Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 2
GRILLIÐ FYRIR ÞIG
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Er frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
FULLT VERÐ
99.900
89.900
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
VELDU
GRILL
SEM EN
DAST
OG ÞÚ
SPARA
R
Opið til kl. 16 á laugardag
• Orka 10,5 KW = 36.000 BTU
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi sem
skapar einstaklega jafnan hita
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok m. mæli
• Postulínsemaleruð efri grind
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu - 4 hjól
• Einnig til hvítt og rautt
• Einnig til 2ja og 4ra
brennara í svörtu og hvítu
Mikill verðmunur á fiskafurðum
Þ etta tókst alveg stórkostlega úr því maðurinn var lifandi þegar hann fór frá borði. Það er fyrir öllu,“ segir
Kristinn Logi Hallgrímsson læknir.
Kristinn var farþegi um borð í vél WOW
Air á leið frá Alicante til Keflavíkur um
síðustu helgi. Annar farþegi, íslenskur
karlmaður, fékk hjartastopp og óskaði
áhöfn vélarinnar eftir aðstoð. Kristinn gaf
sig fram og það gerðu einnig tveir hjúkr
unarfræðingar. Skiptust Kristinn og annar
hjúkrunarfræðingurinn á að hnoða mann
inn í rúmar 20 mínútur. Einnig var notast
við hjartastuðtæki og súrefniskút sem voru
um borð. Maðurinn var kominn til meðvit
undar áður en vélinni var lent í Glasgow þar
sem hann var fluttur á sjúkrahús. Kristinn
kveðst ekki hafa fengið frekari upplýsingar
um afdrif mannsins.
„Þetta gekk eiginlega merkilega vel en
það var gott að við vorum nokkur. Það hefði
verið erfiðara að vera alveg einn. Svo er
starfsfólkið líka allt þjálfað og ef enginn
hefði verið um borð hefði það getað beitt
skyndihjálparkunnáttu sinni,“ segir Krist
inn á hógværan hátt.
Hann viðurkennir að erfitt hafi verið að
athafna sig í þröngu rými flugvélarinnar.
„En þetta gerðist eiginlega bara, það var
ekki fyrr en eftir á að maður fór eitthvað að
hugsa út í hvað hefði gerst.“
Kristinn segir að það sé nokkuð algengt
að læknar og heilbrigðisstarfsmenn þurfi
að sinna veikum farþegum á flugi. Það vildi
einmitt svo til að hann þurfti einnig að láta
til sín taka á leiðinni út til Spánar. Hann
segir að það hafi þó verið smávægilegt atvik
og vill ekki tjá sig frekar um það.
„Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þetta
kemur fyrir mig og mér sýnist, miðað við
það sem ég heyri frá kollegum mínum,
að þeir lendi líka í þessu. Þetta er náttúr
lega það sem felst í því að vera læknir, við
þurfum alltaf að vera til taks. En þetta var í
fyrsta sinn sem ég tek þátt í endurlífgun um
borð í flugvél,“ segir Kristinn.
Hann vill koma því á framfæri að mikil
vægt sé að flugvélar í millilandaflugi hafi
nauðsynlegan búnað um borð ef til bráðra
veikinda kemur. „Ég vil einnig hvetja fólk
sem hyggur á ferðalög til útlanda að taka
með sér nauðsynleg lyf og skoða vel sjúkra
tryggingar þeirra landa sem ferðast er til og
muna eftir evrópska sjúkratryggingarkort
inu.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
SamfélagSmál KriStinn logi drýgði hetjudáð í háloftunum
Kristinn Logi Hallgrímsson læknir hnoðaði lífi í mann sem fór í hjartastopp um borð í flugvél WOW
Air um síðustu helgi. Kristinn segir algengt að læknar þurfi að sinna veiku fólki um borð í flugvélum
– og til marks um það þurfti hann að láta til sín taka bæði á leiðinni út til Spánar og aftur heim.
Bjargaði lífi manns um
borð í flugvél WOW Air
Kristinn Logi
Hallgrímsson
læknir lífgaði
mann við um borð
í flugvél WOW Air
eftir að hann fékk
hjartastopp. Krist-
inn segir algengt
að læknar þurfi að
sinna veiku fólki
um borð í flug-
vélum.
Þetta er
náttúrlega
það sem
felst í því
að vera
læknir, við
þurfum
alltaf að
vera til
taks.
Verðlagseftirlit ASÍ
gerði verðsamanburð á
fiskafurðum í 25 verslunum
í vikunni. Kannað var verð
á 33 algengum tegundum
fiskafurða víðsvegar að
um landið. Lægsta verðið
var oftast að finna hjá
Litlu Fiskbúðinni Miðvangi
Hafnarfirði eða í 14 tilvikum
af 33 og hjá Litlu Fiskbúðinni
Háaleitisbraut í 9 tilvikum.
Verslunin Kjöt og fiskur
Bergstaðastræti var með
hæsta verðið í 6 tilvikum
af 33 og Melabúðin, Hafið
fiskiprinsinn Hlíðarsmára
og Gallerý fiskur Nethyl
voru með hæsta verðið í 4
tilvikum. Fiskbúðin Hafberg,
Fiskikóngurinn, Fiskbúðin
Aukning í eyðslu
ferðamanna
Erlendir ferðamenn straujuðu 9,3 milljarða
króna með greiðslukortum sínum í apríl.
Það er 39,4% hærri upphæð en í sama
mánuði í fyrra. Erlend kortavelta í ís-
lenskum verslunum nam 1,2 milljarði króna
í apríl sem er 14% vöxtur frá sama mánuði
í fyrra. Mestur vöxtur erlendrar kortaveltu
í verslunum var í gjafa- og minjagripaversl-
unum, eða sem nam 43%. Athygli vekur að
í apríl var 15,3% hærri greiðslukortavelta
á hvern erlendan ferðamann sem kom
til landsins heldur en í apríl fyrir ári
síðan, ef miðað er við fjölda ferðamanna
samkvæmt talningu Ferðamálastofu í
Leifsstöð.
Fór úr axlarliði í
leikfimi
Hálfsjötugur karlmaður féll úr stiga á
Suðurnesjum í vikunni. Maðurinn féll fjóra
metra þegar listi á húsinu sem hann studdi
sig við brotnaði. Maðurinn lenti á stétt og
fann til eymsla í baki. Hann var fluttur með
sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja til aðhlynningar. Þetta var þó ekki
eina slysið á Suðurnesjum í vikunni því
kona meiddist á öxl í leikfimitíma. Talið var
að hún hafi farið úr axlarliði.
Verulegur kostnaður
af vatnstjóni
Vatnstjón á heimilum og í fyrirtækjum
nam 2,4 milljörðum króna í fyrra og varð
langmestur hluti tjónsins á heimilum.
Heildarfjöldi tilvika er 7.387 eða að meðal-
tali 20 á degi hverjum. Í 1.442 tilvikum
reyndist tjónið ekki bótaskylt. Þetta kemur
fram í tölum tryggingafélaganna sem
teknar voru saman af óháðum aðila fyrir
samstarfshóp um varnir gegn vatnstjóni.
Langalgengast er að tjón í hverju tilviki
sé innan við ein milljón króna en þó nam
kostnaður í 418 tilvikum einni milljón eða
meira og í tugum tilvika nam tjónið þremur
milljónum króna eða meira. Heimilin bera
talsverðan hluta kostnaðarins sjálf.
Vegamót Nesvegi og
Fiskbúðin Vík Reykja-
nesbæ neituðu þátttöku
í könnuninni.
Þorsteinn
Baldur
Friðriksson,
stofnandi
og fram-
kvæmdastjóri
Plain Vanilla,
er með 85
manns í vinnu
og hefur sent
frá sér nýja
útgáfu af
QuizUp. Ljós-
mynd/Hari
ViðSKipti Stór dagur í Sögu plain Vanilla í gær með nýrri útgáfu Quizup
Notendur hafa svarað 28 milljörðum spurninga
Íslenski tölvu leikja fram
leiðand inn Plain Vanilla kynnti
í gær nýja út gáfu af spurninga
leiknum QuizUp. Leikurinn
hefur verið endurhannaður
og í nýju útgáfunni er aukin
áhersla lögð á samskipti. Þá er
hægt að spila leikinn í gegnum
heimasíðu leiksins.
QuizUp er stærsti spurn
ingaleikur sinnar tegundar í
heiminum. Fyrsta útgáfa leiks
ins kom út fyrir tveimur árum
og hefur notið mikilla vin
sælda. 33 millj ón ir manna hafa
náð í eldri út gáfu leiks ins og 30
þúsund nýir not end ur bæt ast
við dag hvern. Virk ir spil ar ar
spila tæp lega 7 millj ón ir leikja
á dag og eyða að meðaltali 30
mín út um í að spila leik inn á
hverjum degi. Í heild ina hafa
verið spilaðir rúm lega fjórir
milljarðar leikja þar sem spil
ar ar hafa svarað 28 millj örðum
spurn inga.
Í nýju út gáfunni er að finna
yfir 600 þúsund spurn ing ar í
1.200 flokk um. Áhugaverðasta
nýjungin er að nú bætist við
fréttaveita sem er sérsniðin að
hverjum notenda og á að auð
velda spilurum að eignast vini
og áhugamál í gegnum leikinn.
Þor steinn Bald ur Friðriks
son, stofn andi og fram
kvæmda stjóri Plain Vanilla,
seg ir að leik ur inn sé að öllu
leyti hannaður á Íslandi.
„Við erum búin að leggja allt
okk ar hug vit í þessa nýju út
gáfu og þetta er því mjög stór
dag ur í sögu fyr ir tæk is ins,“ er
haft eft ir Þor steini í fréttatil
kynn ingu.
2 fréttir Helgin 22.-24. maí 2015