Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.05.2015, Síða 78

Fréttatíminn - 22.05.2015, Síða 78
útivist & hlaup Helgin 22.-24. maí 20152 www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Náðu þér í e intak! Upplifðu nát túru Íslands M aður gleymir sér í þessu,“ segir Gísli Jónsson, formaður rathlaupafélagsins Heklu. „Mér þykir heillandi að fara út í skóg og hlaupa um og fara á staði sem maður færi ekki alla jafna á. Maður er sífellt að hugsa um að finna næsta stað og þegar maður er kominn í mark þá hefur mað- ur villst nokkrum sinnum.“ Rathlaup felst í því að hlaupa eftir ákveðinni hlaupa- braut sem búið er að setja upp á einhverju útivistarsvæði. Brautin er skráð á kort sem hver þátttakandi fær í hendur og inn á kortið eru merktir nokkrir fánar og staðir sem þeir þurfa að finna í réttri röð til að ljúka hlaupinu. Skipuleggjendur leggja upp brautina í hvert sinn og koma fyrir rafeindabún- aði sem þáttakendur nota til að staðfesta að þeir hafi fundið tiltekna staði á kortinu. „Við leggjum upp nokkrar brautir fyrir hvert hlaup,“ segir Gísli en ein þeirra er fyrir byrjendur, önnur lengra komna og sú þriðja fyrir börn. „Þetta er góð leið til að kenna börnum að nota kort og áttavita,“ bætir Gísli við. Rathlaupafélagið Hekla heldur rathlaupanám- skeið fyrir börn í júní rétt eftir að skóla lýkur á vorin og segir Gísli að þau hafi mjög gaman af. „Þau skemmta sér vel og draga foreldrana með sér. Það heillar mig að fólk geti stundað þetta með börnunum.“ Ný braut er lögð upp fyrir hvert hlaup og þó fólk sé að hlaupa á sama svæði og áður þá er brautin ekki sú sama. „Við búum til ný kort fyrir hvert einasta hlaup og það er auðvelt að breyta kortunum. Ef ákveðin kennileiti eru tekin út af kortunum þá verður erfiðara að rata, til dæmis ef stígarnir í Öskjuhlíðinni eru teknir af kortinu þá verður rathlaupið skyndilega mun erfið- ara.“ Þetta kallar á nýja áskorun í hvert sinn og eiga þáttakendur það til að villast ansi oft. „Já,“ segir Gísli hlæjandi. „Þetta kallar á ákveðna útsjónarsemi og eftir því sem lengra líður á hlaupið og maður fer að þreyt- ast þá fer maður að gera mistök.“ Hann segir þetta þó vera hluta af fjörinu sem felst í rathlaupinu. „Mörgum þykir þetta skemmtilegra en að hlaupa og hef ég það eftir einum finnskum rathlaupara sem hefur keppt á móti hjá okkur að honum þykir hundleiðin- legt að hlaupa en honum finnist þetta skemmtilegt,“ segir Gísli. Helstu útivistarsvæðin þar sem rathlaup er stundað er Klambratún, Elliðaárdalur, Heiðmörk, Rauðhólar, Rauðavatn, Gálgahraun, Öskjuhlíð og Hafnarfjörður. „Við erum bundin því að það séu til kort af þeim svæð- um þar sem við hlaupum. Við höfum getað stuðst við kort sem eru til nú þegar af helstu útivistarsvæðunum á höfuborgarsvæðinu auk þess sem rathlaupafélögin á Norðurlöndunum veittu okkur góðan fjárstyrk til að útbúa ný kort.“ Helstu hlaupin eru stunduð á höfuð- borgarsvæðinu en föst rathlaupabraut hefur verið sett upp við Úlfljótsvatn og til stendur að setja upp slíka braut víðar. Gísli segir að fjölmargir staðir á landinu henti vel fyrir rathlaup og draumurinn sé að breiða þetta út sem víðast. Rathlaup er þekkt á Norðurlöndunum og hafa félagar þaðan komið til Íslands til að sækja árlegt mót rat- hlaupafélagins Heklu og segir Gísli að allskonar fólk mæti til keppni. „Fólk kemur hingað sem einstaklingar eða heilu fjölskyldurnar mæta. Og í lok júní fáum við hingað heimsmeistarann í rathlaupi fyrir 70 ára og eldri, þannig að þetta er vissulega fyrir alla aldurs- hópa.“ Rathlaupafélagið Hekla er með vikulegar æfingar frá maí til lok október og stendur öllum til boða að mæta á æfingar. Staðsetning æfinganna er tilkynnt á vefsíðu félagins rathlaup.is. Þátttökugjald er 500 krónur fyrir hvert hlaup en öllum er boðið að hlaupa gjaldfrjálst í fyrsta sinn.  Rathlaup Leiðin fundin á hlaupum Rathlaup hefur verið stundað hér á landi í nokkur ár og sameinar hlaup, útivist og útsjónarsemi. Það er stundað víða á höfuð- borgarsvæðinu og segir Gísli Jónsson, for- maður rat- hlaupafélagsins Heklu, að það sé hægt að stunda með allri fjölskyld- unni. Það getur verið snúið að finna rafeindabúnaðinn sem hver hlaupari þarf að stoppa við á leiðinni til að stað- festa að hann hafi fundið tiltekinn stað á kortinu. Gísli Jónsson, formaður rathlaupafélagsins Heklu, kemur hlaupandi í mark. Rathlauparar þurfa að finna ákveðna staði eftir korti sem þeir hlaupa með. Hafnarfjörður er meðal þeirra staða sem rathlaupafélagið Hekla leggur upp braut.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.