Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 46
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru ár-
lega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir
hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag
í vísindastarfi er styrki stoðir mannlífs á Íslandi.
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna
Vísinda- og tækniráðs 2015. Verðlaunin eru tvær
milljónir króna.
Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda,
tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar
á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki
eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu
til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt
að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal
fylgja tilnefningu. Hvatningarverðlaunin verða afhent
við hátíðlega athöfn haustið 2015.
Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils
viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og
árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða,
einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vís-
bendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi.
Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum.
Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun
þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar
verðlaunanna skipa dómnefnd.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með
18. júní 2015.
Tilnefningum ásamt ítarlegum upplýsingum um feril
tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á
netfangið rannis@rannis.is
Nánar á www.rannis.is
Vísinda- og tækniráðs
Hvatningar
verðlaun
Tilnefningar óska
st!
Þ etta tókst gríðarlega vel í fyrra og nú förum við aftur af stað með enn meiri
krafti,“ segir Brynja Þóra Guðna-
dóttir, umsjónarmaður Laugar-
garðs – samfélagsrekins matjurta-
garðs í Laugardalnum í Reykjavík.
Laugargarður er tilraunaverkefni
sem gengur út á að nýta almenn-
ingsrými borgarinnar undir mat-
jurtarræktun fyrir hverfisbúa og
skapa um leið vettvang fyrir ýmsar
uppákomur og fræðslu sem tengist
sjálfbærni og matarmenningu.
Laugargarður var settur á lagg-
irnar síðasta sumar sem sam-
starfsverkefni fjögurra nema úr
Listaháskóla Íslands og Landbún-
aðarháskólanum, sem og Reykja-
víkurborgar. Brynja er sú eina úr
hópnum sem heldur verkefninu
áfram í ár en hún hefur fengið til
liðs við sig vistræktendurna Guð-
rúnu Huldu Pálsdóttur og Sigurð
Unuson en þau standa að sérstakri
vinnustofu á laugardag og sunnu-
dag. Þau eru með PCD gráðu í vist-
rækt og hafa meðal annars numið
vistrækt á Írlandi.
Vistrækt í borg
Markmið með vinnustofunni er að
koma af stað starfsemi fyrir sum-
arið, skipuleggja fyrstu skrefin í
ræktuninni og gera framtíðaráætl-
anir. Á vistræktarvinnustofunni
verður hugmyndafræði vistræktar
kynnt, skoðaðar verða ýmsar
ræktunarlausnir og ýmsum hug-
myndum velt upp um heildræna
hönnun á garði. Þá mun Lilja
Sigrún Jónsdóttir, stofnandi fyrstu
grenndargarða í Reykjavík, halda
stutt erindi um þau jákvæðu áhrif
og þann hvatningamátt sem að
gott grenndarsamfélag hefur á
ræktendur. „Við fórum heldur seint
af stað síðasta sumar og margir
áhugasamir sem vissu ekki af
þessu fyrr en of seint. Með því að
hefja sumarstarfið með vinnustofu
verður þetta markvissara og von-
andi enn fleiri sem eru meðvitaðir
um þetta vistvæna samfélagsverk-
efni,“ segir hún. Ýmsar tilraunir
voru gerðar í garðinum í fyrra, til
að mynda með sjálfvökvandi kerfi
og hámarksræktun á sem minnst-
um fleti.
Laugargarður er um 700 fm
garður við hliðina á Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Laugardal.
Hugsunin að baki honum er að
íbúar hverfisins séu virkir þátt-
takendur. Sumarið í fyrra hófst
með sáningardegi þar sem mold
og fræ voru lögð til en fólki frjálst
að koma með eigin fræ og plöntur.
Fólk vinnur í garðinum í eigin
frítíma og er uppskeran seld á
bændamarkaði, en ágóðinn af
sölunni er nýttur til að viðhalda
starfsemi garðsins. „Þetta gerir
líka mikið fyrir mannlífið, fólk
kynnist betur og hefur gaman við
að vinna saman að þessu sameigin-
lega verkefni,“ segir Brynja. Á
Bændamarkaðnum í fyrra var eld-
að beint upp úr garðinum auk þess
sem bændur og einstaklingar með
heimaræktun seldu sínar afurðir.
Sjálfbær borgarbúskapur
Í Laugargarði er einungis notast
við lífrænan áburð. Hugmynda-
fræði vistræktar um að líkja eftir
náttúrulegum ferlum í hönnun
ræktunarsvæðis fer vel saman við
hugmyndafræði Laugargarðs um
að gera verkið sem sjálfbærast og
auðveldast í sátt og samlyndi við
náttúruna. Samkvæmt aðalskipu-
lagi Reykjavíkurborgar er áhersla
lögð á sjálfbærni borgarinnar og
borgarbúskap. Laugargarður er
því í samræmi við framtíðarsýn
borgarinnar.
Frístundaheimilið Dalheimar
er meðal þeirra sem taka þátt í
verkefninu í sumar. Allar nánari
upplýsingar um verkefnið og
vinnustofuna má finna á vefnum
Laugargardur.com. Þátttaka í
vinnustofunni er ókeypis en tekið
við frjálsum framlögum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Elduðu
beint
upp úr
garðin-
um
1. Blómkál fékk að
vaxa og dafna í
Laugargarði.
2. Brokkóli, eða
spergilkál, óx vel
í garðinum og
bragðaðist ein-
staklega vel.
3. Hér sjást rófur
sem komu upp
síðasta sumar
en það voru líka
ræktaðar góm-
sætar radísur.
4. Sérstakur
plöntuskipta-
dagur var haldin
í Laugargarði
síðasta sumar þar
sem fólk skiptist
á plöntum.
5. Skarfakál í sandi
sem var tekinn
úr fjörunni og
lifði góðu lífi í
Laugargarði.
6. Skjaldflétta er
gott matblóm.
Það er hægt að
nota hana í pestó
en blómin eru
einnig falleg í
salöt.
7. Kartöflurnar voru
ræktaðar í bláum
tunnum.
Laugargarður – samfélagsrekinn matjurtagarður í Laugardalnum í Reykjavík – verður endur-
vakinn í sumar en hann var settur á laggirnar síðasta sumar sem tilraunaverkefni nokkurra
nema í samstarfi við Reykjavíkurborg. Markmiðið með Laugargarði er að skapa vettvang til
borgarbúskaps, auka aðgang almennings að ferskum mat og gæða mannlífið meiri fjölbreyti-
leika. Starfið í sumar hefst með sérstakri vinnustofu um helgina.
Uppskeruhátíð Laugargarðs í fyrra var í formi bændamarkaðs en ágóði af
sölunni fór til áframhaldandi uppbyggingar garðsins.
46 garðrækt Helgin 22.-24. maí 2015