Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 4
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Barcelona
Flugsæti aðra leið með sköttum.
Taska og handfarangur innifalið.
Frá kr. 12.900
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
N-átt, víðast hæg og birtir
upp á laNdiNu.
höfuðborgarsvæðið: Léttskýjað,
einkum framan af degi
skil með vætu fara yfir um NóttiNa
og morguNiNN.
höfuðborgarsvæðið: sLagveðursrigning
um morguninn, en síðar skúrir.
N- og Nv-átt. svalt og skúrir
NorðaNlaNds og eiNNig v-til
höfuðborgarsvæðið: sóL með köfLum,
en Líka skúrir.
vætusamt
og í svalara lagi
Spáð er lægð úr suðvestri yfir landið.
Aðal úrkomusvæði hennar fer austur yfir
landi snemma dags á laugardag og rignir
nokkuð í flestum landshlutum. Í kjölfarið
snýst til N-áttar og á sunnudag gæti orðið
krapi eða snjóföl á fjallvegum
N-til. Fremur svalt verður
næstu daga og vindasamt
að auki. Eftir 20 daga í
maí er hiti víðast talsvert
undir meðallagi þessa
mánaðar og munar mestu
um ískuldann til um 10.
maí.
10
6 5
6
9
6
6 7
5
6
7
4 4
6
7
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Letterman kveður
Spjallþáttastjórnandinn David
Letterman er hættur og var
lokaþáttur The Late Show
sýndur í Bandaríkjunum í
vikunni. Letterman byrjaði með
þáttinn Late Night á NBC árið
1982 og var því á skjánum í rúma
þrjá áratugi.
7.200
skjöl bíða þinglýsingar
hjá Sýslumanninum á
höfuðborgarsvæðinu
vegna verkfalls
félagsmanna BHM
sem starfa hjá
embættinu. Gera má
ráð fyrir að meirihluti
skjalanna tengist fast-
eignaviðskiptum en engum samningum
vegna fasteignakaupa hefur verið
þinglýst frá því 1. apríl.
Hreinsunarstarf gengur hægt
Hægt gengur að hreinsa götur og
gönguleiðir í Reykjavík vegna gríðarlegs
sandmagns á stéttum og stígum sem
dreift var á gönguleiðir til hálkuvarna í
vetur. Þrátt fyrir tafir á hreinsun gatna
og stíga í borginni að vera lokið fyrir
13. júní.
Ármann til Virðingar
Ármann Þor valds son hef ur verið ráðinn
fram kvæmda stjóri viðskiptaþró un ar
Virðing ar. Ármann mun í upp hafi
einkum ein beita sér að upp bygg-
ingu og öfl un verk efna á sviði
fyr ir tækjaráðgjaf ar. Ármann
var fram kvæmda stjóri fyr ir-
tækjaráðgjaf ar Kaupþings
frá 1997 til 2005 og
fram kvæmda stjóri
Kaupþings Sin ger &
Friedland er í Bretlandi
frá 2005 til 2008. Á
þeim tíma vakti hann
athygli fyrir að fá
þekkta poppara til að
spila í áramótaveislum
sínum, til að mynda
Duran Duran og Tom
Jones.
vikan sem var
Kominn í veikindaleyfi
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður
Framsóknarflokksins, er kominn í
tveggja vikna veikindaleyfi frá þing-
störfum. Í vikunni komst í hámæli
að hann kastaði upp í flugvél WOW
Air þann 10. maí og var mikið rætt
og ritað um að Ásmundur hafi verið
drukkinn í fluginu. Því hefur hann
neitað. Anna María Elíasdóttir tekur
sæti Ásmundar Einars á þingi í fjar-
veru hans.
s ama dag og blaðið kom út hringdi mig lögfræðingur frá Tryggingastofnun og
sagðist ekki sjá betur en að ég
ætti sannarlega rétt á þessum
styrk,“ segir Jóhann Bragason
sem sagði frá því í Fréttatíman-
um fyrir viku að hann hefði sex
sinnum fengið synjun frá Trygg-
ingastofnun vegna umsóknar um
bílastyrk. Jóhann hefur verið ör-
yrki frá árinu 2009 vegna lungna-
sjúkdóms. Hann fékk ný lungu
árið 2011 en síðastliðinn vetur
byrjaði líkami hans að hafna
lungunum. Jóhann hefur sótt
sex sinnum um bílastyrk upp á
1.200.000 krónur en alltaf fengið
synjun á þeim forsendum að það
þurfi að líða 5 ár á milli styrkja.
Fréttatíminn fékk í síðustu
viku skriflegt svar frá Trygginga-
stofnun vegna fyrirspurnar um
endurteknar synjanir þar sem
fram kom að styrkir séu veittir
á fimm ára fresti og að ekki sé
hægt að víkja frá þeirri reglu
nema bifreiðin eyðileggst á tíma-
bilinu eða vegna andláts styrk-
þega, en mögulegt sé að sækja
um á grundvelli sérákvæðis „ef
sjúkdómsástand hins hreyfihaml-
aða hefur versnað.“
Jóhann segir að hann hafi ekki
fengið staðfestingu á að hann fái
bílastyrkinn, þetta sé ekki fast í
hendi en hann hafi fengið vonina
á ný. „Ég trúði varla mínum eigin
eyrum þegar lögfræðingurinn
hringdi og varð mjög glaður.
Þetta var afskaplega kurteis
maður sem sagði mér að skila
inn sérstöku hreyfihömlunarvott-
orði. Ég var búinn að skila inn
alls konar vottorðum en hann
sagði að þetta vantaði. Það þarf
að tékka við í boxið að ég
sé hreyfihamlaður en
ég geng ekki lengra
en 200-300 metra án
súrefniskúts,“ segir
Jóhann.
Í síðstu viku sagði
Jóhann frá því að
bílleysið væri fyrir hann
líkt og að vera í fangelsi
því hann kæmist ekkert án
bíls. Hann sagði að inntakið
í því að sér hafi verið neitað
um styrk væri að hann fékk 400
þúsund króna bílastyrk fyrir
tæpum 5 árum. Hann gat síðan
ekki borgað af bílnum því hann
veiktist af krabbameini í milli-
tíðinni, lagði þeim bíl og keypti
annan á 100 þúsund krónur. Sá
bíll eyðilagðist síðan og Jóhann
stóð eftir bíllaus.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem ég hef upplifað mig sem
annars flokks þegn því ég er
öryrki og mér finnst ansi hart ef
það þarf að fara í blöðin til að fá
það sem maður á rétt á frá hinu
opinbera. En nú bið ég bara til
Guðs um að þetta nái í gegn,“
segir Jóhann sem er þegar
kominn með augastað á litlum
ljósbláum bíl sem hann langar að
kaupa, ef hann fær styrkinn. „Ég
er svo vongóður að ég borgaði
100 þúsund krónur inn á hann til
að missa hann ekki,” segir hann.
erla hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Nú bið ég bara til Guðs
um að þetta nái í gegn.
réttindamál Fékk símtal Frá tryggingastoFnun eFtir viðtalið
Bjartsýnn á bílstyrkinn
Jóhann Bragason segist vart hafa trúað eyrum sínum þegar hann fékk símtal frá Trygginga-
stofnun þar sem honum var bent á að líklega ætti hann rétt á bílastyrk eftir allt saman. Jóhann
sagði sögu sína í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag en Tryggingastofnun hafði þá synjað
honum sex sinnum um styrk. Hann bíður nú og vonar, og er kominn með augastað á litlum ljós-
bláum bíl sem hann langar að kaupa.
Jóhann bragason er bundinn súrefnis-
kút og kemst ekki ferða sinna nema á
bíl. Hann sagði í Fréttatímanum í síðustu
viku frá því að Tryggingastofnun hafi sex
sinnum synjað umsókn hans um bílastyrk
en fékk símtal frá stofnuninni sama dag og
blaðið kom út. Ljósmynd/Hari
4 fréttir Helgin 22.-24. maí 2015