fiski, skorinn í teninga
Stórar rækjur til skreytingar, má sleppa
Oreganó, tabasco, timían, salt og pipar til
bragðbætis, eftir smekk
Aðferð:
Hitið ólífuolíuna í stórum potti við miðl-
ungshita. Bætið lauk og hvítlauk út í og
látið malla í 4 mínútur. Bætið steinselju
við og hrærið í 2 mínútur. Bætið tómat og
tómatkrafti út í og látið malla í 10 mínútur
eða svo.
Bætið fiskikrafti, hvítvíni og fiski saman við
og hitið þar til fiskurinn er soðinn, sem á
að taka minna en 10 mínútur. Kryddið eftir
smekk. Setjið rækjur út í þegar súpan er
komin í skálar.
Sígild tómatsúpa fyrir 12
3 msk ólífuolía
3 msk ósaltað smjör
3 miðlungsstórir laukar, skornir í tenginga
Maldon salt
6 miðlungsstór hvítlauksrif
3 dósir af niðursoðnum tómötum
5 bollar af grænmetiskrafti
1 bolli af rjóma
Nýmalaður svartur pipar, eftir smekk
Aðferð:
Bræðið saman ólífuolíu og smjör á miðl-
ungshita. Bætið lauk út í og örlítið af salti
og látið malla þar til laukurinn er mjúkur.
Bætið hvítlauk út í og sjóðið í 5 mínútum og
hrærið öðru hvoru.
Hækkið hitann aðeins og bætið tómöt-
unum og safanum úr dósinni út í. Kremjið
tómatana með sleif og sjóðið í 10 mínútur.
Bætið grænmetiskrafti og sjóðið í 15
mínútur í viðbóta.
Takið pottinn af hellunni og látið súpuna
kólna í smástund. Notið töfrasprota til að
mauka súpuna í pottinum.
Setjið pottinn aftur á helluna á lágum hita
og hrærið rjómann varlega saman við.
Bætið svörtum pipar út í og öðru kryddi
eftir smekk. Skreytið með steinselju.