Fréttatíminn - 22.05.2015, Blaðsíða 94
„Það þarf heilt þorp til að ala upp ein-
stakling,“ sagði spakur maður. Við sem
erum foreldrar vitum að ekki væri hægt
að sinna vinnu nema með hjálp dag-
mæðra, leikskóla og grunnskóla. Það er
ástæða til að vera þakklátur fyrir það
heilbrigða lífsviðhorf sem endurspeglast
í starfsemi stofnana og alls þess fólks
sem kemur að uppeldi barna okkar í dag.
Smátt og smátt móta börnin okkar sér
sínar eigin skoðanir og hugmyndir út frá
þeim fjölmörgu aðilum sem koma við
sögu þeirra í daglegu lífi. Ef barnið okkar
upplifir heilbrigt og gott fjölskyldulíf,
eignist góða vini, er umkringt góðu fólki
sem sér um það í dagvistun eða skóla og
stundar spennandi áhugamál eða íþróttir,
smella öll púslin saman í eina góða mynd
og þá eru minni líkur á því að eitthvað
fari úrskeiðis. Útkoman ætti að vera
jákvæður og sterkur einstaklingur sem er
fær í hvað sem er. Sem betur fer er þetta
upplifun flestra sem eru að vaxa úr grasi.
En stundum er lífið öðruvísi og tekur á
sig aðra mynd. Áföll geta hent börnin
okkar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum
og stundum er barnið okkar fætt með
ákveðnar raskanir sem geta reynst því
og okkur erfiðar. Fyrir marga foreldra er
það áfall að barnið þeirra greinist með
raskanir. Það reynir á hjónabandið og
fjölskylduna í heild sinni að takast á við
barnið, að læra inn á það og skilja hvað
veldur hegðun þeirra og hugsun.
Það eru einmitt börnin okkar sem
greinast með hinar ýmsu raskanir sem
eru í meiri áhættu en önnur börn. Þau
geta átt erfitt með að tileinka sér nám,
reyna á fagfólkið í skólanum og verða
oftar fyrir útilokun og einelti. Ef þau falla
ekki inn í félagahópinn í skólanum eða
í tómstundum eykst hætta á félagslegri
einangrun, að þau verði einangruð heima
í tölvunni eða þau leiti í félagsskap þeirra
sem jafnvel eru í vímuefnavanda. Hjá
þeim sem hafa valið slíka leið er alltaf
pláss fyrir nýjan vin, því miður. Það þarf
að hlúa sérstaklega vel að börnum með
raskanir og fjölskyldum þeirra. Það er
okkar samfélagslega ábyrgð og um leið
verðum við að skapa skilning á þörfum
og aðstöðu þessa fólks. Því miður ríkir
úrræðaleysi í samfélaginu varðandi
fjölskyldur og börn sem ýmist glíma við
raskanir og/eða vímuefnavanda. Það
má merkja greinilega hjá foreldrum sem
sækja ráðgjöf til okkar í Foreldrahús.
Það hefur því sjaldan verið mikilvægara
að stjórnvöld sýni þessum málaflokki
skilning og stuðning.
Við í Foreldrahúsi höfum í áraraðir
boðið upp vönduð sjálfstyrkingarnám-
skeið sem hafa mikið forvarnargildi
fyrir börn og unglinga ásamt ráðgjöf til
unglinga í vímuefnavanda og foreldra
þeirra. Þörf fyrir þjónustu af þessu tagi
og úrræði fyrir foreldra sem eiga börn
með raskanir og/eða vímuefnavanda er
vaxandi í dag. Það er hagur alls þorpsins,
sem spaki maðurinn talaði um, að hjálpa
öllum okkar börnum að vaxa og dafna og
verða að nýtum þjóðfélagsþegnum. Það
er sameiginleg ábyrgð okkar þorpsbúa
að standa vörð um börnin okkar og við í
Foreldrahúsi stöndum okkar vakt.
Berglind Gunnarsdóttir, stjórnarfor-
maður Vímulaus Æska – Foreldrahús Í upphafi mun fara fram grein-ingarviðtal með ungmenninu og foreldrum eða forráðamönn-
um. Þátttakendum verður skipt í
tvenns konar hópa, annars vegar þá
sem hafa verið að fikta við vímuefni
og hins vegar þá sem hafa strítt við
fíkn. „Í greiningarviðtalinu verður
rýnt í forsögu, daglegt atferli, líð-
an, fjölskyldu og félagstengsl við-
komandi,“ segir Alexander, en hann
mun starfa með ungmennunum á
námskeiðinu.
Líf án vímuefna
Ungmennin fá stuðning, aðhald og
leiðsögn um hvernig takast skal á
við lífið án vímuefna. Stuðningur-
inn samanstendur af hópastarfi og
einkaviðtölum. Vímuefnaráðgjafi
hittir hvert ungmenni að lágmarki
einu sinni í viku, þar sem farið er
yfir líðan, áhættur, hindranir og
aðra hluti sem koma upp í daglegu
lífi. Unnið er með orsakandi þætti
vanlíðunar, sjálfskaðandi hegðunar
og lélegrar sjálfstjórnar. „Við leggj-
um áherslu á stuðning, úrvinnslu
tilfinninga og áframhaldandi bata
hjá ungmennunum,“ segir Alex-
ander. „Við viljum að þau fari héðan
með bætta lífsleikni og hamingju að
leiðarljósi. Ef það næst ekki að nám-
skeiði loknu verður tekin ákvörðun
með áframhaldandi úrræði.“ Hóp-
astarf ungmennanna fer fram alla
miðvikudaga klukkan 15.30 -17.
Stuðningsviðtöl fara fram eftir sam-
komulagi á miðvikudögum.
Stuðningshópur fyrir foreldra
Guðrún mun hafa umsjón með
stuðningsviðtölum fyrir foreldra. Í
boði verður eitt viðtal hjá foreldra-
ráðgjafa á mánuði. Einnig stendur
til að hafa kynjaskipta stuðnings-
hópa fyrir foreldra sem fara fram
tvisvar í mánuði. „Foreldrar upplifa
oft mikla hræðslutilfinningu þegar
barnið þeirra er að fikta við vímu-
efni eða á við vímuefnavanda að
stríða. Það skiptir því miklu máli að
þora að hlusta á barnið og finna rót
vandans,“ segir Guðrún. Lögð verð-
ur áhersla á að upplýsa foreldra um
vímuefni og umhverfið sem þeim
fylgja. „Auk þess munum við reyna
að stuðla að auknum og betri sam-
skiptum foreldra við börn sín,“ segir
Guðrún. Stuðningshópur foreldra
fer fram annan hvern miðvikudag
klukkan 17.30-19. Námskeiðið fer
fram í húsakynnum Vímulausrar
æsku að Suðurlandsbraut 50, 2.
hæð (Bláu húsin í Skeifunni). Há-
marksfjöldi í hópi eru 8 manns.
Mánaðargjald er 32.900 kr. Hægt er
að nýta frístundakort Reykjavíkur
og frístundastyrk Kópavogsbæjar.
Skráning og nánari upplýsingar hjá
ráðgjöfum í síma 5116160 eða með
tölvupósti á vimulaus@vimulaus.is.
Kynningarblað Vímulausrar æsku – Foreldrahúss
1. tbl. – 29. árgangur – maí 2015
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hrafndís Tekla Pétursdóttir
Prentun: Landsprent Upplag: 82.000
Vímulaus æska Foreldrahús Borgartúni 6 105 Reykjavík
s. 511 6160
vimulaus@vimulaus.is www.vimulaus.is
Ávarp formanns
2 Vímulaus æska 22. maí 2015
Stuðningshópur fyrir ung-
menni í vímuefnavanda
Stuðningshópurinn STUÐ er úrræði fyrir ungmenni á aldrinum 15-20 ára sem eiga við vímuefnavanda
að stríða. ICADC ráðgjafarnir Alexander Manrique og Guðrún B. Ágústsdóttir hafa umsjón með nám-
skeiðinu.
Guðrún B. Ágústsdóttir, ICADC og foreldraráðgjafi og Alexander Manrique, ICADC ráðgjafi, hafa umsjón með STUÐ-hópnum,
stuðningshópi fyrir ungmenni sem eiga við vímuefnavanda að stríða. Mynd/Hari.
Sumarnámskeið í Foreldrahúsi
3 vikna sumarnámskeið fyrir börn sem
eru að ljúka 4.- 7.bekk í vor hefjast 9.
júní og mun fara fram á þriðjudögum
og fimmtudögum klukkan 13-16.
Námskeiðsgjaldið er 27. 000 kr. Létt
hressing er innifalin.
Leiðbeinendur eru Elísabet Lorange
listmeðferðafræðingur og Ólafur
Guðmundsson leikari.
Skráning fer fram á vefnum
www.vimulaus.is