Fréttatíminn - 06.03.2015, Qupperneq 80
fermingar Helgin 6.-8. mars 201512
D röfn Vilhjálmsdóttir hefur gaman af því að undirbúa veislur af alls kon-
ar tagi. „Ég var sjálf með
fermingarveislu í fyrra og
útskriftarveislu síðastliðið
vor.“ Dröfn segir fermingar-
undirbúninginn hafa verið
skemmtilegan en jafnframt
hafi verið í mörg horn að
l íta . „Ef t ir ferminguna
settist ég niður og skrifaði langt
blogg, ekki bara um matinn sem
var í boði í veislunni heldur safn-
aði ég saman öllum hagnýtum upp-
lýsingum tengdum fermingunni.“
Ein af þeim ákvörðunum sem þarf
að taka í aðdraganda veisl-
unnar er matarþema. „Það
hefur notið aukinna vin-
sælda að bjóða upp á súpu
í veislunni, en smáréttir
og tertuveislur eru einnig
algengt val,“ segir Dröfn.
Hér deilir hún þremur upp-
skriftum sem passa inn í
mismunandi þemu.
Unnið í samstarfi við
Innnes
Gómsætir réttir
í ferminguna
Dröfn Vilhjálmsdóttir heldur úti girnilegu matarbloggi undir nafn-
inu Eldhússögur, www.eldhussogur.com, þar sem hún segir margar
skemmtilegar sögur úr sínu eigin eldhúsi.
Fylltir sveppir með rjómaosti (ca. 16 stk):
500 g sveppir (gott að velja meðalstóra
sveppi, alla svipað stóra)
1,5 msk Wesson olía
4 -5 hvítlauksrif, söxuð mjög fínt eða
pressuð
1 blaðlaukur, hvíti hlutinn saxaður mjög
smátt
Ítölsk hvítlauksblanda frá Pottagöldrum
(eða annað gott krydd)
1/4-1/2 tsk cayenne pipar
Salt og grófmalaður svartur pipar
1 box (200 g) Philadelphia rjómaostur með
hvítlauki og kryddjurtum, látið ná stofuhita
Ca. 50 g rifinn Parmareggio parmesan ostur
Ofn er hitaður í 175 gráður við undir- og
yfirhita og ofnplata klædd bökunarpappír.
Sveppir hreinsaðir varlega með eldhús-
pappír og stönglarnir losaðir úr svepp-
unum. Sveppastönglarnir eru því næst
saxaðir mjög smátt og þeir steiktir á pönnu
ásamt hvítlauknum og blaðlauknum upp úr
olíunni (þess skal gæta að laukurinn brenni
ekki). Þegar sveppirnir hafa tekið lit er
pannan tekin af hellunni og látið kólna ör-
lítið. Þá er rjómaosti, helmingnum af par-
mesan ostinum og kryddum bætt út í og
blandað vel saman, smakkað til og kryddað
meira eftir smekk. Sveppahöttunum er
raðað á ofnplötuna. Hver sveppur er því
næst fylltur vel af sveppa/ostablöndunni.
Að lokum er afgangnum af rifna parmesan
ostinum dreift yfir sveppina. Bakað í ofni
við 175 gráður í um það bil 20 mínútur eða
þar til sveppirnir byrja að mynda vökva og
osturinn hefur brúnast.
Taílensk kjúklinga- og sætkartöflusúpa
2 msk Filippo Berio ólífuolía til steikingar
3 hvítlauksrif, söxuð smátt
1 ferskur rauður chili, fræhreinsaður og
saxaður smátt
1 msk ferskt engifer, rifið
30 g ferskt kóríander, stilkar og blöð saxað
í sitt hvoru lagi
4 tsk Blue Dragon karrímauk, rautt eða
grænt (curry paste)
3 msk Oscar kjúklingakraftur (1200 ml soð)
1 dós Blue Dragon kókosmjólk
Ca. 800 g sætar kartöflur, flysjaðar og
skornar í bita
900 g Rose Poultry kjúklingabringur,
skornar í bita
1 ½ límóna, safinn (lime)
2 tsk sykur
2 tsk Blue Dragon fiskisósa (fish sauce)
Pipar
Olía er hituð í stórum potti og hvítlauki,
chili, engifer og kóríander stilkum ásamt
karrímauki bætt út í pottinn og steikt í um
það bil 2 mínútur. Því næst er kjúklinga-
soði, kókosmjólk og sætu kartöflunum
bætt út í og soðið í 10-15 mínútur eða þar
til sætu kartöflurnar eru tilbúnar. Þá er
súpan maukuð í matvinnsluvél eða með
töfrasprota þar til áferðin er mjúk og kekk-
laus. Svo er kjúklingnum bætt út í súpuna
og hún látin malla þar til hann er soðinn
í gegn. Að lokum er söxuðum kóríander-
blöðum bætt út í ásamt límónusafa og
súpan smökkuð til með sykri, fiskisósu og
pipar.
Salthnetuterta með Dumle karamellukremi
1,3 dl Danæg eggjahvítur
3 dl sykur
1 tsk Torsleffs vanillusykur
1 tsk lyftiduft
160 g Ültje salthnetur
80 g Ritz kex
Dumle krem:
60 g smjör
1 poki dökkt Dumle (110 g) eða orginal í
rauðu pokunum
4 eggjarauður
Ofan á kökuna:
3 dl rjómi
40 g Ültje salthnetur, saxaðar gróft
Nokkrir Dumle molar, skornir eða klipptir í
þrennt.
Ofn hitaður í 180 gráður við undir- og yfir-
hita. Eggjahvítur stífþeyttar og sykrinum
bætt út í smátt og smátt. Salthnetur og
Ritzkex mulið smátt í matvinnsluvél og
bætt út í marengsinn með sleikju ásamt
vanillusykri og lyftidufti. Deiginu er helt í 24
cm hringlaga smurt smellu- eða silíkonform
(einnig hægt að gera þessa köku í sambæri-
lega stóru eldföstu móti). Bakað í ofni við
180 gráður í um það bil 25-30 mínútur.
Smjör er sett í pott og brætt við með-
alháan hita. Dumle molum er bætt út í og
allt látið bráðna, kælt lítillega. Eggjarauður
eru þeyttar ljósar og léttar og bræddu
Dumleblöndunni bætt út í. Botninn er
færður yfir á kökudisk (en látinn vera í
eldfasta mótinu ef hann var bakaður í því)
og Dumlekreminu dreift yfir kökuna. Að
lokum er rjóminn þeyttur og honum dreift
yfir kökuna. Skreytt með gróft söxuðum
salthnetum og niðurskornum Dumle
karamellum.