Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 31
kreppir að. Þetta upplifðu Íslending-
ar í Hruninu. Þá flæktist þráðurinn
í Íslandssögunni. Við vorum sem
sé frjáls og glöð en misstum frelsið
og lifðum vondan tíma þangað til
við fundum frelsið aftur og urðum
aftur kát og glöð en þá hrundi allt
skyndilega aftur. Hvernig er hægt
að útskýra þau sögulok?
Eins og algengast er gripu ís-
lenskir þjóðernistrúarhópar til
kenninga um að ástæðan fyrir
Hruninu hafi ekki verið sú að gamla
þjóðtrúin hafði reynst röng; heldur
sú að sumir Íslendingar hefðu ekki
verið nógu sannir Íslendingar og
við ekki áttað okkur á reginmunin-
um sem er á ekta og óekta Íslend-
ingi. Ófarir okkar eru afleiðing þess
að við leyfðum ósönnum Íslending-
um að læða að okkur villutrú, kenn-
ingum um að hægt væri að njóta
frelsis og fullveldis þjóðar að hálfu
leyti en fórna því að hálfu til að njóta
einnig ávaxta alþjóðlegrar sam-
vinnu og samstarfs. Þjóðernistrúar-
fólk dró því þá ályktun af Hruninu
að nú skyldu Íslendingar hreinsa
sig og láta af allri villutrú; verða á
ný hreinir og sannir Íslendingar,
algjörlega fullvalda og sjálfstæðir,
engum háðir.
Eins og gefur að skilja hafði þessi
afstaða þjóðernistrúarhópa ekki
blíð áhrif á samfélagið. Allskonar
fólk var sakað um að vera óekta
og sigla undir fölsku flaggi. Orð
þess og hugmyndir voru véfengdar
fyrir að vera sprottnar úr röngum
jarðvegi. Fullyrt var að það gæti
ekki talað máli Íslands né þekkt
íslenska hagsmuni. Aðeins sannir
Íslendingar og óekta gátu þekkt
hina sönnu braut. Til að fólk gæti
gert tilkall til að vera álitið sannir
Íslendingar belgdist það út af þjóð-
ernisást, rómaði landið og allt sem
í því var; át aðeins íslenskan mat,
hugsaði aðeins íslenskar hugsanir
og leitaði aðeins íslenskra lausna og
leiða. Íslenska leiðin, það hlýtur að
vera rétta leiðin. Sá varð lærdómur
Hrunsins fyrir marga.
Andlegur afi íslamska ríkisins
Þau sem undrar þetta ástand á ís-
lensku samfélagi geta rifjað upp
örlög íslamska hugtaksins jahi-
liyyah. Það hafði legið lítið notað í
nokkrar aldir þegar egypski kenn-
ismiðurinn Sayyid Qutb gróf það
upp og notaði til að útskýra sýn sína
á ástandið í Egyptalandi og öðrum
löndum íslam eins og hann sá það út
um gluggann á fangelsinu sem Nas-
ser stakk honum inn í eins og svo
mörgum öðrum forystumönnum
Múslimska bræðralagsins.
Qutb stóð frammi fyrir sömu
ráðgátu og íslenskir þjóðernistrúar-
menn eftir Hrun. Hann þurfti að út-
skýra hvers vegna lönd íslam voru
svona illa leikin úr því að Múham-
eð hafði fært guðlegan tilgang inn
í hið forna samfélag araba svo það
blómstraði. Hvernig stóð þá á því
að þessi samfélög blómstruðu ekki
lengur? Þau voru ekki lengur ríkari
og öflugri en löndin í kring heldur
þvert á móti fátækari og aflminni.
Íslamskir fræðimenn sáu fyrir
þúsund árum hvernig Allah hafði
frjóvgað hugmyndir og verk mann-
anna en hvers vegna var sá galdur
hættur að virka?
Við getum náttúrlega sagt okkur
það sjálf að Qutb komst að sömu
niðurstöðu og íslensku þjóðernis-
trúarhóparnir eftir Hrun. Ástæðan
fyrir hnignun ríkja íslam var að
sumir múslimar voru ekki ekta
múslimar. Og sorgarsaga þess-
ara ríkja var að hafa falið stjórn
landsins í hendur manna sem voru
ekki sannir múslimar, manna sem
beygðu sig ekki undir leiðsögn Al-
lah heldur létu allt annað teyma sig
áfram. Þessir óekta múslimar höfðu
leitt hið guðlausa ástand inn í lönd
íslam, jahiliyyah. Þeir höfðu haldið
því fram að hægt væri að vera í
senn sannur múslimi og framsýnn
nútímamaður, sem nýtti sér allt það
besta sem hægt væri að sækja til
vestrænnar menningar.
Með skrifum Sayyid Qutb varð
jahiliyyah ekki aðeins hugtak um
veröldina áður en Múhameð frjóvg-
aði samfélögin með orðum Allah,
og ekki heldur aðeins skýring á
innihaldsleysi og kulda vestrænna
samfélaga þrátt fyrir tæknigetu og
uppsafnaða þekkingu á öllu mögu-
legu og ómögulegu; heldur varð
jahiliyyah lykilhugtak til að skýra
hrun islömsku ríkjanna. Jahiliyyah
var það ástand sem læddist inn
þegar þú taldir þig geta gefið afslátt
af íslam til að fá notið einhvers af
gæðum hins vestrænna heims. Eins
og þegar Íslendingar gáfu afslátt
af fullveldi sínu og kölluðu með því
yfir sig hrun og hörmungar; þannig
hafði íslamski heimurinn spillst af
undirgefni við gildis- og verðmæta-
mat sem gat ekki samræmst sönnu
íslam.
Þessi hugsun Sayyid Qutb féll í
frjóan jarðveg meðal ungra manna
sem börðust gegn kúgun einræðis-
herra og herforingja í íslömskum
löndum. Og hún er enn að skjóta
rótum og bera vonda ávexti um
allan hinn íslamska heim. Hug-
myndin um jahiliyyah innan íslam
er lykilhugmyndin að baki þess
að múslimskir öfgahópar snúast
gegn öðrum múslimum eins og
væru þeir trúlausir og utangarðs,
tilheyrðu ekki bræðralagi múslima,
nytu ekki verndar og væru í raun
réttdræpir sem óvinir trúarinnar.
Qutb er andlegur faðir Al-Qaeda og
langafi íslamska ríkisins. Til hans
sækja þessir hópar hugmynda-
fræðilegan grundvöll þess að drepa
alla þá leitt hafa jahiliyyah yfir
lönd íslam. Það er vegna Qutb sem
íslamskir öfgahópar drepa fyrst og
fremst trúbræður sína – þótt okkur
á Vesturlöndum sé gjarnt að trúa
að okkur sjálfum standi fyrst og
fremst ógn af þessum hópum og að
fólkið sem þeir myrða séu í raun í
sama liði og morðingjar þess.
Margar útfærslur, ólíkir ávextir
En hvernig tengist þessi saga öll
mat og matarvenjum?
Ja, ég hef kannski leyft mér að
staldra of lengi við þá hugmynd að
rótin að vanda samfélagsins liggi
ef til vill ekki í augum uppi. Að það
sem virkar á einum tíma virki allt í
einu alls ekki og jafnvel þveröfugt;
vegna þess að inntak og merkingin
er horfin og týnd. Ég vildi vera full-
viss um að þið skilduð hvað ég var
að meina áður en ég segði ykkur
hvernig þetta hefur haft áhrif á
matinn okkar, hvernig og hvað við
borðum. Og að þið gerðuð ykkur
grein fyrir að þessi hugsun um falið
mein að baki hlutunum; gæti getið
af sér glundroða eins og á Íslandi í
dag, hreinræktaðan hrylling eins
og í tilfelli Sayyid Qutb en líka frjó-
samt starf og gjöfult eins og hjá
José Antonio Abreu.
Í næstu viku mun ég segja ykkur
frá því hvernig hugmyndin um
andlegt hrun að baki hins sýnilega
veruleika hefur haft áhrif á matinn
okkar.
KRÓNAN VEITIR 99% AFSLÁTT
fyrir barnið aðra leiðina + flugvallarskattar. Greiða þarf
flugvallarskatta og eru þeir 1.700 kr. frá Reykjavík og
1.350 kr. frá öðrum áfangastöðum innanlands.
FERÐATÍMABILIÐ ER FRÁ 18. MAÍ.–30. JÚNÍ
BÓKANLEGT FRÁ 18.–31. MAÍ 2015
Sláðu inn í bókunarvélina flugsláttinn KRONA
til að trygg ja þér þetta tilboð.
ÞETTA EINSTAKA TILBOÐSFARGJALD
• gildir til Reykjavíkur, Akureyrar, Ísafjarðar
og Egilsstaða
• gildir ekki í tengiflug
• er fyrir börn, 2–11 ára, í fylgd með fullorðnum
og í sömu bókun
• býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is
• ekki er hægt að bæta barni við bókunina eftir á
• ekki er hægt að nota tvo flugslætti í sömu bókun
is
le
ns
ka
/s
ia
.is
F
LU
7
26
88
0
2/
15
AF BARNA FARGJÖLDUM INNANLANDS
99%afsláttur
FJÖLSKYLDAN FLÝGUR SAMAN Á VIT ÆVINTÝRANNA FLUGFELAG.IS
BARNGÓÐAR KRÓNUR
TAKA Á LOFT
matartíminn 31 Helgin 22.-24. maí 2015