Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 50
Það geta
allir ræktað
grænmeti
Nú er tíminn til að byrja vinnu
við matjurtagarðinn. Hver
vill ekki borða sínar eigin
nýuppteknu gulrætur, sjóða
smælki upp úr smjöri í haust
eða skreyta sumarsalötin með
stjúpum. Ingibjörg Sigmunds-
dóttir í Garðyrkjustöð
Ingibjargar í Hveragerði segir
æfinguna í garðinum skapa
meistarann, allir geti verið
með græna fingur.
É g ráðlegg fólki að setja ekki niður matjurtaplöntur fyrr en eftir 20. maí þó hægt sé
að byrja á kartöflum, gulrótum og
radísum fyrr,“ segir Ingibjörg Sig-
mundsdóttir sem hefur rekið Garð-
yrkjustöð Ingibjargar í Hveragerði
í 34 ár. „Þessar upplýsingar byggi
ég nú bara á áralangri reynslu. Það
er alla veðra von hér á landi og ein
frostnótt getur skemmt allt fyrir
manni.“
Gott að nota akríldúk til
verndar
Samkvæmt reynslu Ingibjargar er
því þessi helgi rétti tíminn til að
bretta upp ermarnar og byrja að
rækta garðinn sinn. „Það þarf að
byrja á því að stinga upp kálgarð-
inn og undirbúa fyrir útplöntun.
Þá stingum við moldina upp með
stungugaffli til þess að létta mold-
ina og hreinsa allt sem á ekki að
vera í henni, eins og leifar frá fyrra
sumri, steina eða hverskyns drasl.
Svo má fara að setja niður kartöflu-
útsæði og sá gulrótunum og rad-
ísum, ef það hefur ekki verið gert
nú þegar. Svo er líka hægt að setja
niður forræktaðar kálplöntur. Það
er ágætt að setja akríldúk yfir mat-
jurtagarðinn og hafa hann þar til fer
að spíra vel upp, sérstaklega ef það
er sáð snemma því dúkurinn ver
fyrir allt að 5 gráðu frosti.“
Auðvelt að rækta brokkólí
Ingibjörg segir það ekki vera
margar plöntur sem hægt sé að sá
beint út í garð, flestar sé best að
byrja á að rækta inni, annaðhvort
í gróðurhúsi eða bara í stofuglugg-
anum. Langauðveldast og vinsæl-
ast í amstri dagsins sé þó að kaupa
plöntur í garðyrkjustöðvum. Sjálfri
finnst Ingibjörgu gaman að prófa
sig áfram með ræktun allskyns sal-
attegunda en hún mælir með rækt-
un hnúðkáls, brokkólís, grænkáls
og salats fyrir þá sem eru að byrja
með kálgarð. Það séu tegundir sem
auðvelt sé að rækta. „Það geta allir
ræktað grænmeti og það er ekki
erfitt að rækta neitt. Til dæmis er
mjög auðvelt að rækta brokkólí en
það þarf að passa upp á að skera það
á réttum tíma því annars fer það að
blómstra. Fólk þarf bara að fikra sig
áfram og æfingin skapar meistar-
ann.“ -hh
Gaman er að rækta blóm á við skjaldfléttu og morgunfrú því þau þrífast vel í ís-
lenskum görðum og eru einstaklega góð og ekki síður falleg í salöt.
n Skjaldflétta er
litríkt hengiblóm
og blómin á henni
eru sérstaklega
góð og safarík.
Bragðið minnir á
hunang.
n Morgunfrú er
holl og góð og
bragðast eins og
salat.
n Fjólur og stjúpur
eru bragðlitlar en
einstaklega fagrar
á hvaða mat sem er.
Brotna
niður í
náttúrunni
E cover hreinsivörurnar eru unnar úr plöntum og stein-efnum sem brotna niður í
náttúrunni. Það nýjasta frá fram-
leiðendum Ecover eru umhverfis-
vænar umbúðir, sem unnar eru úr
sykurreyr og endurunnu plasti.
Engin steinolíu-plastefni koma þar
nálægt og kallast umbúðirnar Plant-
plastic®. Allar vörur sem eru í papp-
írsumbúðum eru úr endurunnum
pappa, svo allar umbúðir Ecover
mega fara í endurvinnslu. Ecover er
með B Corps vottun en það er sam-
bærileg vottun og Fair trade vottun
í annarri framleiðslu.
Náttúrulegur og ferskur ilmur
Ecover vörunum fylgir ferskur og
náttúrulegur ilmur en þær eru fram-
leiddar úr jurtum eins og Aloe Vera
og Lavender. Kókosolía er einnig
í Ecover vörunum og appelsínu-
börkur svo eitthvað sé nefnt. Ecover
hreinlætislínan inniheldur öll helstu
hreinsiefni fyrir heimilið, svo sem
gólfþvottalög, uppþvottalög, töflur í
uppþvottavélina, þvottaefni fyrir lit-
aðan og hvítan þvott ásamt fljótandi
þvottaefni. Vörurnar eru áhrifarík-
ar og virka vel, um leið og þær fara
mjúkum höndum um umhverfið og
líkamann.
Húðlæknar mæla með Ecover
Uppþvottalögurinn frá Ecover
þurrkar ekki húðina á höndunum
og er mjög áhrifaríkur í uppvask-
ið með náttúrulegum jurtailmi, sí-
trónu eða kamillu. Húðlæknar sem
hafa prófað vörurnar frá Ecover eru
mjög sáttir við útkomuna, niður-
staðan sýnir að vörurnar eru jafn-
vel öruggar fyrir börn og þá sem
eru með viðkvæma húð. „Ecover er
einnig með uppþvottavélatöflur og
til þess að vera enn umhverfisvænni
þá mælum við með að nota einungis
hálfa töflu í almennar heimilisupp-
þvottavélar, það er alveg nóg,“ seg-
ir Þórhallur Baldursson, sölustjóri
Heilsu ehf. „Þeir sem byrja að nota
Ecover vörur og eru meðvitaðir um
umhverfið snúa ekki aftur í annað.“
Ecover vörurnar fást í Heilsuhús-
unum, sem eru með mesta úrvalið,
Blómavali, Fjarðarkaupum og núna
einnig í Bónus. Nánari upplýsingar
um Ecover má finna á heimasíðunni
is.ecover.com.
Unnið í samstarfi við
Heilsu ehf.
Ecover
Fáðu náttúruna í
lið með þér
n Náttúruleg
hreinsiefni úr
plöntum og stein-
efnum.
n Henta fyrir
viðkvæma húð og
valda síður ofnæmi.
n Aldrei prófað á
dýrum.
n Plantplastic –
umbúðir úr sykur-
reyr og endurunnu
plasti.
Ecover eru umhverfisvænar hreinsivörur sem eru góðar fyrir
þig og náttúruna. Einkunnarorð Ecover eru „heilbrigði fyrir
heimilið“ en vörurnar eru framleiddar úr jurtum og brotna full-
komlega niður í umhverfinu.
Helgin 22.-24. maí 201550 heilsa
Inniheldur aðeins
náttúrulegar jurtir td.
Sítrónu Melissu og
Chamomillu ásamt
blöndu B vítamína og
magnesíum.
SOFÐU RÓTT
Í ALLA NÓTT
„Laus við fótaóeirð og
sef mun betur“
-Sigríður Helgadóttir