Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 52
52 heilsa Helgin 22.-24. maí 2015
Hlaup SkokkHópur Hauka með utanvegaHlaup um HvítaSunnuna
Nilfisk
Gæði og góð þjónusta í 80 ár!
24.300 kr
24.300 kr
35.200 kr
46.900 kr
118.800 kr
82.600 kr
73.800 kr
29.900 kr
19.900 kr
KOSTA
RÍKA
NÁTTÚRUPARADÍS SEM Á EKKI SINN LÍKA
5. - 19. SEPTEMBER
Verð kr. 565.940.-
Innifalið í verði: Flug, skattar, hotel, allar ferðir,
islenskur fararstjóri og aðgangur þar sem við á
Ferðaskrifstofan hefur nú hannað í samvinnu við
heimamenn sérstaka ferð sem saman-stendur
af upplifun af náttúru landsins og dýralífi þess.
Auk þess munum við kynnast fólkinu sjálfu
sem landið byggir. Ferðin er ætluð brosandi og
lifandi fólki sem vill upplifa ævintýri í ótrúlegu
umhverfi
u tanvegahlaup hafa notið sívaxandi áhuga meðal hlaupara að undanförnu. Hjá Skokk-hópi Hauka í Hafnarfirði hefur stór hópur
af hlaupurum fært sig úr götuhlaupum í utanvega-
hlaup, enda er í næsta nágrenni Ásvalla, íþróttasvæðis
Hauka, eitt fallegasta útivistarsvæði á Stór Reykjavík-
ursvæðinu. Hvítasunnuhlaupið verður haldið í þriðja
sinn á mánudaginn næsta, 25. maí.
Fyrsta utanvegahlaup skokkhóps Hauka fór fram
vorið 2013 og fékk góðar viðtökur hlaupara. Fyrsta
árið var aðeins ein vegalengd, 17,5 kílómetrar, en í
fyrra var einnig boðið upp á styttri vegalengd, 14 kíló-
metra. Í styttri vegalengdinni er sleppt að hlaupa upp
á Stórhöfðann en það gerir hlaupið mun auðveldara og
ætti að vera á færi flestra hlaupara sem treysta sér til
að hlaupa 10 kílómetra götuhlaup.
Keppt verður í þremur aldursflokkum í fyrsta
skipti í ár. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin
í hverjum aldursflokki, auk þess sem sigurvegarar í
kvenna- og karlaflokki í 17.5 km fá afhentan í fyrsta
skipti farandbikar sem hefur fengið nafnið Hvítasunn-
umeistarinn.
Allir þátttakendur hafa möguleika á að vinnu út-
dráttarverðlaun en Sportís, aðalstyrktaraðili hlaups-
ins, gefur meira en 10 pör af Asics hlaupaskóm sem
dregnir verða út eftir hlaupið.
Hörð keppni hefur verið um efstu sætin á hverju ári
enda hafa mætt flestir af bestu utanvegahlaupurum
landsins. Kári Steinn hljóp í fyrra hlaupið á 1:04:07.
Mikil keppni hefur verið í kvennaflokki en 2013 vann
Eva Skarpas Einarsdóttir en í fyrra Elísabet Mar-
geirsdóttir á tímanum 1:25:38 en Eva var aðeins 20
sekúndum á eftir henni. Þær eru báðar skráðir til
leiks um hvítasunnuna og er öruggt að það á eftir að
vera mikil keppni milli þeirra auk þess eru nokkrir
aðrir sterkir kvenhlauparar skráðir sem gætu blandað
sé í baráttuna um efsta sætið.
Hvítasunnuhlaupið var valið þriðja besta utan-
vegahlaupið hjá hlaup.is 2013 og það fjórða 2014 með
atkvæðum 72 hlaupara það sem heildareinkunn var
9,60 en þess má geta að hlaupið sem var valið það
besta var kosið með aðeins 8 atkvæðum með heildar-
einkunn 9,81.
Hlaupið fer, eins og áður segir, fram mánudaginn
25. maí og hefst klukkan 10. Skráning fer fram á
hlaup.is og skráningargjald er 3.000 krónur.
300 manns í utanvega-
hlaupi í Hafnarfirði
Næst stærsta utanvegahlaup á Íslandi fer fram í Hafnarfirði nú um hvítasunnuhelgina. Skokk-
hópur Hauka skipuleggur hlaupið og er búist við því að um 300 manns muni hlaupa um einstaka
náttúru í upplandi Hafnarfjarðar.
Elísabet Margeirsdóttir sigraði í kvennaflokki og Kári Steinn Karlsson í karlaflokki í Hvítasunnuhlaupinu í fyrra.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
2.–9. júní. Íbúð með einu
svefnherbergi og sjávarsýn
79.900 KR.
PORTO DRACH
Superior íbúðahótel í Porto Cristo.
Í næsta nágrenni við hótelið eru
verslanir, veitingastaðir, barir og
smábátahöfn. Hótelið stendur í
nágrenni við Drekahellana sem
enginn má láta framhjá sér fara.
m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 136.500 kr. m.v. 2 fullorðna.
Þeir sem b
óka ferð til
Mallorca í
maí fá frítt
fyrir
alla fjölsky
lduna í
Aqualand,
á meðan
birgðir end
ast.
VA
LIÐ
BESTA HÓTELIÐMALLORCA