Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 6
Heilbrigðismál 113 manns veiktust í síðasta Hettusóttarfaraldri
Hettusóttar
faraldur hjá
fullorðnum
Fjórir fullorðnir einstaklingar hafa greinst með hettusótt á Íslandi á
undanförnum vikum. Sýni frá 25 manns bíða staðfestingar á veiru-
rannsóknardeild Landspítalans vegna gruns um hettusóttarsmit en
vegna verkfalla er ekki hægt að greina sýnin. Tæpur áratugur er síðan
síðasti hettusóttarfaraldur geisaði á Íslandi. Bólusetning er eina leiðin
til að koma í veg fyrir smit.
Þ etta verður að kallast faraldur þó lítill sé – enn sem komið er,“ segir Þórólfur Guðnason, yfir-
læknir á sóttvarnasviði embættis land-
læknis, um aukningu á hettusóttarsýk-
ingum að undanförnu. Á síðustu
vikum hafa fjórir fullorðnir ein-
staklingar verið staðfestir með
hettusótt en sýni frá 25 ein-
staklingum bíða staðfestingar
á veirurannsóknardeild Land-
spítala. Þessi sýni hafa ekki
fengist greind vegna yfirstand-
andi verkfalls þrátt fyrir ítrek-
aða beiðni þar um og því erfitt
að fá nákvæma greiningu á yfir-
standandi faraldri.
Þórólfur segir að þar sem
hér á landi hafi verið bólusett
gegn hettusótt frá árinu 1989
og hún þá dáið út tímabundið,
ættu svona faraldrar ekki að koma upp.
Síðast kom upp lítill faraldur á árunum
2005-2006 þegar 113 smituðust. Hann
bendir á að andstaða innan ákveðinna
hópa við bólusetningar sé ástæðan fyrir
því að þessir faraldrar koma upp. „Það
þarf ekki nema einn veikan einstakling
í stórum hóp til að smitið dreifi sér,“
segir hann.
Hettusótt er tilkynningarskyldur
sjúkdómur sem þýðir að læknar
þurfa að tilkynna um slík smit
til embættis landlæknis. Þórólf-
ur segir þetta þó vandkvæðum
bundið nú þegar ekki er hægt
að fá rannsóknir til að stað-
festa sýkingar. „Við höfum sótt
um undanþágur til undanþágu-
nefndar en ekki fengið. Þar sem
að nákvæm greining hefur ekki
fengist á faraldrinum þá er erf-
itt að koma með almennar leið-
beiningar en bólusetning er eina
örugga leiðin til að koma í veg
fyrir hettusótt,“ segir hann. Enn
sem komið er hefur embætti
landlæknis því fá úrræði til að bregðast
við faraldrinum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hvað er hettusótt?
Einkenni sjúkdómsins eru
oftast væg hjá börnum en
leggjast þyngra á unglinga
og fullorðna. Helstu ein-
kenni eru hiti, slappleiki,
bólga og særindi í munn-
vatnskirtlum, höfuðverkur,
erfiðleikar við að tyggja og
lystarleysi.
Unglingar og fullorðnir fá
frekar fylgikvilla en börn.
Alvarlegir fylgikvillar geta
verið, heilabólga, heyrnar-
skerðing, bólga í brjóstum,
briskirtli, eggjastokkum
eða eistum. Bólga í síðast
töldu líffærunum getur
valdið ófrjósemi.
Smitleiðir og meðgöngu-
tími
Smit berst með úða frá
öndunarfærum (t.d. með
hnerra). Meðgöngutími
sjúkdómsins, það er sá
tími sem líður frá því að
einstaklingur smitast og
þar til sjúkdómseinkenni
koma fram, er um 2-3
vikur. Sjúkdómurinn getur
verið misalvarlegur, sumir
eru nánast einkennalausir
meðan aðrir geta orðið
mikið veikir og fengið fylgi-
kvilla.
Heimild: Landlaeknir.is
Þórólfur Guðna-
son, yfirlæknir
á sóttvarnasviði
embættis land-
læknis.
Vegna verkfalla er ekki hægt að rannsaka sýni úr þeim sjúklingum sem talið er að séu með
hettusótt og því getur embætti landlæknis ekki kortlagt faraldurinn.
Það þarf ekki
nema einn
veikan ein-
stakling í
stórum hóp
til að smitið
dreifi sér.
s taða ungs fólks á húsnæð-ismarkaði er að batna, ef marka má nýja skýrslu um
húsnæðismál sem kynnt var hjá Ís-
landsbanka á miðvikudag. Skýrsl-
an var unnin af Reykjavík Econo-
mics fyrir bankann.
Í skýrslunni kemur fram að
staða fyrstu kaupenda hefur batn-
að þar sem þeir eru nú orðnir yfir
20% kaupenda á höfuðborgarsvæð-
inu en voru aðeins 13,6% að meðal-
tali frá því 2008. Meðalaldur fyrstu
kaupenda hefur hækkað og er í dag
29 ár. Það er svipað og í Bretlandi
Í skýrslunni kemur fram að þing-
lýstum kaupsamningum fjölgaði
um tæplega 12% frá árinu á undan
en samtals voru þeir 8314 á síðasta
ári. Heildarvelta á íbúðamarkaðin-
um nam 257 milljörðum króna sem
er rúmlega 16% hækkun að nafn-
virði frá árinu á undan. Í skýrslu
Reykjavík Economics kemur fram
að íbúðaverð á höfuðborgarsvæð-
inu hafi hækkað um 8,8% á síðasta
ári. Verð á eignum í fjölbýli hækk-
aði um 9% en eignir í sérbýli hækk-
uðu um 7,7%
Telja skýrsluhöfundar að ekki
hafi verið byggt nægilega mikið
til að mæta náttúrulegri íbúafjölg-
un á höfuðborgarsvæðinu. Sam-
tals voru 954 íbúðir fullgerðar á
höfuðborgarsvæðinu á árinu 2014
sem er 203 íbúðum meira en árið
2013. Að jafnaði hafa tæplega 1.200
íbúðir verið fullgerðar árlega á ára-
bilinu 1983-2014. Um síðustu ára-
mót voru 1.813 íbúðir í byggingu
á höfuðborgarsvæðinu sem eru
364 færri íbúðir en um áramótin
2013. Byrjað var á 570 íbúðum á
síðasta ári sem er vel undir lang-
tíma meðaltali.
fasteignamarkaður ný skýrsla um Húsnæðismarkaðinn
Segir stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði að batna
Magnús Árni
Skúlason,
hagfræðingur
hjá Reykjavík
Economics,
kynnti skýrslu
um hús-
næðismál sem
unnin var fyrir
Íslandsbanka.
Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 22.-24. maí 2015
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
ABSALON 3JA SÆTA SÓFI
Slitsterkt dökk- og ljósgrátt áklæði.
Stærð 178 x 83 H: 86 cm
Fullt verð krónur 99.990 TILBOÐSVERÐ: 79.990 kr.
ABSALON STÓLL
Slitsterkt dökk-
og ljósgrátt áklæði.
Fullt verð krónur 69.990
TILBOÐSVERÐ: 55.990 kr.
ABSALON
20%
AFSLÁTTUR
ABSALON
Sígild hönnun – frábært verð!