Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 70
V arúlfarnir hans Stefáns Mána voru greini-lega ekki bara eitt lítið hliðarskref því nú er komin út bók tvö um ungu úlfana hans,
Nóttin langa. Alexander og félagar hans í samtökum
nafnlausra varúlfa eru að basla við að koma böndum
á varúlfasamfélagið á Íslandi þegar dularfullir
atburðir flétta á skemmtilegan hátt aðalhetjurnar,
varúlfana, inn í íslenskt nútímasamfélag þannig að
úr verður ljómandi sumarreyfari.
Alexander, aðal söguhetjan, er að venjast hlut-
skipti sínu sem varúlfur og lífið er farið að taka á sig
venjulegan eintóna blæ eftir spennuna sem fylgdi
í kjölfar þess að uppgötva stökkbreyttu genin sem
valda umbreytingunni. Vandræði í einkalífinu og
allur pakkinn. Dularfullir útlendingar blandast svo
inn í fléttu sem helst væri hægt að líkja við hálf-
fullorðins fantasíu í anda ævintýrabókanna frá
því í gamla daga.
Stefáni tekst ljómandi vel að
tóna niður ofbeldið sem
svo oft einkennir skrif
hans. Enda markhóp-
urinn væntanlega
unglingar og
þeir sem
hanga ung-
ir í anda.
Fólkið
sem
getur
vel
ímyndað
sér yfirnátt-
úrulegar verur
á meðal okkar hérna
í nútímanum. Svolítið Enid
Blydon hittir Twilight blandað
hráslagalegum íslenskum
undirheimablæ – og virkar
líka svona ljómandi vel.
Bókin er ekki neitt sér-
staklega löng. Rétt rúmar
tvö hundruð síður og
rennur ágætlega áfram.
Höfundi hættir þó á
stundum að fara full ýtarlega í persónu- og staðar-
lýsingar. Þetta er raunar hálfgert höfundareinkenni
en myndi sóma sér betur í lengri bók. Það hefði
mátt binda nokkra lausreimaða enda í staðinn. Kafa
aðeins dýpra í söguþráðinn.
Bókin er þó tilvalin sem sumarfrísreyfari. Ekta til
að grípa í nú þegar sólin hækkar á lofti og landinn
fer í frí. Svo er bara að bíða eftir því að bók númer
þrjú líti dagsins ljós því það er morgunljóst að Stefán
Máni er hvergi nærri hættur með þennan bókaflokk
– og er það vel.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
RitdómuR NóttiN laNga eftiR StefáN máNa
Ljómandi lítil sumarbók
Úlfshjarta ii:
Nóttin langa
Stefán Máni
Sögur útgáfa, 2015, 215 s.
Stefán Máni tónar niður ofbeldið enda markhópurinn unglingar og þeir sem eru ungir í anda.
Stefán
Máni.
leikliSt HVeR má bÚa í HÚSiNu?
Eldhúsið í Tjarnarbíói
l eiksýningin Eldhúsið verður sýnt á laugardaginn í Tjarn-arbíói klukkan 14. Verkið
segir frá eldri manni og lítilli
stelpu, tveimur ólíkum persónum,
sem finna autt hús. Þau vilja bæði
búa í húsinu en það er óljóst hver
var fyrri til að finna það. Upphefst
galsafullur leikur um það hver á
réttinn til að búa í húsinu. Mikið
stuð og leikgleði prýðir þessa
sýningu og skemmtilegar leikhús-
lausnir í anda Jo Strømgren.
Leiksýningin Eldhúsið var
sett saman árið 2012 og er fyrsta
sýning Jo Strømgren sem er sér-
staklega ætluð börnum og hentar
fullkomlega fyrir aldurinn 5-12
ára. Fólk á öllum aldri getur þó
skemmt sér þar sem húmorinn er
lúmskur.
Eldhúsið hefur verið sýnt um
200 sinnum vítt og breitt um
Noreg og fær einstaklega góðar
viðtökur hjá krökkum. Jo Strøm-
gren Kompani var stofnað árið
1998 í Noregi og hefur síðan orðið
einn þekktasti sjálfstæði leikhópur
í Skandinavíu. Flokkurinn hefur
ferðast með verk sín um fleiri en
50 lönd og u.þ.b. 150 sýningar
eru haldnar árlega, bæði í stórum
þjóðleikhúsum og smærri stöðum.
Með hlutverk sýningarinnar fara
þau Ívar Örn Sverrisson og Hanne
Gjerstad Henrichsen. - hf
70 menning Helgin 22.-24. maí 2015
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 22/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00
Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl
13
Fim 4/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00
Mið 27/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00
Fös 29/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00
Lau 30/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00
Sun 31/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 22/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson - síðustu sýningar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Hystory (Litla sviðið)
Sun 31/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur - síðasta sýning
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Fös 22/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Shantala Shivalingappa (Stóra sviðið)
Þri 2/6 kl. 20:00
Sýning á vegum Listahátíðar í Reykjavík
Blæði: obsidian pieces (Stóra sviðið)
Mán 25/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn - Aðeins þessar sýningar
Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl.
leikhusid.is
FJALLA-EYVINDUR OG HALLA – HHHH – SV, MBL
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Fös 29/5 kl. 19:30 Lokas.
Allra síðasta sýning.
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 6/6 kl. 14:00 Lau 6/6 kl. 17:00
Áhugasýning ársins. María Ólafsdóttir leikur Ronju í Þjóðleikhúsinu.
Ofsi (Kassinn)
Fös 5/6 kl. 19:30 Lau 6/6 kl. 19:30
Aukasýningar komnar í sölu.
MagnusMaria (Stóra sviðið)
Mið 3/6 kl. 20:00
Ópera um rétt kyn eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Laugardagurinn 23.maí.kl.14
Kvennakóratónlist flutt af íslenskum og
sænskum kórkonum undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur.
Berglind Björk Jónasdóttir söngkona
syngur með, Agnar Már Magnússon
leikur á flygilinn.
Miðasala á midi.is - aðgangseyrir 1500
Veitingastofurnar opnar alla daga frá kl.
11-17
Nýr sumarmatseðill á virkum dögum,
brunch um helgar.