Fréttatíminn - 22.05.2015, Síða 18
Lögfræðistelpur rokka
É g og bróðir minn byrjuðum bæði mjög ung að vinna. Hann var að bera út DV og
var með mig á verktakagreiðslum
við að hlaupa með blaðið til áskrif-
enda. Fyrir þetta borgaði hann mér
síðan brotabrot af því sem hann
fékk greitt. Seinna meir lagði bróð-
ir minn auðvitað fyrir sig viðskipti
en ég skrifaði meistararitgerð í
lögfræði um réttarstöðu kvenna á
vinnumarkaði,“ segir Elín Hrefna
Ólafsdóttir, héraðsdómslögmaður
og meðeigandi í Bonafide lögmönn-
um. Hún er aðeins 26 ára gömul og
því einn yngsti meðeigandi í lög-
mannsstofu á Íslandi.
Elín tekur á móti mér á skrifstofu
sinni hjá Bondfide lögmönnum við
Klapparstíg í Reykjavík. Hún býr í
Vesturbænum þar sem hún leigir
með vinkonu sinni sem er líka lög-
maður, hefur tileinkað sér bíllaus-
an lífsstíl og gengur alla morgna í
vinnuna með viðkomu á kaffihús-
inu Te og kaffi við Fógetagarðinn
miðbænum þar sem hún fær sér
fyrsta kaffibollann. Elín er fædd og
uppalin í Reykjavík og æfði fótbolta
með Leikni í Breiðholtinu sem ung
stúlka. Hún lauk meistaraprófi frá
Háskóla Íslands árið 2013 og hlaut
málflutningsréttindi sama ár. Elín
segir að það hafi í raun verið fyrst
þegar hún var byrjuð í háskólanámi
sem hún ákvað að verða lögfræð-
ingur og grínast með að fjölskylda
hennar hafi verið „slegin“ yfir þeirri
ákvörðun. „Ég var búin að skrá mig
í fjórar aðrar deildir áður en ég end-
aði í lögfræði. Ég var bara eins og
svo margir sem þurfa um tvítugt að
taka þessar stóru ákvarðanir um
framtíðina og fór nánast óvart í lög-
fræði en þar fann ég mig mjög vel,“
segir hún.
Fjölbreyttur eigendahópur
Elín starfaði meðfram námi hjá
gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Ís-
lands, hún var einn vetur aðstoðar-
kennari í námskeiðum við Háskóla
Íslands og hóf störf hjá Bonafide
lögmönnum árið 2011 þegar hún
var enn í námi og hefur verið þar í
fullu starfi síðan. Stofan var stofn-
uð af þeim Lúðvík Bergvinssyni og
Sigurvin Ólafssyni árið 2009. Um
áramótin bættist Elín við sem þriðji
meðeigandinn. Hún segir það í raun
ekki breyta miklu fyrir hana í dag-
legu starfi að vera orðinn meðeig-
andi. „Viðskiptavinurinn er alltaf
okkar yfirmaður. En sem meðeig-
andi kem ég að rekstrarhlið stof-
unnar og stefnumótun. Eftir að ég
varð meðeigandi bankaði hér upp
á kona frá Vestmannaeyjum, Aníta
Óðinsdóttir lögfræðingur, og spurði
hvort við vildum opna útibú í Vest-
mannaeyjum. Við eigendurnir sett-
umst þá niður og fórum yfir stöð-
una. Lúðvík og Sigurvin eru báðir
Eyjamenn og við opnuðum þar útibú
í þarsíðustu viku. Aníta stendur þar
vaktina og við hin skiptumst á að
taka að okkur verkefni í Eyjum. Ég
verð að viðurkenna að ég hafði ekki
komið til Eyja í mörg ár. Líklega fór
ég þangað síðast sem stelpa þegar
ég tók þátt í Pollamótinu því Leiknir
var ekki með kvennaflokk. Það er
skemmst frá því að segja að ég varð
algjörlega heilluð af Vestmanna-
eyjum og verð líklega fyrsta mann-
eskjan til að bjóða mig fram til að
taka vaktir þar.“
Lögfræði var löngum mikil karla-
stétt en konum í Lögmannafélagi
Íslands hefur fjölgað jafnt og þétt
síðustu ár. Þær eru nú um 30%
félagsmanna samanborið við 15,1%
árið 2000. Konur sem eru sjálfstætt
starfandi, það er eiga hlut í fyrir-
tækinu sem þær starfa hjá, eru mun
færri en karlar og því eru það tíðindi
þegar jafn ung kona og Elín er kom-
in í þá stöðu, og segist hún reyndar
ekki vita til þess að jafn ung kona
hafi orðið meðeigandi á Íslandi.
„Mögulega er það vegna þess
að ég hef ekki átt áhugamál síðan
ég byrjaði hérna,“ segir hún og
hlær þegar ég spyr hana um að-
draganda þess að hún varð með-
eigandi en bætir við að vinnan sé í
raun hennar áhugamál. „Það hefur
verið mikil fyrirferð í mér síðustu
þrjú ár. Margar konur sem hafa
starfað sem lögmenn jafn lengi og
ég, eru flottar, frambærilegar og
eiga sannarlega innistæðu fyrir
því að verða meðeigandur. Ég held
því að það skipti líka miklu máli að
ég fékk hér tækifæri til að vinna
með mönnum sem sáu hag sinn í
að auka fjölbreytileikann í eigenda-
hópnum. Það skiptir auðvitað máli
hverjir það eru sem taka ákvörðun
um hvort dyrnar eru opnaðar fyrir
konum. Oft er það þannig í þess-
um geira að fólk er búið að banka
á þessar dyr mjög lengi þegar það
fær loks grænt ljós og margir fara
jafnvel á milli fyrirtækja ef þeir fá
ekki tækifæri. Þegar fólk er búið
að starfa lengi hjá sama fyrirtæk-
inu og vill komast áfram þá er það
hindrun á veginum ef því er ekki
hleypt inn í eigendahópinn. Mínir
meðeigendur eru yndislegir menn
sem telja að það sé hagur fyrir-
tækisins að jafna hlutfall kynjanna
í eigendahópnum,“ segir hún.
Betur má ef duga skal
Meistararitgerð Elínar ber heitið
„Betur má ef duga skal. Réttar-
staða kvenna á vinnumarkaði“ en
rannsóknin er á sviði kvennaréttar
og styrkt af velferðarráðuneytinu.
„Ráðuneytið var að leita eftir úttekt
á framkvæmd laga á sviði jafnréttis-
mála. Ég skoðaði helstu ágreinings-
málin, laun og ráðningar, og fór í
gegnum framkvæmd laganna með
hliðsjón af Evrópurétti. Eins og á
svo mörgum öðrum sviðum jafn-
réttismála á Íslandi er staðan góð
en margt sem hægt er að gera bet-
ur. Niðurstöður rannsóknar minnar
voru lagatæknislegs eðlis um hvern-
ig mætti brýna löggjöfina til að hún
þjónaði tilgangi sínum betur.“
Elín tekur dæmi af ráðningum og
hvernig erfitt sé að útfæra jafnréttis-
lögin þannig að þau virki sem best.
„Atvinnurekendur þurfa að líta til
ákveðinna skilgreindra þátta þegar
þeir meta umsækjendur en þeim er
einnig gefið frjálsræði þegar kemur
að því að meta aðra huglæga þætti
sem nýtast í starfi. Niðurstaðan
er að mögulega hafi það svigrúm
kannski verið nýtt of mikið,“ segir
hún.
Fegurðin í lögfræðinni
Málasviðin sem koma inn á borð
lögmannsstofunnar eru eins mis-
jöfn og þau eru mörg og endur-
spegla á ákveðinn hátt breytingar í
samfélaginu. „Síðustu ár höfum við
til að mynda verið með mörg mál
einstaklinga gegn fjármálafyrir-
tækjum en ég hef líka mikið unnið
málum í sjávarútvegi. Eftir að ég
vann í gjaldeyriseftirliti Seðlabank-
ans hef ég síðan aflað mér meiri
reynslu á sviði fjármálaréttar. Síðan
koma alltaf inn mál sem eru áfram
af ástríðu þar sem hagsmunir eru
litlir í krónum talið en miklir fyrir
einstaklinginn. Þetta eru jafnvel for-
sjármál og gjafsóknarmál. Við fáum
stundum mál sem bara hreinlega
þarf að vinna, sama hvað það kost-
ar. Ég viðurkenni að ég er líkleg-
ust hérna inni til að sanka þeim að
mér en það er gert með góðu sam-
þykki annarra. Það skemmtilegasta
við starfið er að maður veit aldrei
hvernig vinnudagurinn verður. Það
er fegurðin í lögfræðinni að fá að
snerta á öllum hliðum samfélags-
ins.“
Vegna þess hversu mikill tími
hefur farið í aðaláhugamál Elínar
síðustu ár – vinnuna – hefur hún
lítið getað sinnt öðrum áhugamál-
um og segist raunar hafa verið að
leita að nýju áhugamáli. Hún hefur
áhuga á útivist og fjallgöngum, jafn-
réttismálum og mannlífsflórunni í
heild. „Ég er síðan búin að sannfæra
nokkrar vinkonur mínar í að skrá
sig með mér í rokkbúðirnar „Stelpur
rokka!“ og svo ætlum við að stofna
hljómsveit,“ segir hún en rokkbúð-
ir fyrir stelpur hafa verið haldnar
síðustu ár í samstarfi við Reykja-
víkurborg og vegna vinsælda nám-
skeiðanna er svo komið að boðið er
upp á rokkbúðir fyrir stelpur yfir
tvítugu. Og mér finnst þetta vera
svo góð lokaorð að ég endurtek þau
hér með: Stelpur rokka.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Elín Hrefna Ólafsdóttir héraðsdómslögmaður er orðin
meðeigandi í lögmannsstofu í Reykjavík þrátt fyrir að vera
aðeins 26 ára gömul. Hún var sannarlega ekki alltaf ákveðin í
að verða lögfræðingur og var búin að skrá sig í nám í fjórum
deildum áður en hún fann sig. Elín hefur tileinkað sér bíllausan
lífsstíl, hún leigir íbúð með vinkonu sinni í Vesturbænum og í
sumar ætlar hún í rokkbúðirnar „Stelpur rokka“ með vinkonum
sínum og síðan ætla þær að stofna hljómsveit.
Elín Hrefna Ólafsdóttir héraðsdómslögmaður er með yngstu meðeigendum á lögmannstofum á Íslandi. Hún segir fegurðina í lögfræðinni felast í því að fá að snerta á öllum sviðum sam-
félagsins. Mynd/Hari
Hver er
Elín Hrefna
Ólafsdóttir?
Fædd: 3. júní 1988.
Áhugamál: Stóra
áhugamálið er auð-
vitað leitin að hinu
fullkomna áhugamáli.
Ég er til í að prófa allt
minnst einu sinni. Ég
æfði fótbolta, hand-
bolta og golf í mörg
ár, hljóp hálfmaraþon
í gríni þegar ég ætlaði
að verða ofur-skokk-
ari og hef síðan farið
á endalaus námskeið
í hinu og þessu, til
dæmis fallhlífarstökki,
matreiðslu og dansi.
Ég tek nýjum áhuga-
málum mjög alvarlega
en þess á milli þeirra
les ég mikið og leysi
krossgátur.
Uppáhaldsmatur:
Kótelettur í raspi eins
og mamma gerir þær
(blikk, blikk, mamma
ég er laus í mat á
sunnudaginn).
Leyndir hæfileik-
ar: Ég get sungið allt
lagasafn Spice girls án
þess að missa úr eina
setningu. Ég syng allar
fimm raddirnar og gef
engan afslátt. Ef ég
er í mjög miklu stuði
get ég líka tekið flesta
dansana þeirra.
?
Sjálfstætt starfandi lögmenn
Karlar Konur
Fjöldi lögmanna 736 327
Sjálfstætt starfandi 393 101
53% kk 31% kvk
Heimild: Lögmannafélag Íslands
Margar konur
sem hafa starfað
sem lögmenn
jafn lengi og ég,
eru flottar, fram-
bærilegar og
eiga sannarlega
innistæðu fyrir
því að verða
meðeigendur.
18 viðtal Helgin 22.-24. maí 2015